63. sveitarstjórnarfundi Skeiða og Gnúpverjahrepps frestað
63. fundi sveitarstjórnar Skeiða og Gnúpverjahrepps sem halda átti miðvikudaginn 2. júní hefur verið frestað um viku eða til miðvikudagsins 9. júní nk.
63. fundi sveitarstjórnar Skeiða og Gnúpverjahrepps sem halda átti miðvikudaginn 2. júní hefur verið frestað um viku eða til miðvikudagsins 9. júní nk.
Um þessar mundir er unnið að uppfærslu búnaðar við ljósleiðara í Árnesi og Brautarholti. Sú uppfærsla gerir Vodafone kleift að bjóða notendum 1Gb ljósleiðaratengingar en núverandi búnaður býður aðeins upp á 100 MB tengingar.
62. Sveitarstjórnarfundur
Fundarboð
Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða og Gnúpverjarhrepps
í Árnesi 19. maí 2021 kl. 16.00
Dagskrá
Fundargerðir til kynningar:
Mál til kynningar:
Fundir framundan
Stefnt er að útgáfu maí tölublaðs Gauksins föstudaginn 15. maí. Ef þið lumið á efni sem þarf að komast í blaðið má gjarnan koma því til þjónustufulltrúans fyrir fimmtudaginn 14. maí á netfangið hronn@skeidgnup.is
Ákveðið hefur verið að breyta tímasetningum á sundleikfimi eldri borgara. Tímarnir sem hingað til hafa verið á fimmtudögum hafa verið færðir yfir á mánudaga kl. 16.30 og verða áfram í Skeiðalaug. Fyrsti mánudagstíminn er í dag mánudaginn 10. maí og svo næstu tvo mánudaga eftir það (síðasti mánudaginn 31. maí)
„Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á Vesturlandi, Höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi hafa ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum.
Svæðið sem um er að ræða nær frá Eyjafjöllum að sunnanverðu Snæfellsnesi. Þessi ákvörðun er byggð á því að lítið hefur rignt þessu svæði undanfarið og veðurspá næstu daga sýnir heldur ekki neina úrkomu af ráði.
Ungmennum með lögheimili í Skeiða- og Gnúpverjahreppi fædd 2006 og 2007 gefst kostur á að starfa í Vinnuskóla sveitarfélagins í sumar. Vinnuskólinn hefst 7. júní og stendur í um það bil 9 vikur eða til og með 5. Ágúst. Unnið verður fjóra daga í hverri viku, mánud.—fimmtud. Kl. 08:00 - 14:00. Skylt er þó að taka frí eina viku á tímabilinu. Hámarksfjöldi vinnufólks í einu er átta. Ef fjöldi vinnufólks verður meiri, verður starfstíminn skipulagður með það í huga. Í ágúst gefst þeim kostur sem hafa áhuga, að vinna eftir samkomulagi. Heitur matur er framreiddur í hádeginu en koma þarf með nesti í kaffitíma fyrir hádegi. Umsóknarfrestur er til 15. maí. Skráning fer fram hjá Hrönn Jónsdóttur á skrifstofu, netfang hronn@skeidgnup.is sími 486-6100
Árnesi, 30 apríl, 2021
61. Sveitarstjórnarfundur
Fundarboð
Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða og Gnúpverjahrepps
í Árnesi 5 maí, 2021 klukkan 16:00.
Matvælastofnun vekur athygli á að stofnunin óskar eftir tilkynningum ef villtir dauðir fuglar finnast, nema augljóst sé að þeir hafi drepist af slysförum. Tilgangurinn er að skima þá fyrir fuglaflensu og fylgjast þannig með mögulegri útbreiðslu hennar meðal farfugla hérlendis. Best er að tilkynna með því að skrá ábendingu á vef stofnunarinnar, en líka er hægt að hringja í síma 530-4800 á opnunartíma eða senda tölvupóst á netfangið mast@mast.is. Sjá einnig frétt okkar um aukið viðbúnaðarstig. Vinsamlega miðlið þessu áfram meðal starfsmanna sveitarfélagsins. https://www.mast.is/is/um-mast/frettir/frettir/aukid-vidbunadarstig-vegna-fuglaflensu
Gámasvæði Skeiða- og Gnúpverjahrepps í Árnesi og Brautarholti verða lokuð laugardaginn 1. maí sem er frídagur verkafólks. Góða helgi.