Útboð - Vallarbraut 202

Félagsheimilið og Leikskólinn í Brautarholti
Félagsheimilið og Leikskólinn í Brautarholti

Verkið felur í sér gerð á nýrri götu Vallarbraut í Brautarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Verktaki skal jarðvegsskipta götuna og gangstíga samkvæmt kennisniðum og leggja styrktarlag, burðarlag og malbik á stíga og götur. Verktaki skal einnig leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, ljósleiðaralagnir, ljósastauralagnir, setja upp ljósastaura og aðstoða við lagningu rafveituveitulagna.

Helstu magntölur eru:

Gröftur 1615 m³
Styrktarlag og fylling í lagnaskurði 3000 m³
Malbik 2020 m²
Fráveitulagnir 789 m
Vatnsveitulagnir 354 m
Hitaveitulagnir 352 m
Ljósastaurar 7 stk

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum 1. nóvember 2022. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Bárð Árnason hjá Eflu Suðurlandi með tölvupósti á netfangið bardur.arnason@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Skeiða- og Gnúpverjahrepps Árnesi, 804 Selfossi fyrir kl. 10:00 þriðjudaginn 15. nóvember 2022, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.