Börn og ungmenni

Sveitarfélagið Skeiða- og Gnúpverjahreppur leggur áherslu á að skapa barnvænt og fjölskylduvænt samfélag þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að vaxa, þroskast og taka þátt í samfélaginu. Litið er á börn sem mikilvæga þátttakendur og hlustað er á þeirra sjónarmið og þarfir.

Í sveitarfélaginu er fjölbreytt þjónusta fyrir börn og ungmenni. Þar starfa leikskólinn Leikholt, sem staðsettur er í Brautarholti, og Þjórsárskóli, sem er grunnskóli fyrir börn í 1-10 bekk,  staðsettur í Árnesi.

Í skólunum er lögð rík áhersla á nám leik, félagsleg samskipti og vellíðan.

Tónlistarskóli Árnesinga er með kennslu í sveitarfélaginu þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að þroska hæfileika sína og njóta tónlistar og sköpunar.

Félagsmiðstöðin Ztart opnaði í janúar 2025 en þar geta ungmenni átt öruggan samastað, hitt vini, tekið þátt í fjölbreyttu félagsstarfi og haft áhrif á sitt nærumhverfi.

Með öflugu samstarfi þessara stofnana, fjölskyldna og samfélagsins alls er unnið að því að skapa öruggt, heilbrigt og hvetjandi umhverfi fyrir börn og ungmenni. Markmiðið er að hvert barn finni að það tilheyri samfélaginu, fái tækifæri til þátttöku og hafi aðgang að þjónustu sem styður við þroska, menntun og vellíðan.

Í barnvænu samfélagi er hlustað á börnin, þau fá að taka þátt og sjónarmið þeirra skipta máli.