Minnum á tómstundastyrk Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Minnum á tómstundastyrk Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Styrkurinn árið 2021 nemur 80.000 kr og ekki er hægt að safna honum upp á milli ára, svo styrk fyrir tómstundum árið 2021 þarf að sækja um fyrir áramót.   Reglugerð um styrkinn má finna hér

Átak gegn kynbundnu ofbeldi

Þann 25. nóvember sl. hófst árlegt alþjóðlegt sextándaga átak gegn kynbundnu ofbeldi. Átakið hefst þann 25. nóvember sem er alþjóðadagur sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og lýkur á mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna þann 10. desember. í ár er átakið helgað stafrænu ofbeldi sérstaklega.  Af þessu tilefni blaktir við hún hér fyrir utan skrifstofu Skeiða-og Gnúpverjahrepps, appelsínugulur fáni, sem er litur Soroptimistaklúbbs Suðurlands, en klúbburinn og Skeiða- og Gnúpverjahreppur, ásamt mörgum öðrum stofnunum og sveitarfélögum, eru samstarfsaðilar um Sigurhæðir, þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis á Suðurlandi. 

Rafmagnstruflanir í dag

Rafmagnstruflanir verða í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í dag þriðjudaginn 23.11.2021 frá kl 12:30 til kl 16:00 Tvö stutt straumleysi verða vegna tengivinnu við háspennukerfi. Beðist er velvirðingar á stuttum fyrirvara. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Suðurlandi í síma 528 9890 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Svæðisskipulag suðurhálendis - Opinn kynningarfundur

Opinn kynningarfundur á vinnu við gerð svæðisskipulagi fyrir Suðurhálendið, verður haldinn miðvikudaginn 24. nóvember

71. fundur sveitarstjórnar

Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða og Gnúpverjahrepps

í Árnesi  17 nóvember, 2021 klukkan 14:00.

Dagskrá

1. Fjárhagsáætlun 2022- Álagningarforsendur 2022

Endurnýjun Hörputurna - lokafrestur til að panta

Eins og áður hefur verið auglýst ákvað sveitarstjórn að leyfa "einn umgang enn" af  endurnýjun Hörputurna. Starfsmenn Strá ehf. hafa verið á fleygiferð um sveitina að bora holur og listinn fer að styttast. Ef fólk vill tryggja sér endurnýjun á holu fyrir veturinn biðjum við um að pantanir þar um berist fyrir mánudaginn 8. nóvember nk.

Vilt þú gerast stuðningsfjölskylda?

Skóla og velferðaþjónusta Árnesþings óskar eftir stuðningsfjölskyldum.

Hlutverk stuðningsfjölskyldu er að taka barn eða börn tímabundið í umsjá sína í þeim tilgangi að létta álagi af fjölskyldu

Skeiða- og Gnúpverjahreppur auglýsir lausar lóðir í Árnesi

Heiðargerði 1: Lóðin er 1792 mað stærð og er skipulögð fyrir raðhús með 3 íbúðum.

Hamragerði 1: Lóðin er rúmlega 1000 m2 að stærð og er skipulögð fyrir parhús.

Hamragerði 3 og 5: Lóðirnar eru rúmlega 1000 mog á þeim má byggja einbýli á einni hæð ásamt bílskúr. 

Skipulagsauglýsing 3. nóvember 2021

Kílhraun land L191805, Áshildarvegur 2-26 - Aðalskipulagsbreyting - Úr frístundabyggð í íbúðabyggð

Sveitarstjórn Skeiða -og Gnúpverjahrepps samþykktir á fundi sínum þann 20. október 2021 að auglýsa tillögu aðalskipulagsbreytingar sem tekur til Áshildarvegar 2-26 í landi Kílhrauns, L181705. Í breytingunni felst að frístundasvæði breytist að hluta til í íbúðarsvæði.

Rafmagnsleysi fimmtudaginn 4. nóvember

Rafmagnslaust verður í Gnúpverjahreppi, frá Ásaskóla og að Hlíð, fimmtudaginn 04.11.2021 frá kl 15:00 til kl 16:00 vegna tengivinnu á háspennukerfi. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Suðurlandi í síma 528 9890 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof