Bæklingurinn Verum viðbúin er gefinn út af Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra með það að markmiði að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins. Hann veitir hagnýtar upplýsingar sem hjálpa einstaklingum, heimilum og samfélaginu öllu að vera betur undirbúin þegar á reynir.
Svör við algengum spuningum
Hver er meginboðskapurinn í bæklingnum?
Öryggi er sameiginlegt verkefni. Með einföldum undirbúningi geta heimili aukið eigið öryggi, stutt við nágranna sína og auðveldað sveitarfélögum og viðbragðsaðilum að sinna hlutverki sínu þegar á reynir. Þegar fleiri eru undirbúnir geta viðbragðsaðilar betur sinnt þeim sem mest þurfa á aðstoð að halda. Þetta snýst um að vera upplýst, undirbúin og tilbúin til að hjálpast að.
Hvert er hlutverk sveitarfélaga í almannavörnum?
Sveitarfélög eru oft næst íbúunum þegar á reynir. Þau gegna mikilvægu hlutverki í upplýsingagjöf, stuðningi við íbúa og samhæfingu þjónustu, auk þess að vinna náið með lögreglu, Almannavörnum og öðrum viðbragðsaðilum þegar óvæntar aðstæður skapast.
Hvers vegna núna?
Á síðustu árum höfum við upplifað eldgos, óveður og aðrar áskoranir sem minna okkur á mikilvægi viðbúnaðar. Jafnframt hefur aukin áhersla verið lögð á viðbúnað almennings víða í Evrópu. Markmiðið er einfaldlega að fleiri hafi hugsað sinn viðbúnað áður en eitthvað kemur upp á.
Er þetta hræðsluáróður?
Tilgangurinn er ekki að vekja ótta heldur að efla öryggi og viðbúnað. Við búum í öruggu samfélagi en góður undirbúningur skiptir máli. Rétt eins og við setjum upp reykskynjara án þess að búast við eldsvoða er skynsamlegt að vera undirbúin fyrir aðstæður sem geta haft áhrif á daglegt líf.
Hvað kemur fram í bæklingnum?
Bæklingurinn er ætlaður sem stuðningur fyrir heimili sem vilja vera betur undirbúin. Þar er að finna einfaldar og hagnýtar upplýsingar um hvernig bregðast má við ef daglegt líf raskast, hvert leita má upplýsinga og hvað getur verið gott að hafa tiltækt á heimilinu, svo sem útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum, hleðslubanka, vasaljós, lyf og aðrar nauðsynjar sem geta nýst þegar á reynir.
Eruð þið að tala um eitthvað annað en eldgos og óveður?
Þótt náttúruvá sé stór hluti almannavarna byggir daglegt líf okkar einnig á mikilvægum innviðum eins og rafmagni, fjarskiptum, interneti og vatnsveitum. Truflanir á þessum innviðum geta haft áhrif á heimili, fyrirtæki og þjónustu sveitarfélaga. Þess vegna er mikilvægt að vera undirbúin fyrir mismunandi aðstæður.
Gátlistinn
