Upp í sveit

 

Framundan er er sveitahátíðin Upp í sveit 2026. Hún hefst föstudaginn 19. júní og lýkur sunnudaginn 21. júní.

Hér er dagskrá hátíðarinnar

Föstudagur 19. júní

Kvöldstund á Brytanum

Það verður fjör á Brytanum í Árnesi, nánari upplýsingar

koma síðar, takið kvöldið frá…

Laugardagur 20. júní

Sumardagur í Árnesi

Kl. 11:00

Froðurennibraut slökkviliðsins - frítt í sund

Börn á ábyrgð foreldra sinna bæði í rennibrautinni

og í sundlauginni

Kl. 11:00 - 16:00

Hoppukastalar í boði fyrir börnin

Kl. 11:00 - 16:00

Listasýning í Árnesi

Kl. 11:00 - 16:00

Tæknisýning – við fáum að skoða tæki sveitunga, allt

frá minnsta barnarallýbílnum upp í stærsta traktorinn

Kl. 12:30 - 14:00

Kassabílarallý Dynks, - Lionsklúbburinn Dynkur

býður upp á kassabílarallý fyrir börnin fyrir utan félagsheimilið Árnes

Kl. 12:00 - 16:00

Handverksmarkaður – hinn árlegi handverksmarkaður þar sem finna má hönnun og lista- og handverk. Ullarvörur, tálgaða muni, gullsmíði, prjónuð og saumuð föt,

leirlist, gjafavörur, heilsuvörur og margt fleira.

Kl. 12:00 - 16:00

Flóamarkaður – drasl fyrir einn, gull fyrir annan. Almenningi er velkomið að bæði selja og kaupa.

14:00 - 16:00

Leikstund með Rakel – allir velkomnir, frá yngstu til elstu;

Fjölskyldur, vinahópar og einstaklingar. Rakel og hjálparfólkið hennar bjóða upp á skemmtilegar leikstöðvar með bæði vel þekktum og nýsköpuðum leikjum.

Börn eru í fylgd foreldra eftir þörfum.

Sunnudagur 21. júní

Hádegisstund í Þjórsárdal

Kl. 12:00

Matur í skóginum í boði Kvenfélags Gnúpverjahrepps

Árni Þór trúbador syngur yfir matnum

Göngutúr eftir matinn – Bergur Þór Björnsson býður fólki í göngutúr inni í skógi þar sem skoðað verður ýmislegt áhugavert.

Kl. 14:00 - 18:00

Opið hús í Gallerí Lína Votamýri

Barnadagur í Brautarholti

Kl 14:00 - 15:00

Innblástur - Leikhópurinn Ólíkir

Innblástur er glæný barnasýning sem fallar um leikgleðina, sköpunarkraftinn og að kannski séu sumar reglur til að brjóta þær.

Í sýningunni er lítið tal svo tungumálakunnátta setur engin mörk. Innblástur er leiksýning fyrir börn á öllum aldri sem vilja leika sér.

Kl 15:00 - 16:30

BMX Bros halda spennandi sýningu og í framhaldi af henni verður námskeið. Það má mæta með eigið hjól og hjálm,

en strákarnir koma með allan nauðsynlegan búnað. Svo einnig verður hægt að fá lánað. Mikil skemmtun framundan!

Kl. 14:00 - 17.00 Hoppukastali

Kl. 16:00 - 18:00

Veltibílinn frá Landsbjörgu

Pizzavagninn mætir og passar upp á að enginn verði svangur!

Sunnudagskvöld

Kl. 20:00

Tónleikar hjá Eyrúnu Huld í Stóru-Núpskirkju.

Eyrún Huld Ingvarsdóttir fiðluleikari býður upp á stutta tónleika þar sem leikin verða klassísk einleiksverk í bland við íslenskar tónlistarperlur,

tangó og fleiri uppáhaldsverk úr handraðanum.