Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs.
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings (SVÁ) er fagleg og samþætt þjónusta með velferð íbúa að leiðarljósi.
Meginstarfsstöð þjónustunnar er staðsett í Heilsugæslunni, Laugarási en starfssvæðið er víðfeðmt og fara starfsmenn á milli starfsstöðva á þjónustusvæðinu í samræmi við verkefni hverju sinni.
Skrifstofa er opin mánudaga - fimmtudaga kl. 9.00 - 15.00 og föstudaga kl. 9.00 - 12.00.
Markmið SVÁ er að:
- Vera leiðandi á landsvísu með framúrskarandi þjónustu sem mætir þörfum íbúa til bættra lífsgæða
- Veita markvissa og faglega skóla- og velferðarþjónustu til þess að tryggja farsæld barna og fjölskyldna
- Tryggja skilvirka og góða þjónustu með fjölbreyttum leiðum
- Vinna markvisst forvarnarstarf sem stuðlar að vellíðan íbúa með ráðgjöf og stuðningi.
- Vinna að þróun margbreytilegra úrræða með áherslu á snemmtæka íhlutun
Gildi SVÁ
Samvinna
Virðing
Áreiðanleiki
Haustið 2013 hófu sjö sveitarfélög samvinnu um sérfræðiþjónustu í skólum á svæðinu en það voru sveitarfélögin Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Sveitarfélagið Ölfus.
Haustið 2022 var tekin ákvörðun um breytingu á byggðasamlaginu og gengu Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfus út úr byggðasamlaginu. Frá og með 1. mars 2023 starfa fimm sveitarfélög saman að sameiginlegri skóla- og velferðarþjónustu fyrir svæðið.
Heimasíður sveitarfélaganna:
Bláskógabyggð
Flóahreppur
Grímsnes- og Grafningshreppur
Hrunamannahreppur
Skeiða- og Gnúpverjahreppur