Lóðir lausar til úthlutunar og aðrar hagnýta upplýsingar

Hér fyrir neðan má sjá lóðir sem lausar eru til umsókna í Brautarholti og Árnesi. Ekki er greitt fyrir byggingaréttargjald á lóðum heldur eingöngu gatnagerðargjöld og lóðargjald.

Í Brautarholti er leikskóli sveitarfélagsins og Skeiðalaug með SPA aðstöðu og líkamsrækt. Brautarholt er í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá Árnesi og 20 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi og í alfaraleið við Skeiða- og Hrunamannaveg. Í úthlutun eru lóðir við nýja götu, Vallarbraut sem tilbúnar eru til afhendingar ásamt tveimur raðhúsalóðum við Holtabraut. Um er að ræða blandaða byggð með einbýlishúsum og par- og raðhúsum.  Á lóðunum Holtabraut 21a-c, 23 a-c og 37,39 og 41 er langt niður á fast og er veittur 75% afsláttur af gatnagerðargjöldunum. Útreikningur gjalda miðast við afslátt.

Í Árnesi er Þjórsárskóli, verknámshús, félagsheimilið Árnes, Neslaug, fjölnota íþróttamiðstöð, með líkamsræktaraðstöðu, og sorpmóttökustöð sveitarfélagsins. Árnes er í 30 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi. Í nálægð við Árnesi eru ýmsar náttúruperlur eins og Þjórsárdalurinn, með góðum gönguleiðum, og náttúrperlurnar Hjálparfoss, Gjáin og Háifoss. 

Allar lóðir í Brautarholti og í Árnesi eru leigulóðir og er árleg lóðarleiga 1% af lóðarmati. Lóðarmat má nálgast á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Lausar lóðir í Árnesi

Hamragerði 1 - Parhús

Hamragerði 3 - Einbýlishús

Hamragerði 10 - Einbýlishús

Hamragerði 12 - Raðhús

Hamragerði 14 - Raðhús

Skólabraut 1- Parhús

Skólabraut 3 - Parhús

Árnes

Lausar lóðir í Brautarholti

Holtabraut 21 a-c - Raðhús

Holtabraut 23 a-c - Raðhús

Holtabraut 37-41 - Raðhús

Vallarbraut 1-5- Raðhús

Vallarbraut 2 - Einbýlishús

Vallarbraut 4 - Einbýlishús

Vallarbraut 6 - Einbýlishús

Vallarbraut 15-19 - Raðhús

Brautarholt á Skeiðum

 

Gjaldskrár og álagningarforsendur

Tengi- og heimæðagjöld eru innheimt sérstaklega og eru ekki innifalin í gatnagerðargjaldi. Vatnsveita og fráveita eru á vegum sveitarfélagsins. Hitaveita í Árnesi er á vegum Hitaveitufélags Gnúpverja og hitaveita í Brautarholti er á vegum Hitaveitu Brautarholts. Rarik sér um tengingu rafmagns og Fjarskiptafélag Skeiða- og Gnúpverjahrepps sér um ljósleiðara.

Útreikningar á gatnagerðargjöldum

Gjaldskrá Hitaveitu Brautarholts má finna hér

Heimæðagjald vatnsveitu

Gjaldskrá fráveitu og meðhöndlunar Seyru

Gjaldskrá fjarskiptafélags Skeiða- og Gnúpverjahrepps v. tengigjalda við ljósleiðara

Gjaldskrá Leikskólans í Brautarholti - Leikholt

Gjaldskrá Þjórsárskóla

Álagningaforsendur fasteignagjalda

 

Reglur og samþykktir um lóðaúthlutanir

Reglur um úthlutun lóða í Skeiða- og Gnúpverjahreppi má finna hér

Samþykkt um gatnagerðargjöld í þéttbýli Skeiða-og Gnúpverjahrepps

 

Hægt er að senda umsóknir um lóðir á umsóknareyðublaði hér fyrir neðan. Úthlutun lóða þarf að staðfesta á sveitarstjórnarfundi Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Verði fleiri en ein umsókn umóð verður dregið í samræmi við reglur um lóðaúthlutun Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Reynist vera óverulegt misræmi á milli deiliskipulags og lóðarblaða er varðar legu eða stærð lóðar þá gilda lóðablöðin umfram deiliskipulagið.

Umsóknareyðublað má finna hér