Sorpmál

Sorphirðudagatal
Sorphirðudagatal.2026
 
 
 

Af hverju flokkum við?

Flokkun og endurvinnsla hjálpa til við að vernda umhverfið og nýta auðlindir betur. Það sem við köllum rusl er oft verðmætt hráefni sem hægt er að nota aftur í stað þess að sækja nýtt úr náttúrunni.

Þegar við flokkum úrgang fer meira af efnum eins og plasti, pappír, gleri og málmum í endurvinnslu. Þannig sparast orka og hráefni, auk þess sem dregið er úr losun gróðurhúsalofttegunda og mengun sem getur orðið þegar úrgangur er urðaður eða brenndur.

Óflokkaður úrgangur endar að lokum sem mengun í umhverfinu, en með flokkun tryggjum við að verðmæt efni haldist í hringrás og nýtist áfram. Með litlum breytingum í daglegu lífi getur hver og einn lagt sitt af mörkum til sjálfbærari framtíðar.

Saga flokkunar sorps á Íslandi

Lengst af var sorp á Íslandi að mestu sett í eina tunnu og síðan urðað. Flokkun eins og við þekkjum hana í dag þróaðist smám saman, fyrst með söfnun á ákveðnum efnum eins og pappír, málmum, spilliefnum og drykkjarumbúðum, en síðar með fjölbreyttari flokkun við heimili, vinnustaði og á grenndar- og endurvinnslustöðvum.

Eitt af fyrstu stóru skrefunum var árið 1989, þegar lög voru sett um skilagjald á einnota drykkjarumbúðir. Þá varð til landskerfi þar sem fólk gat skilað dósum og flöskum og fengið skilagjald til baka. Ísland var meðal fyrstu landa til að koma á slíku landskerfi fyrir einnota drykkjarumbúðir og hefur söfnun þeirra verið mjög árangursrík.

Á höfuðborgarsvæðinu urðu einnig stór tímamót árið 1991, þegar fyrstu gámastöðvar SORPU voru teknar í notkun. Þær urðu síðar kallaðar endurvinnslustöðvar. Í upphafi var tekið við um átta flokkum úrgangs, meðal annars timbri, málmum, bylgjupappa, dagblöðum, jarðvegi, blönduðu sorpi og spilliefnum. Í dag er tekið við mun fleiri flokkum og flokkun orðin mun stærri hluti af daglegri úrgangsmeðhöndlun.

Á árunum eftir 2000 jókst áherslan á að líta á úrgang sem verðmæti fremur en rusl. Lög um úrvinnslugjald, nr. 162/2002, styrktu kerfi þar sem framleiðendur og innflytjendur bera ábyrgð á ákveðnum vöruflokkum þegar þeir verða að úrgangi, til dæmis umbúðum, raftækjum, rafhlöðum og fleiru. Úrvinnslusjóður hefur það hlutverk að styðja við söfnun, endurnýtingu og endurvinnslu slíkra úrgangsflokka.

Á síðustu árum hefur flokkunin færst enn nær heimilunum sjálfum. Sveitarfélög hafa tekið upp fleiri tunnur og samræmdari flokkun, meðal annars fyrir pappír, plast, matarleifar og blandaðan úrgang. Frá 1. janúar 2023 tóku gildi nýjar reglur í úrgangsmálum sem miða að aukinni flokkun, minni urðun og uppbyggingu hringrásarhagkerfis. Þá varð skylt að flokka úrgang í að minnsta kosti sjö flokka: pappír, plast, lífúrgang, textíl, málma, gler og spilliefni.

Í dag er flokkun sorps því ekki lengur bara „umhverfisverkefni“ heldur hluti af stærra markmiði: að draga úr sóun, nýta hráefni betur, minnka urðun og koma verðmætum efnum aftur inn í hringrásina. Þróunin hefur verið frá einni ruslatunnu yfir í fjölbreytt kerfi þar sem heimili, fyrirtæki, sveitarfélög og endurvinnsluaðilar vinna saman að því að nýta úrgang betur.

Opnunartímar gámasvæðis í Árnesi

Dagur Opnunartími
Miðvikudagar 14:00 - 17:00
Laugardagar 12:00 - 15:00
  • Dýragámar eru á tveimur stöðum: Fyrir ofan minnkahúsin við Mön og við Heiðarhúsbala rétt austan við Brautarholt.
  • Fatagámar Rauða krossins eru tveir, staðsettir við grendargámana í Árnesi og við sundlaugina í Brautarholti
  • Starfsmaður áhaldahúss er Björn Axel Guðbjörnsson. Sími í áhaldahúsi er 486-6118 eða hjá honum beint: 893-4426

Gjaldskrá á gámasvæðinu

Eftir breytingar á lögum um sorp, sem tóku gildi 1. janúar 2023 er tekið móttökugjald fyrir allt sorp sem komið er með á gámasvæði sveitarfélagsins (að undanskyldu flokkuðu plasti, pappír, pappa og brotajárn). Gjaldtaka á móttökustað miðast við m3 þess úrgangsmagns sem afsett er.

Um gjaldskyldu og flokka úrgangs gildir gjaldskrá vegna meðhöndlunar úrgangs í Skeiða og Gnúpverjahrepp.

Móttökugjald á 1/4 m3 af óflokkuðum úrgangi er 4.600 kr.
Móttökugjald á 1/4 m3 af grófum úrgangi er 4.600 kr.
Móttökugjald á 1/4 m3 af lituðu timbri er 3.500 kr
Móttökugjald á 1/4 m3 af ólituðu timbri er 2.500 kr
Móttökugjald á 1/4 m3 af gleri er 4.000 kr.

Hægt er að greiða móttökugjaldið með greiðslukorti á staðnum eða fá reikning sendann eftirá.

Við heimili í sveitarfélaginu er, frá júní 2022, tunnur fyrir almennt sorp, pappa/pappír og plast. Fötur fyrir lífrænt sorp þurfa íbúar að nálgast í grenndargámastöðvum en upplýsingar um hvar þeir eru og hvernig losun er háttað má finna hér ofar á síðunni.

 

Hvað á að gera við textíl ?

Fram að 1. janúar 2025 var söfnun á textíl í höndum Rauða Kross Íslands og fór þannig fram að hér voru textílgámar á tveimur stöðum sem sveitarfélagið sá um að tæma og senda textíl til Rauða Krossins. Rauði Krossinn fór svo í gegnum það sem barst og tók í verslanir sínar og neyðaraðstoð það sem var nýtilegt en annað var sent úr landi. Verkefnið varð hinsvegar á endanum stærra en svo að Rauði Krossinn réði við það, enda gríðarlega mikið magn af textíl sem berst. Ný þurfa því sveitarfélög að finna sjálf út úr því hvernig þau safna textíl og hvað þau gera við hann.

Þar sem Skeiða- og Gnúpverjahreppur er með samning við Íslenska Gámafélagið um sorphirðu liggur beinast við að fá hjá þeim gám, þar sem öllum textíl er safnað sama og hann fer allur, óflokkaður, úr landi. Þessi flokkur er kostnaðarsamur og sá kostnaður lendir alltaf á íbúum.

Getum við ekki gert betur?

Jú, okkur langar að gera betur ! Mikið af þeim textíl sem berst í gáma eru heil og vel nýtanleg föt sem við getum komið í notkun og jafnvel skapað verðmæti úr. Við þurfum því að vera alveg heiðarleg og flokka textílinn okkar í tvo flokka: Heil föt, sem einhver getur og vill nota og svo allur hinn textíllinn: götótt eða mikið blettótt föt, slitin rúmföt, handklæði og fleira í þeim dúr.

Ef við stöndum okkur vel í að flokka nýtanleg föt frá hinu, þá sleppum við við að borga mikið fyrir urðun eða útflutning á þeim -og gætum jafnvel búið til einhver verðmæti úr þeim.

Hvað er endurnýtanlegt?

Það eru ekki öll sveitarfélög með sama kerfi og því ekki með sömu "reglur um flokkun" . Hér í SkeiðGnúp ætlum við að miða við þetta:

Nýtilegt: Föt sem eru heil og að mestu laus við bletti. Þetta er að sjálfsögðu alltaf háð mati hvers og eins og því mikilvægt að nota brjóstvitið. Stundum er í lagi að flík sé með litlu gati, til dæmis þegar um ræðir ullarnærföt sem oftast eru notuð undir önnur föt, hinsvegar eru stór göt á yfirhöfnum síður spennandi. Flestir kannast við endursölumarkaði eins og Krílafló eða Barnaloppuna og gott er að miða við að í þessum flokki, séu föt sem þú myndir vilja bjóða til sölu á slíkum markaði.

Þau mega vera mikið notuð ef þau eru enn nothæf.

Í þennan flokk mætti einnig setja aukahluti sem eru heilir, eins og heil belti, lítið notaða hatta, skó sem ekki hafa verið gengnir til, hanska, rúmföt sem eru stráheil og þú ert bara að losa þig við vegna þess að þú fékkst þér tvíbreiða sæng!?

Ekki nýtilegt: Það er eiginlega allt hitt... s.s allt það sem við myndum ekki nota áfram í því formi sem það er.

Hvert á ég að fara með textílinn?

Í bili verða gámar fyrir ónýtann textíl aðeins á gámasvæðinu okkar í Árnesi og hægt að henda í þá á hefðbundnum opnunartíma. Einnig er þar svo "textílgámur" þar sem hægt er að skila af sér nýtilegum textíl. Gámarnir líta svona út:

( Hér kemur mynd af gámunum, hvernig þeir eru merktir og hvar þeir eru staðsettir. )

Að setja nýtileg föt í réttan gám er gjaldfrjálst, en það sem fer í hinn gáminn, það sem er ónýtanlegt það er gjaldskylt þegar komið er með það á gámasvæðið og fylgir þá verðskrá eins og almennt sorp.

Með því að koma heilum textíl í endurnotkun komumst við nokkrum skrefum nær tveimur markmiðum okkar:

Hvað á að gera við lífræna?

Jarðgerður er nýr starfsmaður í áhaldahúsi, hún er vél og kemur til með að sjá um að breyta lífræna úrganginum okkar í moltu. Hér fyrir neðan má sjá stutt myndband af Jarðgerði vinna

Hvað má fara í jarðgerðarvélina?

Jarðgerðarvélin tekur við öllum almennum lífrænum eldhúsafgöngum. Flest allar matarleifar og lífræn efni geta farið í vélarnar. Td. kjöt, fiskur, mjólkurvörur, bjór, ávextir, grænmeti, brauð og kökur, grjón, eggjaskurn, smá bein, rækjuskeljar, ofl

 

Hvað má ekki fara í jarðgerðarvélina?

Hinsvegar eru það ákveðnir hlutir sem jarðgerast ekki, td. matarolía, maíspokar, stór kjötbein og úrgangur dýra og manna.

 

Má ekki

 

 

 

Hvernig söfnum við lífræna úrgangnum?

Til að sleppa við allt aukadót úr moltunni langar okkur að freista þess að sleppa bæði maíspokunum og pappírspokum og nota bara vel lokaðar fötur. Á þremur stöðum í sveitarfélaginu er hægt að nálgast tómar og hreinar fötur og skila af sér fullum fötum (sjá hvar hér fyrir neðan)

Þar sem nú taka í gildi lög um sorphirðu - sem segja að sveitarfélagið megi ekki niðurgreiða sorphirðu þá freistum við þess líka að

Ferli söfnunnar

 

Hvar er hægt að skila af sér fullri fötu og sækja tóma fötu?

Hægt er að skila af sér fötum á þremur stöðum í hreppnum; á Grenndarstöðvum í Árnesi og í Brautarholti og svo í Áshildarmýri þar sem er ekki grenndarstöð en skápur til að skilja eftir fötu - ætlaður fyrir þá sem eru oftar á leið suður úr sveitarfélaginu heldur en uppeftir í átt að Árnesi eða Brautarholti. Hér fyrir neðan má sjá skýringarmyndir:

 

Grenndarstöðin í Árnesi

 

 

Grenndarstöð Brautarholti

 

Söfnunarstöð í Áshildarmýri

Hvernig virkar Jarðgerður?

Með aðstoð örvera og hita er lífrænum úrgangi breytt í næringarríkan lífrænan áburð á skemmri tíma en áður hefur þekkst. Við lok ferlisins fer sótthreinsun á áburðinum fram þegar hitastig nær 70°C í nokkrar klukkustundir sem tryggir örugga notkun áburðarins að loknu jarðgerðarferli. Lausn sem hentar öllum, heimilum, skrifstofum, mötuneytum og sveitarfélögum.

 

Er moltan sem verður til góð til gróðurræktar?

Moltan úr jarðgerðinni inniheldur mikilvæg næringarefni s.s. köfnunarefni (N), fosfór (P) og kalíum (K) sem spila lykilhlutverk í vexti plantna og jurta og geta komið í veg fyrir notkun á innfluttum áburði.

 

 

 

 

 

Flokkunarleiðbeiningar fyrir plast og pappatunnurnar má finna hér fyrir neðan en leiðbeiningar um flokkun í lífræna má finna hér efst á síðunni.

 

 

Hér fyrir neðan má finna tengla inn á helstu upplýsingar og leiðbeiningar tengdum sorpmálum í sveitarfélaginu:


                                                     

Rotþrær

Um hreinsun rotþróa í sveitarfélaginu sér Seyrufélagið - samstarfsverkefni sex sveitarfélaga á suðurlandi.

Gott aðgengi að rotþró tryggir hreinsun. Sjá tilkynningu :

Á heimasíðu Seyruverkefnisins - Seyra.is má finna allar upplýsingar um hreinsunaráætlunina, hvenær þín rotþró var hreinsuð síðast, hvert skal hringja í neyðartilvikum, hvað gæti mögulega verið að hrjá rotþró sem lyktar illa og fleira í þeim dúr. Símanúmer þjónustufulltrúa Seyruverkefnisins er 480-5550 en einnig er hægt að senda póst á netfangið seyra@seyra.is