Maður er ekki gamall fyrr en eftirsjá kemur í stað drauma
Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er lögð mikil áhersla á félagslega og líkamlega heilsu eldriborgara. Gott samstarf hefur verið á milli sveitarfélagsins og Félags eldriborgara í Skeiða- og Gnúpverjahreppi varðandi reglulegt félagsstarf og annað sem sveitarfélagið getur komið að.
Eldri borgarar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi fá til að mynda frítt í sundlaugar og líkamsræktarstöðvar sveitarfélagsins. Til að fá þann aðgang þarf að gefa sig fram við starfsfólk í sundlaugum sveitarfélagsins eða hafa samband við forstöðumann sundlauga, Viktoríu Rós Guðmundsdóttur viktoriaros@skeidgnup.is
Félag eldriborgara í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Félagið er opið öllum, miðað er við 60+ en sé áhugi á að byrja fyrir þann aldur er engum vísað frá.
Formaður félagsins er Bergljót Þorsteinsdóttir og er um að gera að hafa samband við hana í síma: 864 5534
Félagið stendur annan hvern þriðjudag fyrir kaffispjalli kl. 13.30 í gamla bókasafnshúsinu í Brautarholti. Haustið 2026 er síðasta kaffispjallið áætlað þann 8. desember en hefst svo aftur í janúar. Stundum eru þessir fundir brotnir upp með áhugaverðum heimsóknum og fyrirlestrum.
Dagskrá kaffifunda ásamt annarri skemmtidagskrá og viðburðum félagsins má finna á facebook síðu félagsins:
Líkamsrækt eldri borgara
Á veturna er boðið upp á hreystitíma tvisvar í viku í líkamsræktinni í Skeiðalaug. Tímarnir eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10 - 11 og þarf bara að mæta á staðinn til að vera með. Hreystitímarnir eru í boði Skeiða- og Gnúpverjahrepps og eru því gjaldfrjálsir fyrir eldri borgara sveitarfélagsins.
Á veturna hefur oft einnig verið boðið upp á sundleikfimi fyrir eldri borgara en upplýsingar um það er að finna hjá félagi Eldri borgara í SkeiðGnúp
Félagsleg aðstoð, matur og fleira
Allt sem viðkemur formlegri aðstoð eins og heimaþjónusta við aldraða, félagslegur persónulegur stuðningur og niðurgreiðslur á heitum mat fer í gegnum Skóla og Velferðarþjónustu Árnesþings. Allar upplýsingar um þá þjónustu má finna á heimasíðu velferðarþjónustunnar: www.arnesthing.is