Tengsl við nátttúruna eru leiðarljós í starfi Þjórsárskóla

Nú styttist í skólabyrjun og mörg spennandi verkefni eru framundan hjá Þjórsárskóla. Nú í ágúst tóku kennarar þátt í tveggja daga námskeiði, sem sett var af stað af Skólaþjónustu Árnesþings. Verkefnið verður í gangi í allan vetur og markmiðið með því er að efla teymiskennslu og auka fjölbreytni í kennsluháttum þannig að nám verði sem mest við hæfi hvers og eins.

Viðhorfskönnun um áhrif Hvammsvirkjunar á landslag

Viðhorfskönnun um áhrif Hvammsvirkjunar á landslag og ásýnd að ljúka.  Í samræmi við ákvörðun Skipulagsstofnunar um að endurskoða skuli umhverfismat virkjunarinnar hvað varðar áhrif á landslag og ásýnd lands og áhrif á ferðaþjónustu og útivist var farið í viðbótarrannsóknir um viðhorf íbúa og sumarhúsaeigenda vegna þessara umhverfisþátta.  Dagana 13. til 15.júlí og 20.júlí var könnun framkvæmd og var hún gerð innan  5 km radíus frá framkvæmdarsvæði. Tveir starfsmenn frá EFLU verkfræðistofu heimsóttu bæi og bústaði innan þessa fyrirfram skilgreinda svæðis, útskýrðu könnunina og skildu eftir spurningalista, kort og önnur nauðsynleg gögn ásamt frímerktum umslögum.

Fréttabréf ágúst komið út.

Fréttabréfið er komið út og margt er að lesa hér  Það kemur í hús í fyrramáliðVil vekja athygli á bls 12 en þar er pistill frá þeim Birtu og Láru starfsmönnum Eflu en þær  biðja fólk að svara könnun þeirri er komið var með í hús dagana 13., 15. og 20. júlí. s.l.um áhrif Hvammsvirkjunar á landslag og ásýnd.

Útleiga á fjallaskálanum í Hólaskógi

Skeiða – og Gnúpverjahreppur óskar eftir tilboðum í leigu á fjallaskálanum í Hólaskógi á Gnúpverjaafrétti. Leigutími 5 ár. Um er að ræða tveggja hæða hús í góðu ástandi, byggt úr timbri árið 1998. Gistirými er fyrir allt að 60 manns. Flatarmál hússins er samtals 268,6 fermetrar eða 856 rúmmetrar. Það stendur á 2.500 fermetra lóð. Húsið verður til sýnis eftir samkomulagi við sveitarstjóra. Tilboðum skal skila í lokuðu umslagi á skrifstofu Skeiða- og Gnúpverjahrepps, merkt Hólaskógur leiga fyrir 30 ágúst  nk. Gögn vegna málsins sem og nánari upplýsingar afhendir/veitir Kristófer Tómasson sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps í síma 486-6100 eða 861-7150 netfang kristofer@skeidgnup.is   

Stuðningsfulltrúi óskast í 80 % starf í Þjórsárskóla

Stuðningsfulltrúi óskast í 80 % tímabundið starf í Þjórsárskóla í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Viðkomandi þarf helst að hefja störf  22 ágúst nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir: Bolette Höeg Koch skólastjóri sími 486-6000 og 895-9660 netfang bolette@thjorsarskoli.is Umsóknarfrestur er til 19. ágúst næstkomandi.

Sveitarstjórnarfundur nr. 32. boðaður 10.ágúst kl.14:00 í Árnesi

             Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps í Árnesi miðvikudaginn 10.08. kl.14:00       

Mál til afgreiðslu og umfjöllunar.

1.    Vindmyllur á Hafinu. Staða verkefnis. Margrét Arnardóttir frá Landsvirkjun mætir til fundar.

Auglýst er eftir starfsmanni í eldhús/ræstingar!

Leikskólinn Leikholt auglýsir eftir starfskrafti í eldhús/ræstingar. Um er að ræða 90% starf í fjölbreyttu starfi. Hluti starfsins felur í sér að taka á móti matnum sem kemur frá Árnesi, framreiða og ganga frá, ræsta þarf húsið og leysa af inn á deild. Laun eru samkvæmt kjarasamningum. Starfsmaður þarf að geta byrjað að vinna frá og með 1. september en möguleiki er að byrja að vinna fyrr.

Starfsmann vantar í 75 % starfshlutfall í mötuneyti

Starfsmann vantar í 75 % starfshlutfall í mötuneyti Flúðaskóla. Laun samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og Bárunnar. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf 15. ágúst 2016.

Upplýsingar veita Guðrún Pétursdóttir skólastjóri í síma 8471359 eða senda póst á gudrunp@fludaskoli.is og Bjarni Birgisson í síma 8993532

Umhverfisverðlaun 2016

Umhverfisverðlaun Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2016 voru veitt  þann 3. ágúst s.l.  Formaður Umhverfisnefndar sveitarfélagsins, Anna María Flygenring, afhenti verðlaunin og hafði nefndin  veg og vanda af valinu. Nefndarfólki  fannst það ekki erfitt að komast að niðurstöðu um að Þrándarholt ætti þessi verðlaun svo sannarlega skilið.