- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu var undirrituð föstudaginn 11. desember í sal slökkviliðsins í Björgunarmiðstöðinni. Það voru sveitarstjórar í sýslunni eða fulltrúar þeirra ásamt formanni fagráðs BÁ, forstjóra Mannvirkjastofnunar og settum slökkviliðsstjóra BÁ Selfossi sem munduðu pennann af því tilefni. Áætlunin er búin að vera í vinnslu um allnokkurt skeið. Fyrir undirritun áætlunarinnar var hún tekin fyrir af öllum sveitarstjórnum í Árnessýslu þar sem hún hlaut samhljóða samþykki. Brunavarnaáætlun er grunnur að gæðastjórnun og jafnframt úttekt á starfseminni og reglugerð til notkunar fyrir þá sem ábyrgð bera á brunavarnamálum sveitarfélaganna sem að áætluninni standa. Sveitarstjóri. Brunavarnaáætlun. Lesa hér
Kosning er nú hafin, utan kjörfundar, um nafn á sveitarfélagið, á opnunartíma skrifstofu sveitarfélagsins í Árnesi (mánud.—fimmtud. kl. 09-12 og 13-15 og föstud. kl. 09-12)og stendur hún frá 15. desember til og með föstud. 8. janúar 2016. Kjörskrá liggur frammi á skrifstofunni á sama tíma. Kjörfundur verður laugardaginn 9. janúar 2016 kl.10 -18 í Bókasafninu í Brautarholti. Sömu reglur gilda um þessar kosningar og þegar kosið er til sveitarstjórnar.
Fréttabréf desember er komið út LESA HÉR Meðal efnis: Pistill frá oddvita og sveitarstjóra, auglýsingar um fjölskylduhátíð Landstólpa, kosningar, skötuveislu, jólaball, hattaball og margt fleira. Aðsend grein um virkjanir, Smárafréttir og fleira. Gleðilega hátíð.
Ekki tókst að halda íbúafund um samfélagsleg áhrif virkjana síðasta laugardag vegna veðurs. Nýr fundartími er kl 11:00-14:00 á laugardaginn næstkomandi, þann 12. desember. Fundurinn verður haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Til fundarins boðar faghópur III, sem meta á samfélagsleg áhrif virkjanakosta í þriðja áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar (sjá www.ramma.is). Íbúum Ásahrepps, Flóahrepps, Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps er boðið til fundarins og stefnt er að því að ræða ýmis samfélagsleg áhrif virkjana.
Ákveðið hefur verið að fella niður skólahald í Þjórsárskóla í dag, þriðjudaginn 8. desember. Einnig er Leikskólinn í Brautarholti lokaður í dag, 8. desember. Allt verður vonandi með eðlilegum hætti miðvikudaginn 9. desember.
Veðurstofan hefur sent frá sér meðfylgjandi Viðvörun (sjá viðhengi). Veðurspá og viðvörun sjá hér Veðurstofunni, sunnudaginn 6. desember 2015 kl. 12:00 Langt suður í hafi er nú lægð í myndun. Hún dýpkar með eindæmum hratt í nótt og er þrýstingi í miðju hennar spáð 944 mb seint annað kvöld og á hún þá að vera stödd suður af Reykjanesi. Á þeirri stundu verður 1020 mb hæðarhryggur skammt N af Scoresbysundi á austurströnd Grænlands og heldur hann á móti lægðinni. Saman valda þessi tvö veðrakerfi vindstyrk af styrk ofsaveðurs eða fárviðris yfir Íslandi.
Bakvakt almannavarnadeildar vekur athygli á spá veðurstofunnar, sjá tilkynningu Veðurstofunnar í viðhengi. Veðurstofan vill vekja sérstaka athygli á eftirfarandi: Viðvörun: Búist er við stormi (meðalvindi yfir 20 m/s) á landinu síðdegis á morgun ( föstudag) og ofsaveðri (meðalvindi yfir 28 m/s) við Öræfajökul, Mýrdalsjökul, Eyjafjöll og í Vestmannaeyjum.
Faghópur III býður íbúum Ásahrepps, Flóahrepps, Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps til opins íbúafundar til að ræða samfélagsleg áhrif virkjanakosta í Þjórsá.
Til fundarins boðar faghópur III, sem meta á samfélagsleg áhrif virkjanakosta í þriðja áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar (sjá www.ramma.is).
Örnefnanefnd hefur kveðið upp úrskurð um hver þeirra átta nafna sem tillögur bárust um sé heimilt að nota. Sveitarstjóri sendi nefndinni fyrir hönd sveitarstjórnar erindi í byrjun nóvember þar sem þess var óskað.
Tillögurnar eru eftirtaldar : Eystribyggð · Eystrihreppur · Skeiða- og Gnúpverjahreppur · Vörðubyggð · Þjórsárbakkar · Þjórsárbyggð · Þjórsárhreppur og Þjórsársveit.