Seinni ferð STRÆTÓ fellur niður 11. sept. úr Árnesi
Seinni ferð Strætó kl.16:22 Árnes - Sandlækjarholt - Árnes. LEIÐ 76 fellur því miður niður föstudaginn 11. sept vegna fárreksturs á vegi nr. 32 Þjórsárdalsvegi.
Seinni ferð Strætó kl.16:22 Árnes - Sandlækjarholt - Árnes. LEIÐ 76 fellur því miður niður föstudaginn 11. sept vegna fárreksturs á vegi nr. 32 Þjórsárdalsvegi.
Fréttabréf september er komið út lesið hér þar eru auglýsingar um dansleiki, tónleika, Yoga, leikifimi og á bls. 3 er auglýsing fyrir ökumenn dagana 10., 11. og 12. september . En þá daga geta orðið verulegar tafið á umferð á þjóðvegum nr. 30 og 32 Skeiðavegi og þjórsárdalsvegi þessa dag. Einnig auglýst á síðu Vegagerðarinnar og lögreglunnar ásamt auglýsingu í Dagskránni og hér á heimasíðunni. Fylgist vel með því t.d seinnipart fimmtudagsins 10. sept er vegurinn svo að segja lokaður frá Haga að Fossnesi til kl. 21:00 um kvöldið.
Gámasvæðið við Árnes hefur verið flutt. Nú stendur það við E– götu vestan Suðurbrautar í Árnesi.
Opið eins og áður: þriðjudaga kl. 14:00 - 16:00 laugardaga kl. 10:00 - 12:00
Gámasvæðið við Brautarholti er á sínum stað. þar er opið:
miðvikudaga kl . 14:00 - 16:00
laugardaga kl. 13:00 - 15:00
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi
Aðalskipulagsmál
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing fyrir eftirfarandi aðalskipulagsverkefni:
Réttarball verður haldið í Árnesi föstudaginn 11. september. Húsið opnar kl. 22:00 - 02:00. 20 ára aldurstakmark. 2.500,- kr inn.
Vetraropnun frá 1. sept. - 1. nóv. 2015 - Skeiðalaug
Brúnn graðhestur 2- 4 vetra gamall ómerktur og ómarkaður var handsamaður 1 ágúst sl í Steinsholti. Hrossið er í vörslu Björns Jónssonar að Vorsabæ 2. Þeir sem kannast við lýsinguna á hrossinu, er bent á að hafa samband við Björn í síma 861-9634 eða sveitarstjóra í síma 486-6113.
Rauðjarpt mertrippi 2-3 vetra gamalt ómerkt og ómarkað fannst 16. júlí sl. í Þjórsárdal. Hrossið er í vörslu Bjarna Mássonar í Háholti.
Nú hefur Fréttabréf ágústmánaðar litið dagsins ljós eftir sumarfríið og heilmikið að LESA HÉR Á bls. 2 eru auglýsingar frá Afréttarmálafélögunum, bls. 6 Nýja heimasíðan, bls.7 Framkvæmd kosninga um nýtt nafn bls.8 Frá umhverfisnefnd bls. 9 Hrunaprestakall, messuplan bls. 12 & 13 aðsendar greinar bls.14. 17. fundargerð sveitarsjórnar og margt fleira.
Auglýst er eftir umsjónarmanni Skólasels Flúðaskóla Vinnutími er eftir að skóla lýkur til kl 16:15 frá mánudegi til fimmtudags.
Viðkomandi þarf að: · Vera jákvæður ·vera sjálfstæður í vinnubrögðum ·hafa gaman af því að starfa með börnum.
Starfshlutfall 30 – 60 % eftir samkomulagi. Íslenskukunnátta áskilin.
Uppsveitahringurinn verður haldinn í Reykholti laugardaginn 15. ágúst. Þátttakendur verða ræstir sem hér segir: Kl. 10.00 - 46 km keppnishjólreiðahópur leggur af stað og endar í Reykholti Kl. 10:30 - 10 km keppnishlauparar leggja af stað frá Flúðum og enda í Reykholti Kl. 10:30 - 10 km hjólreiðahópur leggur af stað frá Flúðum og endar í Reykholti Kl. 13:00 - Krakkahlaup á íþróttavellinum 400 metrar Kl. 13:30—Verðlaunaafhending og frábær skemmtidagskrá—Tvær úr Tungunum.