Hertar sóttvarnaaðgerðir

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum tóku í gildi hertar sóttvarnareglugerðir á miðnætti. Sundlaugarnar okkar eru því lokaðar, Grunnskólinn kominn í snemmbúið páskafrí, 7. bekkur sem var í skólabúðunum á Reykjum er á leiðinni heim og ýmsum viðburðum sem halda átti hér í Árnesi hefur verið aflýst eða frestað. Nákvæmar leiðbeiningar um þær reglur sem eru í gildi og hversu lengi þær gilda má finna hér.

Gaukurinn í mars 2021

Gaukurinn - hlaut flest atkvæði sem nafn á rafrænu fréttabréfi og hér er kominn Gaukur marsmánaðar

58. fundur sveitarstjórnar 24 mars 2021

58. Sveitarstjórnarfundur

Fundarboð

Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða og Gnúpverjahrepps

í Árnesi  24 mars, 2021 klukkan 16:00.

Skipulagsauglýsing v. Hvammsvirkjunnar

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst sameiginleg tillaga að deiliskipulagi fyrir Hvammsvirkjun

Hvammsvirkjun, deiliskipulag virkjunar í Þjórsá.

Bæklingur um meðferð rúlluplasts

Alltaf annað slagið lenda starfsmenn Íslenska Gámafélagsins í vandræðum með að sækja rúlluplast heim á bæina. Félagið gaf á síðasta ári út góðan bækling um meðferð og frágang á rúlluplasti sem finna má hér (og vistaður er undir þjónusta - Sorpmál hér á síðunni)

Fundarboð 57. fundar sveitarstjórnar 3.mars 2021

57. Sveitarstjórnarfundur

Fundarboð

Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða og Gnúpverjahrepps

í Árnesi  3 mars, 2021 klukkan 16:00.

Samstarf – stofnframlög til byggingar á íbúðarhúsnæði

Skeiða- og Gnúpverjahreppur leitar eftir samstarfsaðilum um byggingu íbúða með hagkvæmum hætti í byggðakjörnum sveitarfélagsins. Horft er til þess að sveitarfélagið komi að verkefnum sem þessum með 12 % stofnframlagi. Auk þess verður lagt upp með að stofnframlög á grunvelli laga nr. 52/2016 um almennar íbúðir komi  til verkefnanna frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Rafrænt fréttabréf - fyrsta tilraun

Þá er komin fyrsta tilraun til rafrænnar útgáfu einskonar fréttabréfs Skeiða og Gnúpverjahrepps. Að svo stöddu stendur ekki til að gefa blaðið út á pappír nema bara fyrir 70 ára og eldri og fá þeir blaðið sent heim. Þrátt fyrir mikil heilabrot á skrifstofunni náðum við ekki niðurstöðu um hvað bleðillinn/blaðið ætti að heita og leitum við því til íbúa sveitarfélagsins eftir hugmyndum að nafni! Hugmyndir má gjarnan senda á netfangið hronn@skeidgnup.is

Hvað er samfélag?

Ég get allt eins spurt hvað er sveitarfélag eða hvað er mannfélag. Í hvernig samfélagi viljum við búa? Nútíminn gerir kröfur um góða þjónustu. Ekkert samfélag verður rekið án þess að börnin geti sótt leikskóla eða grunnskóla. Sorpið þarf að hirða og velferðarmálum þarf að sinna þar með er talin þjónusta við fatlaða og aldraða. Stjórnsýslulegar ákvarðanir þarf óhjákvæmilega að taka. Það þarf að hafa fólk í vinnu til að uppfylla þær samfélagslegu skyldur sem lagðar eru á sveitarfélög. Þetta kostar allt útgjöld. Samspil milli tekna og útgjalda verður alltaf línudans. Þeim tekjum sem koma í kassa sveitarfélagsins hefur verið útdeilt jafnharðan til rekstrar innviða. Ekki hefur verið safnað í sjóði.

Fasteignagjöld í Skeiða og Gnúpverjahrepp

Upphafsálagningu fasteignagjalda í Skeiða-og Gnúpverjahrepp er nú lokið fyrir árið 2021. Álagningaseðlar eru ekki sendir út en hægt er að nálgast þá á heimasíðunni www.island.is en þar eru þeir aðgengilegir á „Mínar síður“ undir kassa merktur Pósthólf. Innskráning er með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Greiðsluseðlar eru ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað en kröfur vegna fasteignagjalda koma inn í heimabanka viðkomandi gjaldanda og birtast þar. Nánari upplýsingar um álagningareglur Skeiða- og Gnúpverjahrepps má finna á álagningarseðlinum og á heimasíðu sveitarfélagsins (hér)