Atvinnustefna 2017-2019
Atvinnustefna Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2019 sem unnin var af Atvinnu- og samgöngumálanefnd sveitarfélgsins er HÉR - Í henni gefur að líta markaða stefnu í atvinnumálum í sveitarfélaginu fyrir þrjú ár.
Ávarp oddvita.
Atvinnustefna Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2019 sem unnin var af Atvinnu- og samgöngumálanefnd sveitarfélgsins er HÉR - Í henni gefur að líta markaða stefnu í atvinnumálum í sveitarfélaginu fyrir þrjú ár.
Ávarp oddvita.
Fréttabréf mars er komið út LESA HÉR. Það er stútfullt af fréttum og auglýsingum um ýmis konar viðburði sem lesa þarf vandlega.
Samþykkt hefur verið Viðbragðsáætlun Almannavarna LESA HÉR sem unnin var af Víði Reynissyni, hjá Almannavörnum á Suðurlandi , Lögregstjóranum á Suðurlandi og sveitarfélaginu. Greint hefur verið hvers konar samfélagsleg áföll geta hent íbúa sveitarfélagsins og unnin hafa verið langtímaviðbrögð sveitarfélagsins Skeiða- og Gnúpverjahrepps við þeim.
Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps í Árnesi miðvikudaginn 7. mars 2018 kl. 14:00.
Dagskrá:
Mál til umfjöllunar og afgreiðslu :
Fundargerðir
Styrktarmál
Umsagnir og annað.
Boðað er til 56. fundar í sveitarstjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps í Árnesi miðvikudaginn 21. febrúar 2018 kl.14:00.
Mál til umfjöllunar og afgreiðslu:
Fundargerðir
Umsagnir
Mál til kynningar :
Varðandi snjómokstursreglu á Þjórsárdalsvegi frá Skeiða og Hrunamannavegi að Búrfelli. Þessa leið á að moka fimm daga vikunnar sem eru:
sun, mán, mið, fim og föstudag. Stefna á að að vegurinn sé fær virka daga:frá kl.07:00 til 19:30 í Árnes og 08:00 til 17:00 í Búrfell. Um helgar.
Skeiðavegur – Árnes 08:30 til 19:30. Árnes- Búrfell 09:00 til 17:00. Þjórsárdalsvegur er í þjónustuflokki 3 og upplýsingar á um þjónustuflokka Vegagerðarinnar eru inn á vegagerdin.is
Fréttabréf febrúar 2018 er komið út LESA HÉR. Fréttir frá Hestamannafélaginu, Þjórsárskóla, Leikholti. Sveitarstjórapistill og ýmislegt annað ásamt því að sorphirðudagatal 2018 fyrir sveitarfélagið er sent með. Fréttabréfið átti að koma með póstinum þann 14. febrúar en kemur á morgun föstudag 16. feb. þessi seinkun er vegna óveðursins sem fór yfir landið þann 14. ferbúar.
Skólahald fellur niður í Þjósrárskóla í dag vegna veðurs og ófærðar. Einnig veður leikskólinn Leikholt lokaður í dag. af sömu ástæðu, Sveitarstjóri
Laus er til umsóknar staða skipulagsfulltrúa hjá Umhverfis- og tæknisviði uppsveita.
Að embættinu standa sveitarfélögin Grímsnes og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Flóahreppur og Ásahreppur.
Aðsetur skipulagsfulltrúa er að Dalbraut 12 á Laugarvatni.
Messa í Ólafsvallakirkju sunnudaginn 11. febrúar kl. 11:00. Minnst verður sr. Hallgríms Péturssonar með sálmum hans og sóknarpresturinn, sr. Óskar H.Óskarsson minnist hans í prédikun sinni.
Kirkjukórinn syngur og Þorbjörg Jóhannsdóttir leikur á orgelið.