Boðað til 9. sveitarstjórnarfundar 7. nóvember í Árnesi kl. 09:00
Mál til umfjöllunar og afgreiðslu :
Fundargerðir
Annað
Mál til kynningar :
Kristófer A Tómasson sveitarstjóri
Mál til umfjöllunar og afgreiðslu :
Fundargerðir
Annað
Mál til kynningar :
Kristófer A Tómasson sveitarstjóri
Leikskólinn Álfaborg i Bláskógabyggð auglýsir eftir deildarstjóra í 100% stöðu, í tímabundna ráðningu, frá 1. desember 2018 með möguleika á fastráðningu vegna stækkunar leikskólans. Einnig óskast leikskólakennari í 100% stöðu í ótímabundna ráðningu, sá þarf að geta hafið störf sem fyrst. Einnig kemur til greina að ráða í hlutastarf. Í leikskólanum starfar samstillt, glaðlynt og metnaðarfullt starfsfólk og mikil áhersla er lögð á góðan starfsanda og vellíðan barna. Auk þess er mikil og góð samvinna á milli leikskólans og grunnskólans Bláskógaskóla í Reykholti. Álfaborg er 2ja deilda leikskóli og er staðsettur til bráðabirgða í tveimur húsum í Reykholti, Biskupstungum, þ. á m. með aðalaðsetur í Bláskógaskóla. Nýtt húsnæði leikskóla er í smíðum og er áætlað að taka það í notkun haustið 2019.
Íþróttavikan: Á morgun, laugardaginn 27. október, ætlum við að leika okkur saman á sparkvellinum við Þjórsárskóla. Farið verður í ýmsa leiki sem margir kunna en einhverjir þurfa upprifjun á. Svo munum við örugglega læra einhverja nýja leiki. Ef þið skylduð vera búin að gleyma leikjunum, þá er hér fyrir neðan upptalning á nokkrum af þeim leikjum sem margir ættu að kannast við og gaman væri að fara í. Tilvalið að rifja þá upp áður en við hittumst á morgun. Vonumst til að sjá mömmur og pabba, afa og ömmur, frænkur og frændur með börnunum í leik. Leikir eru frábær hreyfing. Sjáumst á morgun kl. 13.00 við Þjórsárskóla (ef veður leyfir ekki útiveru verðum við inni í Árnesi).
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Umhverfisstofnun boða til fundar 25. október n.k. í Árnesi kl. 20:00. Lögð áhersla á fyrirhugaða friðlýsingu Gjárinnar í Þjórsárdal.
Hildur Vésteinsdóttir teymisstjóri friðlýsinga hjá Umhverfisstofnun hefur framsögu.
Vinna við ljósleiðara verður aðfaranótt fimmtudagsins 25.okt 2018. kl 00.00. Þ.e. vinna hefst á miðvikudagskvöldinu þann 24. okt. Rjúfa þarf streng sem tengir Brautarholt og Árnes saman. Áhrif þessa kunna að vara í allt að tvær klukkustundir.
Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps í Árnesi miðvikudaginn 24. október 2018 kl. 09:00.
Mál til umfjöllunar og afgreiðslu :
Mál til kynningar :
Kristófer A Tómasson sveitarstjóri
“Þessa dagana fer fram stór varnaræfing á vegum NATO sem fram fer að mestu leyti í Noregi. Undanfarna daga hafa bandarískir hermenn verið með undirbúningsæfingar á Íslandi, þó aðallega á Reykjanesi og við Keflavíkurflugvöll. Á morgun föstudag og laugardag munu hópar bandarískra hermanna vera með gönguæfingar í Þjórsárdal. Hermenn þessir verða klæddir í hermannafatnað og bera vopn, óhlaðin, en engin skotfæri eru leyfð á þessari æfingu. Tilgangurinn er að undirbúa þetta fólk til veru í slæmu veðri kanna þolmörk þess í göngu með þungan búnað. Ekki hafa verið settar upp lokanir vegna þessa og ekki gert ráð fyrir því að þetta trufli umferð að neinu leyti eða valdi neinu raski. Lögreglan á Suðurlandi, ásamt sérsveit Ríkislögreglustjóra verða með gæslu á svæðinu og þessu fólki til aðstoðar. “
Nú er Fréttabréfið komið út LESA HÉR og ýmislegt að venju þar, fréttir og auglýsingar. Á forsíðu er frétt um hinn merka fund í Þjórsárdal þar sem nýjar rústir af býli fundust og hefur býlið verið nefnt Bergsstaðir til heiðurs finnandanum, Bergi Þór Björnssyni frá Skriðufelli.
Fundist hefur áður óþekkt bæjarstæði í Þjórsárdal. Það var heimamaðurinn Bergur Þór Björnsson frá Skriðufelli sem fann bæjarstæðið. Fornleifafræðingar fóru á vettvang síðastliðinn föstudag og báru kennsl á nokkra merka forngripi í lausum jarðvegi. Þar er einna mætastur þórshamar úr sansdsteini, má leiða að því líkum hann hafi verið borinn um háls einstaklings fyrir 1.000 árum eða svo. Gefur það til kynna að þar hafi farið einstaklingur sem ekki var kristinnar trúar. Ekki hefur áður fundist þórshamar úr steini hér á landi. Auk þess fundust sylgja, alur og heinarbrýni. Meðal fronleifafræðinganna er Ragnheiður Gló Gylfadóttir sem hefur að undanförnu unnið að fornleifaskráningu fyrir sveitarfélagið. Að hennar sögn er um stórmerkilegan fund að ræða. Mikill áhugi sé á að kanna bæjarstæðið nánar. Bærinn hefur verið skírður Bergsstaðir í höfuð finnandans.
Nú eru göturnar Hamragerði og Heiðargerði í Árneshverfi að klæðast nýjum búningi. Þær eru að fá malbik. Þetta flokkast undir framfarir.