Heimsókn í Slakka
Leikskólinn Leikholt óskar eftir að ráða starfsmann í 57% stöðu í afleysingar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í skólanum.
Menntun og hæfniskröfur:
-
Leikskólakennararéttindi áskilin.
-
Sýni jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilja.
-
Góð færni í mannlegum samskiptum.
-
Áhugi og hæfni í starfi með börnum.
-
Góðir skipulagshæfileikar.
-
Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Meginverkefni:
-
Vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna.
-
Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra.
Leikskólinn Leikholt er Grænfána leikskóli þar vinna 9 starfsmenn og þar ríkir góður vinnuandi, við leggjum áherslu á ART þjálfun, mikla málörvun og læsi og kennslu í gegnum leikinn. Einkunnarorð leikskólans eru: Gleði, vinsemd og virðing.
Frekari upplýsingar veitir Elín Anna Lárusdóttir leikskólastjóri sími 486-5586/895-2995 og áhugasamir geta sent umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið leikholt@leikholt.is.
Fáist ekki leikskólakennari til starfsins er heimilt að ráða annan í stöðuna. Starfið hentar jafnt körlum sem konum og launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til 7. nóvember 2016.