- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Þorrablót Gnúpverja verður haldið í Árnesi föstudaginn 20. janúar 2017. Fyrsta Þorradag. Húsið opnað kl: 20:00 og dagskráin hefst kl: 20:45 Miðaverð: 6.500,- Miðapantanir: Bente s: 892 0626 Bjarni s: 862 4917Pantanir þurfa að berast fyrir þriðjudagskvöldið 17. jan. Fólk er beðið um að stilla miðapöntunum í hóf. Afhending miða fer fram í Árnesi fimmtudaginn 19.jan milli kl. 18:00 og 20:00. Hægt er að greiða miðana með því að leggja inn á reikningsnr: 0325-26-1243 kennitala: 181286-3699. Munið að senda kvittun á netfangið josefine@tolt.nu
Fréttabréf janúar er komið úr lesa hér Þorrablótsauglýsing á forsíðu skoðið hana. Skoðið eðluna á bak við eldvélina og fullt af öðru efni eins og venjulega.
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi
Aðalskipulagsmál
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar varðandi eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
Læknarnir í Uppsveitum Árnessýslu til meira en 30 ára, þeir Gylfi Haraldsson og Pétur Skarphéðinsson hafa nú látið af störfum. Þeir hafa verið einstaklega farsælir í sínum störfum og hlúð að heilsufari íbúanna með miklum sóma. Það má því ekki minna vera en þeir verði heiðraðir með kveðjuhófi. Hófið verður haldið fimmtudaginn 12 janúar nk. í Aratungu með fjölbreyttri dagskrá og kaffiveitingum og hefst það kl 19:00. Veislustjóri verður Halldór Páll Halldórsson rektor Menntaskólans á Laugarvatni. Við vonumst til að íbúar í læknishéraðinu sjái sér fært að mæta.
Þessi hryssa er ca 10 vetra, ekki verið á járnum í sumar og mjög spök. Hefur verið í högum Reykja um þó nokkurn tíma. Hún gæti hafa verið fædd brún, þar sem aðeins vottar fyrir litnum í faxi og tagli og hún er frekar nett. Eigandinn er góðfúslega beðinn um að vitja hennar og getur hringt í síma 486-6100 og fengið nánari upplýsingar.
Sjálfur Lögreglustjórinn á Suðurlandi Kjartan Þorkelsson heimsótti sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps miðvikudaginn 4 janúar. Með honum í för var Oddur Árnason yfirlögregluþjónn á Suðurlandi og Víðir Reynisson verkefnastjóri í Almannavörnum á Suðurlandi. Þeir félagar munu sækja allar sveitarstjórnir á Suðurlandi í á yfirstandandi vetri. Þeir greindu frá helstu verkefnum. Meðal annars var rætt um umferðareftirlit og átak gegn heimilisofbeldi. Komið var inn á skyldur sveitarstjórnarmanna samkvæmt Almannavarnarlögum.
30. desember opið 10—12 - 02. janúar 2017 opið eins og venjulega kl. 09—12 og 13—15. Opnunartímar skrifstofu eru mánudaga - fimmtudaga kl. 09 - 12 og 13 - 15 föstudaga kl. 09 - 12. Gleðilegt nýtt ár með þökkum fyrir það sem er að líða. Starfsfólk skrifstofu.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur óskar eftir matráði sem fyrst í mötuneyti grunn- og leikskóla. Um tímabundna afleysingu er að ræða vegna veikindaforfalla. Nánari upplýsingar veitir Kristófer Tómasson sveitarstjóri sími 486-6100 og 861-7150. Netfang : kristofer@skeidgnup.is
Skeiða- og Gnúpverjahreppur óskar eftir tilboðum í Útleigu á félagsheimilinu Árnesi, tjaldsvæði við Árnes ásamt rekstri mötuneytis fyrir skóla og grunnskóla sveitarfélagsins samkvæmt meðfylgjandi gögnum og öðrum þeim gögnum sem vísað er til.
1. Kynning útboðs. Útboð þetta er auglýst á heimsíðu sveitarfélagsins, í héraðsblöðum og Morgunblaðinu á tímabilinu 17- 31 desember 2016.