45 sveitarstjórnarfundur 23. ágúst kl. 14:00 í Árnesi
Boðað er til fundar í sveitarstjórn
Skeiða-og Gnúpverjahrepps í Árnesi 23. ágúst 2017 kl. 14:00. Mál til umfjöllunar og afgreiðslu :
Boðað er til fundar í sveitarstjórn
Skeiða-og Gnúpverjahrepps í Árnesi 23. ágúst 2017 kl. 14:00. Mál til umfjöllunar og afgreiðslu :
Fréttabréf ágústmánaðar er komið út LESA HÉR. Fundargerðir sveitarstjórnar eru komnar aftur og munu verða áfram birtar í Fréttabréfinu. Ýmislegt annað skemmtilegt efni og auglýsingar og tilkynningar eru í Fréttabréfinu okkar núna.
Skrifað var undir verksamning 11. ágúst 2017 milli Skeiða- og Gnúpverjahrepps og verktakafyrirtækisins Neseyjar ehf. Um er að ræða verkið "Árnes, Brautarholt, gatnagerð og fráveita 2017." Verkið felur í sér malbikun á götum í Árnesi og Brautarholti, gerð gangstétta og steyptra kantsteina. Einnig þarf að setja sandföng og regnvatnsniðurföll sem tengja þarf við núverandi regnvatnslög og jarðvegsskipta þarf hluta vegsniðs. Samningsupphæð samkv. tilboði verktaka er kr. 126.712.760,- og verkinu skal lokið 1. október 2018.
Ákveðið hefur verið að nemendur Þjórsárskóla þurfi ekki að greiða fyrir hin hefðbundnu námsgögn eins og stílabækur blýanta og annað það er nota þarf við námið komandi vetur.
Næsti sveitarstjórnarfundur verður haldinn 23. ágúst 2017 kl. 14:00. Erindi sem verða tekin fyrir á þeim fundi þurfa að berast fyrir helgina á undan eða 18. ágúst.
Fyrr á árinu voru upplýsingaskiltum komið fyrir við Háafoss og Hjálparfoss í Þjórsárdal. Texti á skiltunum er á ensku og íslensku.
Skrifstofa sveitarfélgasins er opin nú eins og venjulega kl. 09:00 -12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga - fimmtudaga. Einnig er opið á föstudögum kl. 09:00 -12:00. Sími í Áhaldahúsinu er 893-4426 og þar eru teknar pantanir í fjallaskálana Gljúfurleit, Bjarnarlækjarbotna og Tjarnarver til 09. ágúst.-, síminn er 893-4426. Bókanir í Félagsheimilið Árnes eru teknar í síma 486-6044 og bókanir fyrir Félagheimilið Brautarholt í síma 898-9172.
Glöggir lesendur vefs Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafa eflaust tekið eftir að fylgigögn vegna þeirra mála sem tekin eru til afgreiðslu á sveitarstjórnarfundum eru nú aðgengileg á vefnum. Þau eru staðsett neðan við hverja fundargerð. Auk þess eru sett þar inn skjöl vgna mála til kynningar.
Gögnin eru sett inn á vefinn í beinu framhaldi af því að fundargerðin er sett þar inn. Þetta á við um öll mál, nema tilkomi að sérstakur trúnaður þurfi að ríkja um mál.
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi. Aðalskipulagsmál. Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
1. Breyting á aðalskipulagi Flóahrepps í fyrrum Hraungerðishreppi 2003-2015 á spildu úr landi Langholts 1.
Sumarlokun skrifstofu hefst þann 10. júlí og stendur til og með 26. júlí n.k. Sími hjá starfsmanni Áhaldahúss er 893-4426, Ari Einarsson og hann mun einnig taka við bókunum í Glúfurleit, Bjarnalækjarbotna og Tjarnarver þennan tíma, ari@skeidgnup.is og í síma Áháldahússins 893-4426. Ari Thorarensen bókar í Klett og Hallarmúla, arith@simnet.is. Ef önnur erindi eru brýn má hafa samband við oddvita, Björgvin Skafta, 895-8432.