Auglýst er eftir starfsmanni í eldhús/ræstingar!

Reyniviðartré í blóma
Reyniviðartré í blóma

Leikskólinn Leikholt auglýsir eftir starfskrafti í eldhús/ræstingar. Um er að ræða 90% starf í fjölbreyttu starfi. Hluti starfsins felur í sér að taka á móti matnum sem kemur frá Árnesi, framreiða og ganga frá, ræsta þarf húsið og leysa af inn á deild. Laun eru samkvæmt kjarasamningum. Starfsmaður þarf að geta byrjað að vinna frá og með 1. september en möguleiki er að byrja að vinna fyrr.

Leikskólinn Leikholt er Grænfána leikskóli og hugsar því vel um umhverfið, varðandi flokkun, rafmagn, efni til þrifa og fleira. Í Leikholti vinna 9 starfsmenn og þar ríkir góður vinnuandi, við leggjum áherslu á ART þjálfun, mikla málörvun og læsi og kennslu í gegnum leikinn. Einkunnarorð leikskólans eru: Gleði, vinsemd og virðing.

Umsóknarfrestur er til 25. ágúst. Til að sækja um og/eða fá nánari upplýsingar er hægt er að senda tölvupóst með ferilskrá ásamt meðmælum á leikskoli@skeidgnup.is eða hringja í 486-5586 eða 895-2995 og tala við leikskólastjórann, Elín Anna Lárusdóttir, leikskólastjóri Leikholts.