Umhverfisverðlaun 2016

Þrándarholt í Gnúpverjahreppi
Þrándarholt í Gnúpverjahreppi

Umhverfisverðlaun Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2016 voru veitt  þann 3. ágúst s.l.  Formaður Umhverfisnefndar sveitarfélagsins, Anna María Flygenring, afhenti verðlaunin og hafði nefndin  veg og vanda af valinu. Nefndarfólki  fannst það ekki erfitt að komast að niðurstöðu um að Þrándarholt ætti þessi verðlaun svo sannarlega skilið.

Bærinn stendur hátt og er allt  vel upp byggt og  snyrtilegt og hefur svo verið um langt skeið.  Þegar komið er á hlaðið vekur eftirtekt  gamall Farmall, vel viðhaldinn og málaður.

Viðhald gamals bragga er einnig til sóma og hýsir hann Farmalinn á vetrum, því ekki er sá forngripur látinn standa úti. Ræktaðar eru matjurtir og blómagarður, og einnig hefur verið stunduð umtalsverð skógrækt, sem sést orðið langt að.

Ógróinn blettur finnst varla, en moð er keyrt í bakka við Þjórsá, sem brýtur dálítið á landi.

Ábúendur leggja kapp á að nota umhverfisvænar vörur til þrifa og fylgja auðvitað flokkun á sorpi.

Formaður sagði ábúendur í Þrándarholti vel að þessum verðlaunum komna og óskaði  umhverfisnefnd þeim innilega til hamingju og var þeim þar með afhent skiltið, sem sett er upp við afleggjara þeirra bæja er þennan heiður hljóta.

Þrándarholt hlýtur  umhverfisverðlaun Skeiða-og Gnúpverjahrepps árið 2016.

Til hamingju!

 

 

  • Ábúendur með viðurkenningarskiltið ásamt umhverfisnefnd, oddvita og sveitarstjóra