Rúlluplastið sótt þann 6. ágúst í Gnúpverjahrepp

Svona rétt til að minna okkur á,  þá nær Íslenska gámafélagið  í rúlluplastið í efri hluta sveitarfélagsins - Gnúpverjahrepp, þann 6. ágúst og neðri hlutann, Skeiðin þann 13. ágúst n.k. Gott er ef um mikið magn er að ræða ef bændur hefðu  tiltæk tæki til þess að aðstoða bílstjórann við að koma því á bílinn.

Álagningarskrá einstaklinga 2015

Álagningarskrá einstaklinga  um opinber gjöld  2015 mun liggja frammi á skrifstofu sveitarfélgasins þegar opnað verður eftir sumarfrí þann 04. ágúst n.k.  og er hún til skoðunar á skrifstofunni til 07. ágúst lögum samkvæmt. Álagningar og innheimtuseðlar eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra  rsk.is og skattur.is

Gnúpverjaafréttur - upprekstur

Afrétturinn opnar 10. júlí til upprekstrar. Æskilegt er að flutningur fjárins fari fram  á fleiri en færri dögum svo það nái að dreifa sér um afréttinn en bunkist ekki á lítið svæði fyrstu dagana. Heilmikið hefur gerst í gróðurfarinu síðustu daga. Gróður er orðinn prýðilegur í Skúmstungum og á fremsta hluta afréttarins. Er hærra dregur er gróður mun minni og er t.d. Starkaðsverið rétt að byrja að taka við sér. Snjór er víða í giljum og slökkum þegar hærra dregur og er m.a. vænn skafl yfir veginn innst á Langöldu og annar minni við Blautukvísl.  Ekki hefur enn verið farið innar á afréttinn til að kanna aðstæður.

Sumarlokun skrifstofu

Skrifstofa sveitarfélagsins verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með 6. júlí  og vinna hefst aftur þriðjudaginn 4. ágúst n.k.

AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL

AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL

Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi

Aðalskipulagsmál

Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi aðalskipulagsbreytingum: 

1.   Breyting á aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2003-2015 vegna færslu Hvammsvegar.

Velheppnuð Landnámshelgi

Dagana 19. - 21. júní var efnt til hátíðar í Árnesi til þess minnast landnámsmanna okkar sem námu setturst hér að í Skeiða og Gnúpverjahreppi og má þar nefna Ólaf tvennumbrúna er nam Skeiðin, Þránd hinn  mjögsiglandi Bjarnason er bjó  í Þrándarholti, Skafta Þormóðsson í Skaftholti og Þorbjörn laxakarl í Haga að ógleymdum Gauki Trandilssyni er bjó að Stöng í Þjórsárdal og er frægastur þeirra. Heiðruð var fortíð og nútíð sveitarinnar með glæsilegri dagskrá  í góðu veðri bæði úti og inni.

Tilllaga að matsáætlun - Búrfellslundur

Hér má lesa  tillögu að matsáætlun Búrfellslundar.

Má lesa hér

Einnig  eru hér lög um mat á umhverfisáhrifum.  Lesa hér.

Frumkvöðladagur Uppsveitanna 12. mars kl. 13:00-17:00

Frumkvöðladagur Uppsveitanna  verður haldinn fimmtudaginn 12. mars kl. 13:00-17:00.
Dagurinn er haldinn í samstarfi sveitarfélaganna í Uppsveitum Árnessýslu
og markmiðið er að stuðla að nýsköpun og eflingu atvinnutækifæra á svæðinu.

Tæknisvið Uppsveita óskar eftir starfsmanni, tímabundið

Tæknisvið Uppsveita er sameiginlegt svið fimm sveitarfélaga en þau eru Grímsnes- og Grafningshreppur, Bláskógarbyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Flóahreppur.  Verkefni tæknisviðsins eru margvísleg en þar á meðal er unnið að vatns-, hita, og fráveitumálum, gatnagerð, viðhald og nýbyggingar húsa, sorpmálum, vinnslu úrgangs og fleira sem til fellur. Einnig koma starfsmenn sviðsins að afleysingum hjá Skipulags- og byggingafulltrúaembætti Uppsveita.

Að sunnan á N4 - Skemmtileg heimsókn í Leikholt

 “Að sunnan”  á N4    Margrét Blöndal kom í heimsókn í leikskólann  Leikholt í Brautarholti  á Bóndadaginn  og hitti fólkið þar. 

Gleði, vinsemd og virðing ríkti þar  eins og alla aðra daga.

Kíkið á linkinn