Frumkvöðladagur Uppsveitanna 12. mars kl. 13:00-17:00

Við Fangabrekkugerðið
Við Fangabrekkugerðið

Frumkvöðladagur Uppsveitanna  verður haldinn fimmtudaginn 12. mars kl. 13:00-17:00.
Dagurinn er haldinn í samstarfi sveitarfélaganna í Uppsveitum Árnessýslu
og markmiðið er að stuðla að nýsköpun og eflingu atvinnutækifæra á svæðinu.

Frá hugmynd til framkvæmdar - hugað verður að því hvernig er að hefja atvinnurekstur eða þróa.  Stoðkerfið verður kynnt, styrkjamöguleikar og reynslusögum deilt.  Í lok fundarins hafa áhugasamir tækifæri til að viðra hugmyndir sínar við ráðgjafa.  Fyrirhugað er að fá á fundinn fulltrúa úr stoðkerfinu s.s. Nýsköpunarmiðstöð,  Atvinnuráðgjöf SASS og  Frumkvöðlasetri.
Staðsetning fundarins er á Cafe mika í Reykholti.
Nánari upplýsingar verða gefnar út síðar á heimasíðum sveitarfélaganna og í dreifibréfi.
Einnig má hafa sambandi við ferðamálafulltrúa asborg@ismennt.is
Óskað verður eftir skráningu þátttakenda.
Allir áhugasamir velkomnir. 

Ferðamálaráð Uppsveita Árnessýslu