Gaukurinn fréttabréf

Skeiða-og Gnúpverjaheppur hefur í langan tíma gefið út fréttabréf með kynningu á starfsemi sveitarfélagsins, auglýsingum um viðburði innansveitar sem utan, fundargerðum sveitarstjórnar auk ýmissa annarra skemmtilegra dagskrárliða eins og uppskriftir að mat, prjónaverkefnum og fleira.  Árið 2021 var Fréttabréf Skeiða og Gnúpverjahrepps lagt niður í sinni fyrri mynd en í staðin ákveðið að gefa út rafrænt fréttabréf sem hlaut, eftir íbúakönnun, nafnið Gaukurinn.   Haustið 2022 var svo aftur byrjað að prenta út fréttabréfið og senda á alla íbúa sveitarfélagsins, enn undir nafninu Gaukurinn.

Gjaldskrá auglýsinga í Gauknum má finna hér

 

Hér fyrir neðan má finna flest tölublöð Fréttabréfsins  og Gauksins, en vanti einhver inni á milli eða  tenglar eru óvirkir má gjarnan senda póst á hronn@skeidgnup.is til að hægt sé að laga það.