Líkamsrækt Skeiðalaugar
Nýr líkamsræktarsalur Skeiðalaugar var formlega tekinn í notkun þann 17. júní 2025. Byggt var yfir steypta planið fyrir neðan laugina og það innréttað til líkamsræktar. Inngangur á bakvið fyrir neðan sundlaugina.
Aðgangur í líkamsræktina fylgir með keyptum árskortum í Skeiðalaug. Við kaup á aðgangskortum fær viðkomandi aðgangskóða sem veitir aðgang að salnumá opnunartíma. Allur helsti búnaður til líkamræktar er á svæðinu, handlóð, ketilbjöllur, veggboltar, kaðlar, hringir, teygjur, sippubönd, stangir og rekki, hjól og róðravél svo eitthvað sé nefnt.
Stórir og rúmgóðir búningsklefar með sturtum eru í salnum og aðgengi upp í sundlaugina í gegnum stiga í turninum.
Verðskrá og opnunartími
Verðskrá:
Árskort einstaklinga: 40.000 kr
Einstaklingar 17 ára og yngri og einstaklingar 67 ára og eldri, búsett í Skeiða- og Gnúpverjahreppi , fá frían aðgang að líkamsræktinni.
Opnunartími:
Alla daga: 6:00 – 22:00
Börn þurfa að vera í fylgd með fullorðnum nema 14 – 15 ára geta framvísað skriflegu leyfi foreldra til að æfa ein.
Umgengnisreglur í líkamsræktinni
- Aðeins einstaklingar með árskort hafa aðgang að salnum.
- Hver og einn er á sinni eigin ábyrgð í salnum.
- Skilyrði er að ganga frá búnaði aftur á sinn stað eftir notkun.
- Vinsamlega gangið snyrtilega um og þrífið upp eftir ykkur og gangið frá öllu.
- Allt rusl fer í ruslatunnur og dósir í dósatunnu.
- Fara þarf varlega í þyngdir ef æft er ein/n.
- Gangið vel um búnaðinn og húsnæðið.
- Búnaður má ekki fara út úr húsinu.
- Sýnið öðrum sem æfa í salnum virðingu, hafið tónlist í eyrunum eða í hátalara með samþykki annarra á svæðinu.
- Börn yngri en 14 ára þurfa ávallt að vera í fylgd með fullorðnum og mega alls ekki vera eftirlitslaus.
- Farið ekki inn í salinn á útiskóm.
- Þegar hóptímar eru í gangi þá er hægt að æfa í innri salnum.
Ef einhverju er ábótavant og þarf að láta vita af er hægt að hafa samband við umsjónaraðila hússins, einnig ef það eru einhverjar spurningar:
Viktoría Rós – sími: 772-2484 – netfang: viktoriaros@skeidgnup.is