Flúðaskóli

Flúðaskóli er grunnskóli  þar sem nemendur stunda nám í 1. - 10. bekk. Skólinn er staðsettur á Flúðum í Hrunamannahreppi.

Nemendur í 10 bekk úr Skeiða- og Gnúpverjahreppi stunda nám í Flúðaskóla skólaveturinn 2025-2026 og er þeim ekið daglega þangað frá heimilum sínum.  Um 20 km eru á milli Flúða og  byggðakjarnanna, Brautarholts og Árness.

Skólastjóri Flúðaskóla er Jóhanna Lilja Arnardóttir og aðstoðarskólastjóri er Ingibjörg Bjarney Baldursdóttir.

Fræðslunefnd Hrunamannahrepps ber ábyrgð á stefnumótun sveitarfélagsins þar í skólamálum og fær til liðs við sig fulltrúa frá skólunum og heimilum. Skeiða-og Gnúpverjahreppur á tvo áheyrnafulltrúa í fræðslunefnd Hrunamannahrepps.

Fræðslunefndin hefur sett fram og samþykkt skólastefnu Hrunamannahrepps sem má skoða hér.

Flúðaskóli