Gjáin í Þjórsárdal

Gjáin er gljúfur í Þjórsárdal með mörgum vatnsuppsprettum og fossum. Gjárfoss er þeirra stærstur.

Í Gjánni rennur Rauðá sem sprettur upp í Rauðárbotnum milli Sandafells og Fossheiðar, miklu ofar á afréttinum. Hverfur hún síðan niður í sandinn á Hafinu svokallaða og kemur fram úr jörðinni aftur í Gjánni. Mikið hvannastóð er í kringum uppspretturnar, en líka margar tegundir mosa og grasa. Ákaflega friðsælt er þar og allt um kring er berjalyng sem teygir sig inn í Fossárdal því heilmikið er um ber í dalnum, einkum þó krækiber.

Nýr heimur opnast fyrir manni þegar litið er niður af brúninni austan megin hennar eftir að hafa ferðast yfir sandana á Hafinu og framar í dalnum. Frá Stöng er vinsælt að ganga að Gjánni og er það u.þ.b. 10 mínútna gangur. Gjáin