- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Raðnúmer fundar í WorkPoint skjalakerfi F202603-0010
Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.
Óskaði oddviti eftir því að bæta við einu máli á dagskrá, skipun á varamanni í kjörnefnd. Var það samþykkt samhljóða og verður nr. 33 á dagskrá.
Gerður Stefánsdóttir óskar eftir að bæta einu máli á dagskrá fundar, ósk um störf sveitarstjóra. Var það samþykkt samhljóða og verður mál nr. 34. á dagskrá.
Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:
1. Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu 2026-2031
Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu hefur verið samþykkt af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. HMS telur hana tilbúna til þess að vera lögð fyrir stjórn BÁ og sveitarstjórnir. Á fundi stjórnar Brunavarna Árnessýslu þann 20. mars síðastliðin var áætlunin samþykkt. Með tilkomu stafrænna brunavarnaáætlana breytist fyrirkomulag samþykktar á brunavarnaáætlunum sveitarfélaga. Horfið verður frá rafrænni undirskrift fulltrúa sveitarfélaga yfir í að sveitarstjórnir samþykki áætlunina með bókun sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu, auðkenni 09-03-2026 09:00 sem gildir til febrúar 2031.
2. Afskrift viðskiptakrafna
Lögð fram afskriftartillaga á viðskiptakröfum vegna ársins 2026. Búið er að varúðarniðurfæra kröfurnar en óskað er eftir heimild til að afskrifa þær að fullu úr bókhaldinu. Samtals afskrift er að upphæð 486.820 kr.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagða afskriftartillögu á viðskiptakröfum vegna ársins 2026.
3. Erindi til sveitarstjórnar frá Meike Witt
Lagt fram erindi frá Meike Witt þar sem hún hvetur oddvita að draga tilbaka bókun sem lögð var fram við 1. dagskrárlið á fundi sveitarstjórnar hinn 18. mars og vinna áfram að því að lýðræði og sérstaklega að réttur minnihlutans til að mótmæla sé gætt í sveitastjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps.
Oddviti leggur fram eftirfarandi bókun til að svara erindi Meike sem beinist til oddvita:
Að mati oddvita ríkir misskilningur á túlkun bókunar oddvita frá fundi sveitarstjórnar hinn 18 mars sl. þar sem hún snýr einungis að þeirri skýrslu sem oddviti hefur flutt í upphafi hvers sveitarstjórnarfundar. Þar hefur oddviti fjallað ítarlega um verkefni sín og mál sem hefur verið unnið að á milli funda. Bókun Axels. Á. Njarðvík frá sveitarstjórnarfundi þann 17. desember 2025 undir skýrslu oddvita lýsir vel hvernig umræða hefur verið undir skýrslu oddvita, en þar bókaði Axel eftirfarandi:
„Þegar veigamikil mál sem varða í raun sveitarfélagið til lengri tíma, þá ættu þau að eiga sitt upphaf í sveitarstjórn. Sýnt þykir að mikilvægi þessa fundarliðar sveitarstjórnar er lykill að farsæld verkefna. Umræður undir þessum lið hafa oft sinnis dregið fram megin umræðu áður en mál verða að málum. Eins sýnir þessi liður það að samtöl sem verða, gera málin skýrari og greinilegri og skapa breiðari grundvöll til formlegra mála. Mörg mál eiga sitt upphaf í skýrslu oddvita og ná að þroskast með aðkomu sveitarstjórnarmanna.“
Eins og fram kemur í bókun Axels, þá hefur umræða undir þessum dagskrárlið átt sér stað áður en mál verða að formlegum málum til umfjöllunar í sveitarstjórn. Þegar aftur á móti verður trúnaðarbrestur í slíkum umræðum þá ríkir ekki lengur traust til að halda áfram slíku óformlegu samstarfi.
Lögbundinn réttur til upplýsinga nær til þeirra gagna og upplýsinga sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Sá réttur verður ekki jafnaður við kröfu um áframhaldandi óformlegt samráð, munnlegar stöðuupplýsingar eða persónubundið upplýsingaflæði milli meiri- og minnihluta. Á hverju ári er framkvæmd stjórnsýsluúttekt á störfum sveitarstjórnar, sem við höfum staðist án athugasemda síðustu ár. Engin breyting verður á því verklagi og farið eftir öllum lögum og reglum og réttur minnihlutans að fullu tryggður samkvæmt lögum.
Gerður Stefánsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
Ég tek undir orð Meike Witt og andmæli hér með formlega ávirðingum oddvita í garð U-lista samkvæmt bókun hans á sveitastjórnarfundi þann 18.03.26.
Ég teldi eðlilegt og æskilegt væri að Haraldur drægi bókun sína til baka.
Í bókun hans liggja afar alvarlegar ávirðingar sem standast enga skoðun. Hafi oddviti ekki hug á að draga bókun sína til baka er hér með lögð fram krafa um að Haraldur leggi fram rök um í hverju trúnaðarbrestur U-lista gagnvart samfélaginu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sé fólgin.
Gunnar Örn Marteinsson lagði fram eftirfarandi bókun:
Hægt er að taka undir margt í erindi Meike Witt varðandi bókun oddvita um störf fulltrúa U-lista í sveitarstjórn. Hvers vegna oddviti skellir þessari bókun fram fyrirvaralaust er með öllu óskiljanlegt, ef meirihluti L-lista treystir sér ekki lengur til að starfa með minnihlutanum í sveitarstjórn þá hefði verið hægt að gera það án þess að valta yfir fulltrúa U-lista með þeim hætti sem gert var. Fulltrúi U-lista hefur í störfum sínum alltaf sýnt af sér kurteisi og komið fram af prúðmennsku.
4. Viðskiptasamningur vegna lánalínu
Lagður fram uppfærður viðskiptasamningur við Landsbankann er snýr að lánalínu sem gildir til október 2026. Í uppfærðum viðskiptasamningi er lánalínan framlengd til mars 2028 ásamt því að heimild lánalínunnar er aukin um 225 milljónir í samræmi við lánsheimild í núverandi fjárhagáætlun fyrir árið 2026.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum framlagðan viðskiptasamning við Landsbankann og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn.
Gerður Stefánsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.
Forsendur sem lágu fyrir undir þessum dagskrárlið voru takmarkaðar. Forsendur eru flóknar og byggja á ýmsum ákvörðum langt aftur í tímann. Ég teldi æskilegt að gera heildstæðari samantekt á forsendum og áhættum fyrir sveitafélagið til að ég geti greitt þessari ákvörðun atkvæði mitt.
5. Vorfundur Héraðsskjalasafns Árnesinga 2026
Skipa þarf fulltrúa Skeiða- og Gnúpverjahrepps til að sækja vorfund Héraðsskjalasafns Árnesinga 2026.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að skipa Harald Þór Jónsson oddvita sem fulltrúa á vorfund Héraðsskjalasafns Árnesinga 2026.
6. Vorfundur Listasafns Árnesinga 2026
Skipa þarf fulltrúa Skeiða- og Gnúpverjahrepps til að sækja vorfund Listasafns Árnesinga 2026.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að skipa Harald Þór Jónsson oddvita sem fulltrúa á vorfund Listasafns Árnesinga 2026.
7. Vorfundur Byggðasafns Árnesinga 2026
Skipa þarf fulltrúa Skeiða- og Gnúpverjahrepps til að sækja vorfund Byggðasafns Árnesinga 2026.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að skipa Harald Þór Jónsson oddvita sem fulltrúa á vorfund Byggðasafns Árnesinga 2026.
8. Óskað eftir umsögn og samþykki sveitarstjórnar vegna akstursíþróttakeppni.
Vegurinn á þessari leið, sem kallast í gögnum Hluti 2- leggur 4 og 5, er mjög viðkvæmur og ógreinilegur. Stór hluti áætlaðrar leiðar á Flóa- og Skeiðamannaafrétti og Gnúpverjaafrétti er á mjög viðkvæmum vistgerðum sem verður auðveldlega raskað. Sem dæmi er votlendi með viðkvæmum dýjamosa sem auðveldlega raskast. Leiðin liggur jafnframt um friðlýst svæði, sem auðvelt er að villast á leið fyrir þá sem ókunnugir eru. Í engu er gert grein fyrir áhrifum eða áhættu vegna annara ferðahópa, svo sem gangandi, ríðandi eða hjólandi, á viðkomandi svæði
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafnar með fimm atkvæðum að leyfð verði viðkomandi rallý aksturkeppni í gegnum umrætt svæði.
9. Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi til gistingar fyrir Iceland Inn Apartments
Lögð fram umsagnarbeiðni um leyfi til rekstur gististaðar í flokki II – G Íbúðir fyrir Iceland Inn Apartments.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að gera ekki athugasemd við fyrirhugað rekstrarleyfi.
10. Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi til gistingar fyrir Svölu Guesthouses
Lögð fram umsagnarbeiðni um leyfi til rekstur gististaðar í flokki II – B stærra gistiheimili fyrir Svölu Guesthouses
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að gera ekki athugasemd við fyrirhugað rekstrarleyfi.
11. Til umsagnar 529. mál og 530. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Lögð fram umsagnarbeiðni frá nefnda og greiningarsviði Alþingis
12. Til umsagnar 568. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Lögð fram umsagnarbeiðni frá nefnda og greiningarsviði Alþingis
13. Til umsagnar 565. mál frá nefna- og greiningarsviði Alþingis
Lögð fram umsagnarbeiðni frá nefnda og greiningarsviði Alþingis um 565. Mál – verndar- og orkunýtingaráætlun (Vindorka og verndarflokkur)
Oddvita falið að vinna umsögn og senda inn í samræmi við umræðum á fundinum.
14. Fundargerð 322. fundar skipulagsnefndar
Áshildarmýri L191805; Ný borhola og heitavatnslögn; Framkvæmdaleyfi - 2603038
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Áshildarmýrar L191805 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Fyrirhugað er að bora aðra borholu eftir heitu vatni og tengja borholurnar síðan saman. Lögð verður stofnlögn í jörðu frá Áshildarmýri meðfram Skollapúfu inn í Hvítárbyggð og haldið síðan áfram meðfram girðingu sem skilur að Flóahrepp og Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Síðan verður farið með lögnina inn á veginn sem liggur samhliða Hvítá. Stofnlagnir annarra hverfa eru þegar komnar í jörðu, eða eru í framkvæmdum, eða framkvæmdaleyfið er að fara í gang.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Áshildarmýri; jarðborun; Umsagnarbeiðni - 2603073
Lögð er fram til umsagnar umsókn um starfsleyfi vegna mengandi starfsemi í landi Kílhrauns L166478. Áætlað er að jarðborinn Freyja eða Trölli komi og bori 700m lághitaholu og ca 25m varaneysluvatnsholu að beiðni Hitaveitu Áshildarmýri ehf.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemdir við framlögð gögn og hefur ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Hlíð 1 L166563 og Hlíð 2 L166565; Hlíð 3 og Brekkur; Staðfesting lóðarmarka og heiti lóða - 2602011
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 09.01.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar breytingu á lóðarmörkum Hlíðar 1 L166563, Hlíðar 2 L166565, Hlíðar 3 og Brekkna L175741.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu.
Búrfellshólmi, Búrfell; Nýtt efnistökusvæði; Aðalskipulagsbreyting - 2406006
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til skilgreiningar á nýju efnistökusvæði á Búrfellshólmum austan Búrfells. Svæðið er í beinu framhaldi af núverandi efnistökusvæði E33. Áætluð efnistaka er allt að 4,5 milljón m3 og að efnisnám nemi um 80.000-300.000 m3 á ári í 10-15 ár. Stmapærð svæðis er 183 ha. Um er að ræða vikurnámu og er vikurinn einkum unninn til útflutnings. Starfsemi á nýju efnistökusvæði verður að öllum líkindum unnin á sambærilegan hátt og áður hefur verið á Búrfellshólmum og gengið verði frá því svæði þar sem efnistöku er lokið jafnóðum. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum. Einnig bárust athugasemdir frá Skipulagsstofnun sem eru lagðar fram við afgreiðslu.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn óskar eftir því við Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
15. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-246
Fundargerð lögð fram til kynningar.
16. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-247
Fundargerð lögð fram til kynningar.
17. Hestamannafélagið Jökull ársskýrsla 2025
Ársskýrsla og ársreikningur lögð fram til kynningar.
18. Fundargerð 26. fundar stjórnar Arnardrangans
Fundargerð lögð fram til kynningar.
19. Fundargerð 90. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
20. Fundargerð 253. fundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands
Fundargerð lögð fram til kynningar.
21. Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga 20.03.2026
Tekin var fyrir 2. tl. í fundargerð varðandi kostnað við þakviðgerðir á húsnæði Listasafns Árnesinga. Framlag sveitarfélagsins Skeiða- og Gnúpverjahrepps til Listasafns Árnesinga er samþykkt skv. framlagðri fjárhagsáætlun til Listasafns Árnesinga fyrir árið 2026.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
22. Fundargerð 21. fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
23. Fundargerð 217. fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
24. Fundargerð 995. fundar stjórnar Sambandsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
25. Fundargerð 996. fundar stjórnar Sambandsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
26. Ársreikningur Sorpstöðvar Suðurlands 2025
Ársreikningur lagður fram til kynningar.
27. Ársreikningur Listasafns Árnesinga 2025
Ársreikningur lagður fram til kynningar.
28. Ársreikningur Tónlistarskóla Árnesinga 2025
Ársreikningur lagður fram til kynningar.
29. Ársreikningur Arnardrangans hses 2025
Ársreikningur lagður fram til kynningar.
30. Ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2025
Ársreikningur lagður fram til kynningar.
31. Ársreikningur Byggðasafns Árnesinga 2025
Ársreikningur lagður fram til kynningar.
32. Ársreikningur Brunavarna Árnessýslu 2025
Ársreikningur lagður fram til kynningar.
33. Skipun varamanns í kjörnefnd
Jóhannes Hlynur Sigurðsson hefur óskað eftir að verða ekki lengur varamaður í kjörnefnd og því þarf að skipa nýjan varamann í hans stað.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að skipa Berglindi Bjarnadóttir sem varamann í kjörnefnd.
34. Ósk um upplýsingar um störf frá sveitarstjóra
Gerður Stefánsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
Nú ber svo við að dagskrá fundar sem fylgir með fundarboðinu eins og kveðið er á um í 15. gr. sveitastjórnarlaga nr. 138/2011 er með öðrum hætti en verið hefur. Löng hefð er fyrir því í sveitastjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að oddviti fari yfir ýmis mál sem unnin hafa verið milli sveitastjórnarfunda. Á síðasta fundi sveitastjórnar lagði Haraldur Þór Jónsson oddviti sveitastjórnar að hann muni ekki lengur flytja sína skýrslur í sveitastjórn.
Í ljósi þess þessar ákvörðunar oddvita óska ég eftir því að sveitastjóri taki við keflinu og gefi í upphafi fundar yfirlit yfir starfsemi sveitarfélagsins frá því síðast var fundað.
Í þessu samhengi er mikilvægt að hafa í huga að 8. gr. sveitarstjórnarlaga kemur fram að það er sveitarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins.
Fundi slitið kl. 11:28.
Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 22. apríl kl. 9.00, í Árnesi.
Fundargerð undirrituð rafrænt.