Upp í sveit 2025

 

Föstudagurinn 13. júní

Stormsveitin mætir í SkeiðGnúp í glaðlegum gír með söng, sögur og almenn huggulegheit. Lagavalið eru uppáhalds lög kórmanna þar sem útsetningar fá að njóta sín í botn við undirleik Þóris Úlfarssonar og Arnórs Sigurðarsonar. Efnisskráin samanstendur af dægurlögum og þjóðlegum lögum frá síðustu 50 árum sem sungin eru í flottum kórútsetningum þar sem röddun fær að njóta sín. Einnig stíga kórmenn fram og segja sögur af sér og öðrum á léttum nótum. Kórinn saman stendur af 14 mönnum sem syngja í 4 röddum eins og kefðbundinn karlakór. Tónleikar hefjast kl. 20.00 og kostar 1500 kr. Aðeins selt inn við dyrnar.

 

 

 

 

 

Laugardagurinn 14. júní

 

Kl. 11-12 Froðurennibrautin klassíska og frítt í Neslaug í kjölfarið. Minnum á að eins og venjulega eru börn á ábyrgð foreldra sinna bæði í rennibrautinni og sundlauginni. Einnig er gott að hafa í huga að börnum finnst einstaklega gaman að sjá foreldra sína renna sér í rennibraut og eins er upplagt að útkljá fjölskylduerjur með koddaslag á bitanum í sundlauginni.

Kl. 11-17 Hoppukastalar í boði fyrir börnin

Kl. 11 – 17 Rallýhjólabraut fyrir þau yngstu, um að gera að taka með sér þríhjól, sparkhjól eða hjólatraktora og prufa smá hjóla-þrautabraut.

Kl. 12-16 Handverksmarkaður í Árnesi. Allrahandar handverk, ætt og óætt til sýnis og til sölu.

Kl. 12-16 Málverkasýning Sigurlínar Grímsdóttur frá Votumýri.

Sigurlín býr í Skeiðahreppi ásamt eiginmanni sínum, þar sem þau ráku kúabú í 45 ár. Meðfram bústörfum hefur Sigurlín tileinkað sér myndlist í áratugi, með áherslu á teikningu, vatnslitamálun og olíu.

Hún hefur lært teikningu, vatnslitamálun og olíumálun undir leiðsögn fjölmargra íslenskra listamanna, m.a. hjá Myndlistarfélagi Árnessýslu, í Skálholti og við Myndlistarskóla Reykjavíkur.

Verk Sigurlínar endurspeglar hennar nánasta umhverfi - dýrin, fólkið og landi sem hún hefur lifað og unnið með alla tíð.

Kl 13.30 Kassabílarallý – nú er lag að fara að huga að kassabílunum, betrumbæta þá síðan í fyrra og reyna að hugsa upp hvað Dísa&Ari koma með í brautina þetta árið. Einhverjir bílar verða á svæðinu til láns...en alls ekki víst að það séu þeir bestu!!

Kl. 14.30 Traktorafimi ! Grunar þig að þú sért mjög góð/góður á traktor? jafnvel traktorasnillingur?  Hér fá allir rakið tækifæri til að sýna að þeiri eigi traktoraprófið sitt skilið! Okkar allra helstu traktoramenn, Oddgeir Eiríksson og Atli Eggertsson hafa tekið að sér að setja upp traktorafimibraut; þeir hafa legið yfir youtube myndböndum, pinterest leiðbeiningum, jafnvel farið erlendis til að sjá hvernig hinir gera þetta! Nánari upplýsingar um skráningar berast síðar, en við hvetjum alla til að fara að æfa sig! Verðlaun verða í boði Vélfangs.

Veitingastaðurinn Brytinn á sínum stað, býður að þessu sinni upp á hlaðborð !

 

Froðurennibraut

Sunnudagurinn 15. júní

Kl. 11-12.00 Fjölskylduratleikur í skóginum í Þjórsárdal. Enginn annar en Guðmundur Finnbogason, fyrrum atvinnuskáti og nýráðinn skólastjóri Þjórsárskóla hefur umsjón með ratleik í skóginum. Upphafspunktur er við grillskýlið og fjölskyldan hvött til að vinna saman.

Kl. 12.00 Grillaðar pylsur í grillskýlinu eftir ratleik í boði Rauðukamba.

Svo vonumst við eftir veðri sem býður upp á sull í ánni, sandkastalabyggingar á árbakkanum og langa göngutúra í skóginum.

Kl. 13.- 17 Opið hús í Þjóðveldisbænum, öll velkomin að kíkja og skoða Þjóðveldisbæinn sér að kostnaðarlausu.

Kl. 14.00 Smalahundadeild Árnessýslu hefur æft stíft í allan vetur og sýnir nú afrakstur erfiðisins í Skaftholtsréttum með smalahundasýningu.

Kl. 20.00Enn syngur vornóttin
Fimmtán fáheyrðir leynigestir úr sveitinni stíga á stokk í dásamlegu umhverfi á Lómsstöðum. Á dagskrá eru bæði íslenskar og erlendar perlur. Hægt er að koma ríðandi og geyma hross í gerði við skemmuna. Engar veitingar eru til sölu á staðnum – svo hver og einn sér um sig.

Aðgangur ókeypis á meðan húsrúm leyfir.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní

Kl. 11.00 Í Brautarholti hefst hefðbundin þjóðahátíðardagskrá með fjallkonu, hátíðarræðu, hugvekju frá Sr. Óskari, tónlistaratriði og hádegisverði bornum fram af Kvenfélagi Skeiðahrepps.

Eftir matinn fer fram vígsla á nýju æfingaaðstöðunni í Skeiðalaug – formleg opnun fer fram með hinum klassíska 17. júní leik: reipitogi, þar sem oddviti og sveitarstjóri fara fyrir sitthvoru liðinu og kalla íbúa til leiks!

Að lokum er svo frítt í þjóðhátíðarbað í Skeiðalaug þennan dag.

 

Kl. 14.00  Opið hús að Hraunsnefi
Þau Jóhanna og Snæbjörn bjóða gestum og gangandi að skoða nýbýlið Hraunsnef, sem þau nýlega fluttu inn í og hafa komið sér vel fyrir.