- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
1. Skýrsla oddvita á 83. sveitarstjórnarfundi
Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.
2. Húsnæðisáætlun Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2026
Húsnæðisáætlun Skeiða- og Gnúpverjahrepps árið 2025 lögð fram. Í áætluninni er gert ráð fyrir að íbúum fjölgi úr 623 í 955 á næstu fimm árum og er áætlað að íbúðaþörf til næstu fimm ára verði 143 íbúðir. Í byrjun árs 2025 eru 28 íbúðir í byggingu. Deiliskipulag fyrir fyrirhugaða uppbyggingu íbúða í Árnesi er áætlað að verði tilbúið sumarið 2025 og með því er búið að tryggja nægt framboð lóða til að standa undir spá um fjölgun íbúa í samræmi við húsnæðisáætlun.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum Húsnæðisáætlun Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2026.
3. Stofnun fasteignaþróunarfélags til uppbyggingar íbúðahúsnæðis
Framundan er veruleg fjölgun íbúa í sveitarfélaginu samhliða aukinni atvinnu sem er í uppbyggingu í sveitarfélaginu. Miklar áskoranir eru í uppbyggingu íbúðahúsnæðis á landsbyggðinni í núverandi vaxtaumhverfi og mikilvægt að leita nýrra leiða sem tryggir öruggt og hagkvæmt húsnæði. Tryggja þarf stöðuga uppbyggingu íbúða í Skeiða- og Gnúpverjahreppi næstu árin ásamt því að skapa grundvöll fyrir virkum leigumarkaði íbúðahúsnæðis með möguleika á því að kaupa húsnæði í framhaldi af leigu.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fela oddvita og sveitarstjóra að vinna frekari gögn um verkefnið í samræmi við minnisblað sem unnið var af KMPG.
4. Nýtt stöðugildi á skrifstofu sveitarfélagsins
Með auknum verkefnum á skrifstofu sveitarfélagsins er þörf á að auka við stöðugildi. Lögð fram starfslýsing fyrir stöðugildi bókara/launafulltrúa. Með tilkomu nýs starfsmanns mun verða breyting á verkefnum milli núverandi starfsfólks skrifstofunnar.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagða starfslýsingu og felur sveitarstjóra að auglýsa stöðuna og sjá um ráðningarferlið.
5. Ungmennafélag Gnúpverja og Ungmennafélag Skeiðamanna
Inn á fund sveitarstjórnar komu f.h. Ungmennafélags Gnúpverja, Magnea Guðmundsdóttir, formaður, og Karen Óskarsdóttir og f.h. Ungmennafélags Skeiðamanna, Viktoría Rós Guðmundsdóttir, formaður, Ásgeir Guðmundsson og Elín M. Moqvist. Undanfarið hafa verið umræður um sameiningu ungmennafélaganna með það að markmiði að hafa eitt öflugt ungmennafélag sem mun leiða íþróttastarf í sveitarfélaginu. Með nýrri íþróttmiðstöð í Árnesi sem mun opna sumarið 2026 bætist við aðstöðu í sveitarfélaginu til fjölbreyttar íþróttaiðkunar og því mikilvægt að leggja grunninn að öflugu íþróttastarfi í nýrri íþróttamiðstöð. Ræddar hugmyndir að því hvernig sé best að vinna næstu skref.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps telur mjög jákvætt að fyrir liggi vilji til að sameina Ungmennafélögin. Sveitarstjórn lýsir yfir vilja til að styrkja sameinað ungmennafélag þegar það hefur tekið til starfa og til framtíðar að gera samstarfssamning við ungmennafélagið svo það hafi burði til að halda úti öflugu íþróttastarfi. Sveitarstjóra falið að vinna með Ungmennafélögunum að undirbúningi sameiningar og vinna drög að samstarfssamningi milli sveitarfélagsins og sameinaðs Ungmennafélags Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
6. Erindi frá eigendum Hamragerði 9
Lagt fram erindi frá eigendum Hamragerði 9, en þar er í byggingu einbýlishús. Óskað er eftir heimild til að ýta út mold sem kom úr uppgrefti fyrir húsið. Sambærileg framkvæmd var gerð við byggingu á Bugðugerði 6.
Sveitarstjórn samþykkir með þremur atkvæðum að heimila eigendum að Bugðugerði 9 að ýta út mold, slétta og sá í svæðið, allt í samráði við sveitarstjóra. Sveitarstjórn ítrekar að mikilvægt sé að verkið klárist í byrjun sumars.
Bjarni Hlynur Ásbjörnsson situr hjá við afgreiðslu málsins.
Axel Á. Njarðvík greiðir atkvæði gegn afgreiðslu málsins og leggur fram eftirfarandi bókun:
Í vinnu að deiliskipulagi við Árnes var áhersla lögð á samfellu milli lóða og opinna svæða til að viðhalda náttúrulegu yfirbragði svæðisins, þar sem leggja skyldi áherslu á að ósnortið/lítt raskað land viðhaldi náttúrulegu yfirbragði svæðisins. Það væri ekki í samhljóði við þetta að mold yrði ýtt yfir úthagagróðurinn sem þarna er enn að finna. Loftmyndir sýna það að mikið hefur verið ekið utan við lóðamörkin og umgengi um landið ekki í takt við það sem ætti að vera. Verið væri að breyta landslagi óháð þeirri stefnu sem er sett í drögum að deiliskipulag að Árnesi. Því ætti ekki að leyfa þetta.
7. Úttekt á Brunavörnum Árnessýslu
Lögð fram til kynningar úttekt HMS á Brunavörnum Árnessýslu. Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri kemur inn á fundinn og kynnir niðurstöður úttektar fyrir sveitarstjórn. Eins og kemur fram í úttektinni er starfsemin að fullu í samræmi við lögbundnar kröfur og engin atriði sem þarfnast úrbóta.
8. Beiðni um umsögn – Umsókn um nýtingarleyfi á jarðhita í Áshildarmýri á Skeiðum
Með vísan til 3. mgr. 6. gr. laga, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu nr. 57/1998 óskar Umhverfis- og orkustofnun umsagnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna umsóknar um nýtingarleyfi á jarðhita í Áshildarmýri á Skeiðum.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að gera ekki athugasemd við útgáfu á nýtingarleyfi á jarðhita í Áshildarmýri á Skeiðum.
9. Til umsagnar 307. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Lögð fram umsagnarbeiðni frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis.
10. Til umsagnar 311. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Lögð fram umsagnarbeiðni frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis.
11. Til umsagnar 312. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Lögð fram umsagnarbeiðni frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis.
12. Til umsagnar 322. mál frá nefndar- og greiningarsviði Alþingis
Lögð fram umsagnarbeiðni frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fela oddvita að skila inn umsögn um samgönguáætlun, en mikilvægt er að koma á framfæri nauðsynlegum vegabótum sem þurfa að eiga sér stað á Þjórsárdalsvegi ásamt bágbornu ástandi malarvega í sveitarfélaginu.
13. Frumvarp vegna flutnings eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna
Lagt fram til kynningar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.
14. Fundargerð 318. fundar skipulagsnefndar
Gnúpverjaafréttur L223326, Sultartangastöð; Víkkun ganga; Framkvæmdarleyfi – 2601052
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Sultartangastöðvar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Aðrennslisgöng virkjunar eru um 152 m2 að þverskurðarflatarmáli. Til stendur að víkka göngin um 40 m2 með því að síkka gólf ganganna um 4,5 m. Markmið framkvæmdarinnar er að minnka falltap í aðrennslisgöngunum og auka þar með orkuframleiðslu virkjunarinnar. Orkuframleiðslan eykst um 16 til 18 GWh/ári sem einvörðungu stafar af minnkuðu falltapi í aðrennslisgöngunum um 1 m. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í apríl 2026 og standi yfir til ársloka 2026.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahreppur samþykkir með fimm atkvæðum að gera ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Búrfells- og Skeljafellsland L223324; Búrfellsstöð tengivirki, Búrfellsstöð I og II, Búrfellsstöð skemmur, Búrfellsstöð lokuvirki, Búrfellsstöð vinnubúðir 1 og 2; Stofnun lóða – 2601042
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 11.12.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun nýrrar landeignar. Óskað er eftir að stofna 7 lóðir úr þjóðlendunni Búrfells- og Skeljafellsland L223324. Nýju lóðirnar eru allar á starfssvæði Búrfellsvirkjunar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að gera ekki athugasemdir við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að gera ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.
Vorsalir (L239902); byggingarleyfi íbúðarhús – 2601060
Móttekin var umsókn þann 21.01.2026 um byggingarleyfi fyrir 94 m2 íbúðarhúsi á í Skeiða og Gnúpverjahreppi.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
15. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa 26-242
Fundargerð lögð fram til kynningar.
16. Fundargerð 24. fundar skólanefndar
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Undir dagskrárlið 3 í fundargerð er fjallað um nýjar reglur vegna frístundar í Þjórsárskóla. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum reglur vegna frístundar í Þjórsárskóla.
17. Fundargerð 26. fundar Menningar- og æskulýðsnefndar
Fundargerð lögð fram til kynningar.
18. Fundargerð stjórnar SVÁ frá 7. janúar, 17. janúar og 19. janúar.
Fundargerðir ásamt skýrslu vegna úttektar á stjórnskipulagi SVÁ lagðar fram til kynningar.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að ráðinn verði forstöðumaður fyrir SVÁ eins og fram kemur í lið 2 fundargerðar frá 19. janúar 2026. Fundargerðir að öðru leyti lagðar fram til kynningar.
19. Fundargerð aukaaðalfundar SOS 16. janúar 2026
Tekinn er sérstaklega fyrir liður 5.a. í fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands bs. frá 16. janúar 2026 um tillögur að breytingu á samþykktum Sorpstöðvarinnar. Lagðar eru fram til fyrri umræðu breytingar á samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands bs.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að vísa samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands til síðari umræðu.
Tekinn er sérstaklega fyrir liður 5.c. í fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands frá 16. janúar 2026 um viðauka við fjárhagsáætlun Sorpstöðvarinnar.
Lagður er fram til samþykktar viðauki við fjárhagsáætlun Sorpstöðvar Suðurlands bs. Ekki er gert ráð fyrir auknum framlögum aðildarsveitarfélaga SOS vegna viðaukans.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun Sorpstöðvar Suðurlands bs.
Fundargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.
20. Fundargerð 343. fundar stjórnar SOS
Fundargerð lögð fram til kynningar.
21. Fundargerð 251. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Fundargerð lögð fram til kynningar.
22. Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambandsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
23. Fundargerð 20. fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
24. Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga frá 27.01.2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundi slitið kl. 12:23.
Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 18. febrúar kl. 9.00, í Árnesi.
Fundargerð undirrituð rafrænt.