Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.
Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:
Skipulags- og byggingarmál
1. Fundargerð 333. fundar skipulagsnefndar
Víðimýri L228878; Uppbygging svæðis; Fyrirspurn – 2609040
Lögð er fram fyrirspurn er varðar Víðimýri L228878. Í fyrirspurninni er óskað eftir afstöðu skipulagsnefndar til þess að unnið verði deiliskipulag fyrir lóðina, þar sem byggingarreitur fyrir sumarhús og áhaldageymslu ásamt aðkomu að svæðinu verði skilgreindur. Stofnuð verður 0,5-1 ha lóð utan um sumarhúsið.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að taka jákvætt í fyrirspurnina þar sem hún er í samræmi við aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029.
Reykir L166491; Frístundabyggð; Deiliskipulag – 2411063
Lögð er fram að nýju tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Reykja L166491 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í deiliskipulaginu felst að skilgreindar verða fjórar frístundalóðir austast í landinu sem liggja að Sandlæk.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum deiliskipulagið. Þar sem meira en ár er liðið síðan athugasemdafrestur við tillöguna rann út mælist sveitarstjórn til þess að málið verði auglýst á nýjan leik á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
2. Fundargerð 29. fundar skólanefndar
Fundargerð lögð fram til kynningar. Fjallað er um málefni Zstart undir dagskrárlið 1 í fundargerðinni.
Sveitarstjórn tekur undir með skólanefnd um mikilvægi öflugs félagsmiðstöðvarstarfs fyrir börn og ungmenni í sveitarfélaginu. Félagsmiðstöðin gegnir mikilvægu hlutverki sem öruggur og jákvæður vettvangur þar sem ungmenni geta hist á eigin forsendum, eflt félagsleg tengsl og tekið þátt í fjölbreyttu starfi. Jafnframt er mikilvægt að ungmennin geti haft áhrif á viðfangsefni og þróun starfsins og styður sveitarstjórn það heilshugar.
Sveitarstjórn vill leggja áherslu á að skapa sem bestar forsendur fyrir uppbyggingu og þróun öflugs starfs í félagsmiðstöðinni Ztart með því að greiða götu starfsfólks með praktískum hætti, hvatningu og almennum stuðningi. Mikilvægt er að starfsfólk hafi svigrúm og aðstæður til að þróa starfið í samvinnu við ungmennin og leita nýrra leiða til að efla þátttöku þeirra.
Sveitarstjórn leggur sérstaka áhersla á að eflt verði samstarf við félagsmiðstöðvar í nágrannasveitarfélögum. Slíkt samstarf getur aukið fjölbreytni starfsins, skapað fleiri tækifæri fyrir ungmennin til þátttöku, víkkað félagsleg tengsl þeirra og jafnframt styrkt faglegt samstarf starfsfólks.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að stefnumörkun og fjárhagsáætlun sveitarfélagsins taki mið af þessum markmiðum og að starfsfólki félagsmiðstöðvarinnar verði eftir föngum auðveldað að byggja upp samstarf, sameiginlega viðburði og verkefni með öðrum félagsmiðstöðvum.
Áfram verði boðið upp á akstur milli Brautarholts og Árness í tengslum við félagsmiðstöðvarstarfið, líkt og gert var á síðasta starfsári. Litið verði á aksturinn sem hluta af aðgengi að félagsmiðstöðvarstarfinu og hann því í boði með reglubundnum og fyrirsjáanlegum hætti. Fylgst verði með nýtingu og reynslu af fyrirkomulaginu yfir tíma og þjónustan aðlöguð eftir þörfum. Við mat á nýtingu verði jafnframt tekið tillit til þess að ungmenni eru ekki alltaf líkleg til að óska sjálf eftir akstri, jafnvel þótt samgöngur geti haft áhrif á möguleika þeirra til þátttöku. Markmiðið er að samgöngur verði ekki hindrun fyrir þátttöku og að börn og ungmenni í sveitarfélaginu hafi sem jöfnust tækifæri til að nýta sér félagsmiðstöðvarstarfið. Eftir því sem við á verði jafnframt gert ráð fyrir að samgöngur geti stutt við samstarf við félagsmiðstöðvarnar í nágrannasveitarfélögum, svo sem vegna sameiginlegra viðburða, heimsókna og verkefna.
Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram í samráði við starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar og leggja mat á hvaða stuðning og umgjörð sveitarfélagið getur veitt til að greiða götu öflugs og fjölbreytts félagsmiðstöðvarstarfs.
3. Þjóðarsátt um verðstöðugleika
Lögð fram samhljóða erindi frá formanni Starfsgreinasambands Íslands, formanni VR, formanni Landssambands íslenskra verzlunarmanna, formanni Rafiðnaðarsambandsins f.h. Fagfélaganna og formanni Bárunnar þar sem skorað er á sveitarfélög á Íslandi til að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika og halda aftur af hækkunum á gjaldskrám þannig að þær hækki ekki meira en 2,5%.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps lýsir yfir vilja sínum til að leggja sitt af mörkum við að halda aftur af verðbólgu og samþykkir með fimm atkvæðum að engin gjaldskrá hjá sveitarfélaginu hækki umfram 2,5% á árinu 2027 og mun leggja það til grundvallar við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
4. Byggðaþróunarfulltrúi Uppsveita Árnessýslu
Rakel Theodórsdóttir, Byggðaþróunarfulltrúi Uppsveita Árnessýslu kemur inn á fundinn til að kynna hlutverk byggðaþróunarfulltúra, fara yfir verkefnin síðasta árið og hvað er framundan.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps þakkar Rakel fyrir gott samtal og góða kynningu á starfi byggðaþróunarfulltúra Uppsveitanna.
5. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga
Lögð fram staðfesting frá Lánasjóði sveitarfélaga um samþykki fyrir lántöku að upphæð 400 milljónir. Láninu verðu ráðstafað til lækkunar á lánalínu Landsbankans sem sveitarfélagið hefur nýtt í núverandi framkvæmdum. Lánið er úr lánaflokki LSF32, er óverðtryggt og til sjö ára.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 400.000.000,- samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim lánaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórn hefur kynnt sér skilmála viðkomandi lánaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Til tryggingar láninu, þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samþykkir sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að tekjur sveitarfélagsins, sbr. 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Lánið er tekið til niðurgreiðslu á lánalínu sveitarfélagsins hjá Landsbankanum sem nýtt hefur verið við byggingu á nýrri íþróttamiðstöð í Árnesi og öðrum framkvæmdum síðustu tvö ár. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Jafnframt er Sylvíu Karen Heimisdóttur, sveitarstjóra, kt. 290882-5679, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Umboðið tekur jafnframt til móttöku, undirritunar, útgáfu og afhendingar allra skjala, fyrirmæla og tilkynninga sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
6. Lántaka hjá Landsbankanum
Lagt fram skuldabréf frá landsbankanum að upphæð 400 milljónir. Láninu verðu ráðstafað til lækkunar á lánalínu Landsbankans sem sveitarfélagið hefur nýtt í núverandi framkvæmdum. Lánið er óverðtryggt til 10 ára. Einnig lagður fram viðauki við lánalínu sem sveitarfélagið hefur haft hjá Landsbankanum þar sem heimildir lánalínunnar eru lækkaðar niður í 200 milljónir.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að taka lán hjá Landsbankanum að fjárhæð 400.000.000, samkvæmt fyrirliggjandi skuldabréfi
Lánið er tekið til niðurgreiðslu á lánalínu sveitarfélagsins hjá Landsbankanum sem nýtt hefur verið við byggingu á nýrri íþróttamiðstöð í Árnesi og öðrum framkvæmdum síðustu tvö ár.
Einnig samþykkir sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps með fimm atkvæðum framlagðan viðauka við lánalínu þar sem heimildir lánalínunar eru lækkaðar niður í 200 milljónir.
Sveitarstjórn samþykkir með fimm atkvæðum að veita Sylvíu Karen Heimisdóttur, sveitarstjóra, kt. 290882-5679, fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita skuldabréfið og viðaukann við Landsbankann f.h. Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Umboðið tekur jafnframt til móttöku, undirritunar, útgáfu og afhendingar allra skjala, fyrirmæla og tilkynninga sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
7. Til umsagnar 1. mál, Fjárlög 2027 frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis.
Lögð fram umsögn sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps við 1. mál Fjárlög 2027.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagða umsögn og felur oddvita að skila umsögninni til nefnda- og greiningarsviðs Alþingis.
8. Til umsagnar 5. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis.
Lögð fram til staðfestingar sveitarstjórnar umsögn sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps við 5. mál, Sveitarstjórnarlög sem send var til nefndar- og greiningarsviðs þann 1. október.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagða umsögn og felur oddvita að skila umsögninni til nefnda- og greiningarsviðs Alþingis.
9. Drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald
Lögð fram umsögn sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna draga að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagða umsögn og felur oddvita að skila umsögninni í samráðsgátt stjórnvalda.
10. Styrkbeiðni frá Selfoss-Suðra
Lagt fram bréf frá Selfoss-Suðra þar sem óskað er eftir styrk til að halda Íslandsmót í einstaklingskeppni í boccia dagana 31. október - 1. nóvember 2026. Mótið verður fjölsótt og er reiknað með yfir 200 keppendum.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum styrk til Selfoss-Suðra að upphæð 50.000 kr. og fellur styrkveitingin innan núverandi fjárheimilda.
11. Reykjalundur Endurhæfir - Endurhæfum Reykjalund
Lagt fram bréf frá Hollvinasamtökum Reykjalundar en samtökin Hollvinir Reykjalundar og RÚV stóðu föstudaginn 2. október 2026 fyrir mikilvægri landssöfnun fyrir brýnni uppbyggingu húsakosts Reykjalundar. Meðal annars er safnað fyrir endurbyggingu á sjúkraþjálfunarálmu.
Með bréfinu er leitað til sveitarfélaga á landinu að taka virkan þátt í uppbyggingunni og leggja verkefninu lið með góðu fjárframlagi.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafnar erindinu og hvetur ríkisvaldið til að standa undir sínum skyldum og leggja til viðunandi fjármagn í málaflokkinn.
12. Skýrsla oddvita
Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.
13. Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa - 15. nóvember 2026
Bréf lagt fram til kynningar.
14. Fundargerð fundar með atvinnuvegaráðherra og ferðaþjónustunni í Uppsveitum
29. september 2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
15. Fundargerð 257. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Fundargerð lögð fram til kynningar.
16. Fundargerð 2. fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
17. Fundargerð 95. fundar stjórnar Bergrisans
Fundargerð lögð fram til kynningar.
18. Fundargerð Almannavarnanefndar Árnessýslu frá 18. september 2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
19. Fundargerð 221. fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
20.Fundargerð 7. fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu
Fundargerð lögð fram til kynningar.
21. Fundargerð 8. fundar sjórnar Brunavarna Árnessýslu
Fundargerð lögð fram til kynningar.
22. Fundargerð 4. fundar Farsældarráðs Suðurlands
Fundargerð lögð fram til kynningar.
23. Fundargerð 1.002 fundar stjórnar Sambandsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
24. Fundargerð 97. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
25. Fundargerð 638. fundar stjórnar SASS
Fundargerð lögð fram til kynningar.
26. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-263
Fundargerð lögð fram til kynningar.
27. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-264
Fundargerð lögð fram til kynningar.
28. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-265
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundi slitið kl. 11:50
Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 21. október kl. 9.00, í Árnesi.
Fundargerð undirrituð rafrænt.