- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Fundur hófst kl 9:00.
Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.
Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:
Skipulags- og byggingarmál
1. Fundargerð 329. fundar skipulagsnefndar
Skeiðháholt 2 L166496; Skeiðháholt 2B L166497; Völlur, Taglateigur 1, Taglateigur 2, Taglateigur 5, Taglavegur, Háholtshjáleiga. Stofnun lóða - 2605012
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 04.05.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024. Stofna á 6 landeignir úr jörðinni Skeiðháholti 2 (L166496) og eina landeign úr Skeiðháholti 2B (L166497). Ein af nýjum landeignum sameinast síðar annarri landeign.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu.
Ósabakki 2 L166487; Rofastöð; Stofnun lóðar - 2606079
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 08.05.2026 skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun nýrrar lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð fyrir spennistöð Rarik, rofastöð, stærð 20 m2, úr jörðinni Ósabakka 2 L166487.
Sveitarstjórn Skeiða og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn.
Skógarlundur L236998; Uppbygging ferðaþjónustu; Deiliskipulag - 2512005
Lögð er fram, eftir auglýsingu, tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Skógarlundar L236998 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í deiliskipulaginu felst að landið verði skilgreint fyrir gistiþjónustu í smáhýsum ásamt þjónustubyggingum. Heimild er fyrir 70 gistihúsum og 192 gistirýmum, ásamt þjónustuhúsum fyrir starfsemina. Hámarksbyggingarmagn er 3,000 m2 fyrir svæðið. Deiliskipulag þetta er unnið samhliða breytingu á aðalskipulagi fyrir svæðið. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Landgræðslusvæði í Þjórsárdal L223323; Heimtaug; Fyrirspurn - 2606076
Lögð er fram fyrirspurn vegna heimtaugar fyrir Hótel og fjallaböð á viðskipta- og þjónustulóðinni Rauðukambar L234185 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Núverandi kerfi Rarik á svæðinu ber ekki þá orku sem þarf til þess að reka hótelið og þarf þess vegna að plægja nýjan streng frá þjónustumiðstöð að hótelinu. Við sjáum tvær mögulegar leiðir, annars vegar að fylgja núverandi streng (um 1.5 m frá honum), sem mun vera áfram í rekstri sem varatenging. Hins vegar væri hægt að fara meðfram vegi alla leið. Við óskum því eftir afstöðu sveitarfélagsins til þessarar framkvæmdar, en landeigandi hefur sett það sem kröfu fyrir samþykki. Í framhaldinu verður óskað eftir framkvæmdarleyfi Náttúrverndarstofnunar. Meðfylgjandi er afstöðumynd sem sýnir þá möguleika sem við erum að skoða.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps leggur til að nýr strengur verður plægður meðfram hinum nýja vegslóða alla leið.
Stóra-Mástunga 1 L166603; Efnistökusvæði; Aðalskipulagsbreyting - 2511005
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að sett er inn ný náma í landi Stóru-Mástungu. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi. Með breytingunni er heimiluð allt að 45.000 m3 efnistaka á 2 ha svæði. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn mælist til þess að óskað verði eftir því við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
2. Hvammsvirkjun; Efnistaka, vegir, strengir og afmarkanir; Deiliskipulagsbreyting ...
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Hvammsvirkjunar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Rangárþingi ytra. Landsvirkjun hefur unnið að útboðshönnun á mannvirkjum tengdum Hvammsvirkjun í og við Þjórsá innan beggja sveitarfélaga. Ýmsar forsendur hafa breyst og er því gerð breyting á nokkrum þáttum deiliskipulagsins.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins með fyrirvara um uppfærð gögn þar sem engin breyting er á efnistökusvæði E26. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
Almenn mál
3. Fjárhagsáætlun 2026-2029- Viðauki I
Lagður fram Viðauki I við fjárhagsáætlun 2026-2029. Með viðaukanum er verið að gera ráðstafanir vegna breytinga á reglugerð 1212/2016 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga sem tók gildi á árinu. Með reglugerðarbreytingunni var farið í yfirferð ýmissa málaflokka og varð m.a. til nýr málaflokkur um málefni fatlaðs fólks (málaflokkur 01), málaflokkur 03 um heilbrigðismál var felldur niður og færður á málaflokk 11 um umhverfismál. Málaflokkur 08 um úrgangsmál var endurskrifaður í heild, málaflokkur 13 um atvinnumál var sameinaður málaflokki 11 um umhverfismál og atvinnu og málaflokkur 10 um umferðar- og samgöngumál var sameinaður málaflokki 9 um skipulags og byggingarmál. Reglugerðarbreytingar eru nú teknar inn í viðauka.
Aðrar breytingar eru vegna lokauppgjörs á málefnum tengt breytingum á skólahaldi. Tekið var tillit til kostnaðar vegna fornleifaskráningar á grundvelli samnings við Fornleifastofnun þar sem því verkefni var að ljúka. Uppfærður fjármagnskostnaður vegna lánalínu við framkvæmdir á íþróttamiðstöð, hækkun útsvarstekna umfram áætlanir og tekjufærður söluhagnaður vegna sölu á eignarhlut í jörðinni Laugarási.
Fjárfesting við nýja þjónustumiðstöð fyrir áhaldahús lækkuð um 90 milljónir. Fjárfesting á útisvæði við gamla bókasafnið lækkuð um 15 milljónir. Fjárfesting vegna tengibyggingar milli Þjórsárskóla og íþróttamiðstöðvar lækkuð um 40 milljónir. Fjárfesting vegna leikskólalóðar lækkuð um 15 milljónir.
Á næstu vikum verður ný íþróttamiðstöð í Árnesi tekin í notkun. Fjárfesting vegna íþróttamiðstöðvar hækkuð um 150 milljónir, úr 930 milljónum í 1.080 milljónir. Í upphaflegri áætlun um byggingu íþróttamiðstöðvar sem samþykkt var í desember 2023 var áætlaður kostnaður 1.200 milljónir sem á verðlagi í júlí 2026 er 1.367 milljónir. Endanlegur kostnaður við byggingu íþróttamiðstöðvarinnar stefnir því í að verða að raunvirði um 20% undir upphaflegri kostnaðaráætlun.
Heildaráhrif viðauka á rekstur eru jákvæð upp á 30 millj kr., Fjárfestingaráætlun ársins er að lækka um 10 millj kr. eða úr 710 í 700 millj kr. og er handbært fé að hækka um 37,2 millj kr.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum Viðauka I við fjárhagsáætlun 2026-2029 og felur sveitarstjóra að tilkynna hann til viðkomandi aðila.
4. Skipan í nefndir
Ungmennaráð
Sveitastjórn skipar Emelíu Karen Gunnþórsdóttur í Ungmennaráð og skipar hana sem formann ráðsins.
5. Erindi frá Ungmennafélagi Skeiðamanna- styrkumsókn
Ungmennafélag Skeiðamanna heldur úti leikjanámskeiði fyrir börnin hér í sveitinni eftir að skóla lýkur í júní og aftur áður en að skólinn hefst í ágúst og þá einnig fyrir tilvonandi fyrstu bekkinga. Í júní voru að meðaltali 16 börn skráð á hvert námskeið.
Óskað er eftir styrk frá sveitarfélaginu vegna fæðis-, húsnæðis- og launakostnaðar til að halda uppi þessu námskeiði. Launakostnaður er áætlaður um 1,5 millj. vegna þessara námskeiða. Innkoma vegna námskeiðsgjalda er áætluð um 650 þús. Fæðiskostnaður er áætlaður um 490 þús. Óskað er eftir 600 þús. kr. styrk v. launakostnaðar, auk styrki að fullu fyrir fæði í hádegi og aðstöðu í gamla bókasafnshúsinu í Brautarholti
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum styrk að upphæð 600 þúsund auk þess að styrkja vegna kostnaðar á fæði í hádegi og aðstöðu í gamla bókasafnshúsinu í Brautarholti. Styrkveitingin rúmast innan núverandi fjárhagsáætlunar.
6. Styrkumsókn- Afréttamálafélag Flóa og Skeiða
Lagt fram erindi frá afréttamálafélagi Flóa- og Skeiða þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi frá sveitarfélögunum Flóahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Sveitarfélaginu Árborg vegna salernismála í Reykjaréttum. Óskað er eftir fjárframlagi frá sveitarfélögunum um 300.000 kr. til að standa undir framangreindum kostnaði við salernismál.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum kostnaðarþáttöku með Flóahreppi og Sveitarfélaginu Árborg vegna salernismála í Reykjaréttum. Kostnaðurinn rúmast innan núverandi fjárhagsáætlunar.
7. Reglugerð Hitaveitu Brautarholts- fyrri umræða
Lögð fram til fyrri umræðu drög að uppfærði reglugerð Hitaveitu Brautarholts. Núverandi reglugerð er frá 1979 og er því verið að uppfæra reglugerðina í heild.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum nýja reglugerð fyrir Hitaveitu Brautarholts og vísar henni til síðari umræðu.
8. Umsagnarbeiðni mál nr. 0892/2026 breyting á sveitarfélagamörkum Rangárþing ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppur.
Rangárþing ytra óskar eftir umögn vegna breytingar á sveitarfélagsmörkum Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjaheppi. Frá Gaukshöfða niður undir Búðafoss , nr. 0892/2026:
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur ekki athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar.
9. Skýrsla oddvita
Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.
10. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-258
Fundargerð lögð fram til kynningar.
11. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-256
Fundargerð lögð fram til kynningar.
12. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-257
Fundargerð lögð fram til kynningar.
13. Fundargerð afréttamálanefndar Gnúpverja og Starkaðs 30.07.2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
14. Fundargerð aukaaðlfundar Samtaka orkusveitarfélaga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
15. Samtök orkusveitarfélaga- kynningarbæklingur
Fundargerð lögð fram til kynningar.
16. Heilbrigðiseftirli Suðurlands- framtíð sameiginlegra verkefna sveitarfélaga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
17. Fundargerð 256 fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Fundargerð lögð fram til kynningar.
18. Fundargerð 37 aukaaðalfundar Héraðsnefndar Árnesinga bs
Fundargerð lögð fram til kynningar.
19. Fundargerð aukaaðalfundar Byggðasafns Árnesinga bs.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
20. Fundargerð aukaaðalfundar Listasafns Árnesinga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
21. Fundargerð aukaaðalfundar Héraðsskjalasafns Árnesinga bs.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
22. Fundargerð aukaaðalfundar Brunavarna Árnessýslu bs
Fundargerð lögð fram til kynningar.
23. Fundargerð aukaaðalfundarTónlistarskóla Árnesinga bs.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundi slitið kl. 11.33.
Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 19. ágúst kl. 9.00, í Árnesi.
Fundargerð undirrituð rafrænt.