Sveitarstjórn

68. fundur 21. maí 2025 kl. 09:00 - 12:00 Árnes
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jónsson
  • Vilborg Ástráðsdóttir
  • Gunnhildur F. Valgeirsdóttir í fjarveru Bjarna H. Ásbjörnssonar
  • Gunnar Ö. Marteinsson
  • Axel Á. Njarðvík
Starfsmenn
  • Sylvía Karen Heimisdóttir
Fundargerð ritaði: Sylvía Karen Heimisdóttir

Árnesi, 21. maí 2025

68. sveitarstjórnarfundur

 

Mætt til fundar:

Haraldur Þór Jónsson oddviti, Vilborg Ástráðsdóttir, Gunnar Örn Marteinsson og Axel Á. Njarðvík. Bjarni H. Ásbjörnsson boðaði forföll og í hans stað kemur Gunnhildur Valgeirsdóttir.

Sylvía Karen Heimisdóttir ritaði fundinn.

Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.

 

Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:

1. Skýrsla oddvita á 68. sveitarstjórnarfundi

Oddviti fer yfir verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.


2. Sumarlokun skrifstofu Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að skrifstofa Skeiða- og Gnúpverjahrepps verði lokuð vegna sumarleyfa starfsmanna frá 7. júlí til og með 25. júlí.

 


3. Næstu fundir sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að næstu fundir sveitarstjórnar verði 4. júní, 18. júní og 2. júlí og að ekki verði haldinn síðari fundur sveitarstjórnar í júlí v. sumarlokunar. Fyrsti fundur sveitarstjórnar eftir sumarfrí verður 6. ágúst. 

 


4. Samþykkt um stjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps- Viðauki, seinni umræða

​Lagður fram til síðari umræðu viðauki við samþykkt um stjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna breytinga á byggðasamlaginu Héraðsnefnd Árnesinga, sbr. 5. tl. B. liðar 41. gr. samþykktarinnar. Brunavarnir Árnessýslu og Tónlistarskóli Árnesinga voru tekin út fyrir byggðsamlagið og í sér byggðasamlög.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum viðauka við samþykkt um stjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

 

 

5. Vinnuskóli 2025

​​Vinnuskóli Skeiða- og Gnúpverjahrepps verður frá 4. júní til og með 31. júlí. Unnið er frá kl 8-14 mánudaga til fimmtudaga. Miðað er við að hvert ungmenni taki a.m.k. eina fríviku á tímabilinu. Lagt er til að tímakaup ungmenna í vinnuskóla Skeiða- og Gnúpverjahrepps fyrir sumarið 2025 verði eftirfarandi:

Börn fædd 2011 fá 1.260 kr. á tímann

Börn fædd 2010 fá 1.445 kr. á tímann. 

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum vinnutímabil vinnuskólans ásamt því að samþykkja framlögð launakjör.

 

 

6. Tjaldsvæði Árnesi- samningur

​Lagður fram til staðfestingar sveitarstjórnar samningur um leigu á lóð undir tjaldsvæðið í Árnesi við Árnes á Íslandi ehf.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan samning og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn.

 

 

7. Afturköllun kæru, mál nr. 61/2025

​Lagt fram bréf frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála um afturköllun á kæru, mál nr. 61/2025

 

8. Tilkynning um stjórnsýslukæru nr. 75/2025.

Lögð fram stjórnsýslukæra frá Úrskurðarnefnd Umhverfis- og auðlindamála vegna framkvæmdaleyfis fyrir efnistöku úr efnistökusvæðum E26 í aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps. 

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps felur sveitarstjóra í samráði við lögfræðinga sveitarfélagsins að svara kærunni.

 

 

9. Áform um lagabreytingar á sviði sveitarstjórnarmála kynnt í samráðsgátt

Innviðaráðuneytið vekur athygli á því að áform um lagabreytingar sem innviðaráðherra hyggst leggja fram á næsta haustþingi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Annars vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) þar sem áætlað er að fella niður undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati og hins vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps felur oddvita að vinna að umsögn um málið og skila í samráðsgátt stjórnvalda.

 

 

10. Bréf til sveitarfélaga á sambandssvæði HSK

​Lagt fram til kynningar bréf frá Héraðssambandinu Skarphéðinn ásamt ársskýrslu HSK og þinggerð 103. Héraðsþings HSK.

11. Orkufundur Samtaka orkusveitarfélag 2025

Lagt fram bréf frá stjórn Samtaka orkusveitarfélaga þar sem vakin er athygli á Orkufundi 2025 sem fram fer mánudaginn 26. maí kl. 9:00-12:00 í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Fundurinn verður einnig í streymi.

 

12. Málþing um byggðafestu ungs fólks á landsbyggðinni

Lagt fram bréf vegna málþings sem Nýheimar þekkingarsetur stendur fyrir dagana 23. og 24. september nk. á Höfn í Hornafirði.

 

13. Kynning á inngildingarverkefni – Gefum íslensku séns í Uppsveitum

Lagt fram bréf frá byggðaþróunarfulltrúa Uppsveitanna er varðar verkefnið Gefum íslensku séns í Uppsveitunum. Markmið verkefnisins er að efla íslenskukunnáttu fólks af erlendum uppruna með þátttöku atvinnulífsins og samfélagsins. Lögð er áhersla á að byggja upp tengsl við vinnustaði þar sem starfsfólk af erlendum uppruna getur lært og æft íslensku í tengslum við daglegt líf.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps fagnar því að vinna að verkefninu Gefum íslensku séns og telur mikilvægt að efla íslenskukunnáttu á svæðinu.

 

14. Framlög til úrbóta í aðgengismálum fatlaðs fólks

Lagt fram bréf frá Innviðaráðuneytinu er varðar framlög til úrbóta á aðgengismálum fatlaðs fólks 2025-2026. Innviðaráðherra hefur samþykkt breytingu á reglugerð 280/2021 um starfsemi

Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem heimilar sjóðnum að úthluta allt að 464 m.kr. til úrbóta á aðgengismálum fatlaðs fólks á árunum 2025 og 2026.

 

15. Jarðboranir eru starfsleyfisskyldar og skal sækja um leyfi fyrir hverri borun

Lagt fram bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem vill af gefnu tilefni árétta að jarðboranir eru starfsleyfisskyld starfsemi og skal sækja um leyfi til heilbrigðisnefndar fyrir hverju borverkefni fyrir sig. Vísað er í meðfylgjandi bréf Umhverfisstofnunar (nú Umhverfis- og orkustofnun) dags. 26. janúar 2024 þar sem kemur fram lagalegt álit stofnunarinnar þar að lútandi. Jafnframt er bent á álit Umhverfis- og orkustofnunar dags. 4. febrúar sl., er varðar svo kallaðar rannsóknarboranir þar sem farið er ítarlega yfir álitamál sem upp kunni að koma varðandi rannsóknarleyfi sem eru annars eðlis og gefin út á grundvelli auðlindalaga en ekki laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir sem krefjast starfsleyfis þar sem um mengunarhættu er að ræða auk ónæðis.

 

16. Fundargerð 302. fundar skipulagsnefndar

Reykir L166491; Breytt landnotkun, skógrækt í frístundasvæði; Aðalskipulagsbreyting - 2311057

Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar eftir auglýsingu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps er varðar hluta skógræktarsvæðis í landi Reykja L166491. Í breytingunni felst að hluti skógræktarsvæðis breytist í frístundasvæði. Tillaga deiliskipulags er lögð fram samhliða aðalskipulagsbreytingu þessari.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Sveitarstjórn óskar eftir því við Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Minni-Ólafsvellir L166482; Breytt landnotkun; Deiliskipulagsbreyting - 2501019

Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Minni-Ólafsvalla, eftir auglýsingu. Í breytingunni felst aukning á heimildum fyrir uppbyggingu á svæðinu í takt við breytingu á aðalskipulagi þar sem skilgreint var verslunar- og þjónustusvæði og íbúðarbyggð. Innan byggingarreita A1, A3 og A4 er gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja allt að 10 gestahús, íbúðarhús auk bygginga tengdum hestamennsku, hámarksbyggingarmagn skilgreint 1.200 fm. Á reit A2 er gert ráð fyrir allt að þremur íbúðum sambyggðum eða stakstæðum, hámarksbyggingarmagn skilgreint 600 fm. Umsagnir bárust á auglýsingartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Ásar L166523; Ásar vegsvæði; Stofnun lóðar - 2504096

Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 15.04.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun nýrrar landeignar vegna enduruppbyggingar Gnúpverjavegar nr. 325-01. Óskað er eftir að stofna 15.443 fm vegsvæði, Ásar vegsvæði, úr landi Ása L166523.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemd við stofnun landsins undir vegsvæði skv. framlagðri merkjalýsingu og samþykkir erindið með fimm atkvæðum.

 

Steinkerstún L221250; Steinkerstún vegsvæði; Stofnun lóðar - 2504095

Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 26.03.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun nýrrar landeignar vegna enduruppbyggingar Gnúpverjavegar nr. 325-01. Óskað er eftir að stofna 4.164 fm vegsvæði, Steinkerstún vegsvæði, úr landi Steinkerstúns L221250.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemd við stofnun landsins undir vegsvæði skv. framlagðri merkjalýsingu og samþykkir erindið með fimm atkvæðum.

 

Klettar (L166589); byggingarheimild; starfsmannahús og geymsla - breyta innra skipulagi og útliti - 2503091

Erindi sett að nýju fyrir fund, grenndarkynningu byggingarfulltrúa er lokið með athugasemd. Móttekin var umsókn þann 27.03.2025 um byggingarheimild til að breyta innra skipulagi og útliti á mhl 05 starfsmannahúsi og geymslu 1.476,7 fm á jörðinni Klettar L166589 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps frestar afgreiðslu málsins.

 

Kílhraunsvegur 1-56; Frístundabyggð í íbúðabyggð; Deiliskipulagsbreyting - 2403054

Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Kílhraunsvegar 1-56 eftir auglýsingu. Í breytingunni felst að skilgreindu frístundasvæði er breytt í íbúðarsvæði. Samhliða er unnin breyting á aðalskipulagi sem tekur til svæðisins.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Axel Á. Njarðvík situr hjá afgreiðslu málsins og leggur fram eftirfarandi bókun:

Ég tel að ekki sé tímabært að taka þessa ákvörðun að breyta frístund í íbúðabyggð nema að það liggi fyrir hvaða breyting slíkt felur í sér varðandi skyldur og þau réttindi sem skapast á svæðinu. Ekki liggur frekar fyrir fjárhagslegir þættir sem verða samfara slíkri breytingu.

 

Kílhraunsvegur 1-56; Úr frístundabyggð í íbúðabyggð; Aðalskipulagsbreyting - 2311027

Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar eftir auglýsingu sem tekur til breytingar á aðalskipulagi Skeiða-og Gnúpverjahrepps er varðar Kílhraunsveg 1-56. Í breytingunni felst að landnotkun svæðisins breytist úr frístundabyggð í íbúðarbyggð. Umsagnir bárust á auglýsingatíma tillögunnar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar. Sveitarstjórn mælist til þess að óskað verði eftir því við Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Axel Á. Njarðvík situr hjá afgreiðslu málsins og leggur fram eftirfarandi bókun:

Ég tel að ekki sé tímabært að taka þessa ákvörðun að breyta frístund í íbúðabyggð nema að það liggi fyrir hvaða breyting slíkt felur í sér varðandi skyldur og þau réttindi sem skapast á svæðinu. Ekki liggur frekar fyrir fjárhagslegir þættir sem verða samfara slíkri breytingu.

 

17. Fundargerð 25-226 fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

18. Fundargerðir 20. og 21. fundar Menningar- og æskulýðsnefndar

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

 

19. Fundargerð 84. fundar stjórnar Bergrisans

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

20. Fundargerð 244. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands

Tekin var til umræðu liður 1b í fundargerð, Rekstraryfirlit og ný launaáætlun - endurskoðun fjárhagsáætlunar. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Fundargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.


21. Fundargerð 978. fundar stjórnar Sambandsins

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

22. Fundargerð 22. fundar stjórnar Arnardrangs hses.

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

23. Fundargerð 120. og 121. fundar stjórnar UTU bs.

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

 

24. Fundargerð vorfundar Brunavarna Árnessýslu bs.

Tekin var til umræðu 6 liður fundargerðar, tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun yfirstandandi árs. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu fyrir árið 2025.

 Fundargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.

 

25. Fundargerð vorfundar Héraðsnefndar Árnesinga

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

26. Fundargerð vorfundar Tónlistarskóla Árnesinga

Tekin var til umræðu 6 liður fundargerðar, tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun yfirstandandi árs. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Árnesinga fyrir árið 2025. Fundargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.

 

27. Upplýsingar af fjarfundi um stöðu brennslumála

Glærur af fjarfundi um stöðu brennslumála lagðar fram til kynningar.

 

Fundi slitið kl. 12:00

 

Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 4. júní, kl. 9.00, í Árnesi.

 

Fundargerð undirrituð rafrænt. 

Skjöl