- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:
1. Skýrsla oddvita á 84. sveitarstjórnarfundi
Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.
2. Afréttamálanefnd Gnúpverja - umræður um ósk fjallkóngs Gnúpverja
Inn á fundinn kemur afréttamálanefnd Gnúpverja og fjallkóngur Gnúpverja til að ræða fyrirkomulag reksturs og rétta í framhaldi af erindi fjallkóngs til sveitarstjórnar. Umræður urðu um erindið.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps felur sveitarstjóra að kalla saman vinnuhóp sem samanstendur af oddvita, formanni afréttamálanefndar Gnúpverja, formanni afréttamálafélags Flóa og Skeiða, og fjallkóngum beggja afrétta, þar sem mögulegar sviðsmyndir um framtíðarfyrirkomulag rekstrar og rétta verða settar fram með öryggi smala og dýravelferð í huga.
3. Samþykktir Sorpstöðvar Suðurlands - síðari umræða
Lagðar fram til síðari umræðu samþykktir fyrir Sorpstöð Suðurlands eftir breytingar sem samþykktar voru á aukaaðalfundi Sorpstöðvar Suðurlands þann 16. janúar 2026.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum samþykktir fyrir Sorpstöð Suðurlands
4. Bréf til allra kjörinna fulltrúa - Vagna aðalfundar Lánasjóðsins 2026
Lagt fram bréf frá lánasjóði sveitarfélaga þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga. Óskað er eftir framboðum í síðasta lagi þann 27. febrúar.
5. Styrktarsjóður EBÍ
Lagt fram bréf frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands, þar sem aðildarsveitarfélög eru minn á að hægt er að sækja um í styrktarsjóð félagsins. Einnig lagðar fram reglur fyrir styrktarsjóð EBÍ
6. Einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga
Lagt fram bréf frá Innviðaráðuneytinu þar sem óskað er eftir tillögum um hvernig megi einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga. Öll ráðuneyti í Stjórnarráðinu koma að verkefninu en Innviðaráðuneytið heldur utan um verkefnið.
7. Beiðni um umsögn vegna uppfærðrar umsóknar Rauðukamba um nýtingarleyfi fyrir jarðhita
Með vísan til 3. mgr. 6. gr. laga, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu nr.
57/1998 óskar Umhverfis- og orkustofnun eftir umsögn Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna umsóknar Rauðukamba ehf. um leyfi til nýtingar á jarðhita í Þjórsárdal.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum að gera ekki athugasemd við fyrirhugað leyfi til nýtingar á jarðhita í Þjórsárdal.
Axel Á. Njarðvík greiðir atkvæði gegn því að ekki sé veitt umsögn um málið og gerir athugasemd um veitingu nýtingarleyfis fyrir jarðhita og leggur fram eftirfarandi bókun:
Ég vil koma því á framfæri að tryggja þarf að magnstaða, þ.e magnstöðuástand grunnvatshlotanna hafi verið metið af þar til gerðu stjórnvaldi og sé í samræmi við þolmat þeirra. Til að mynda virðist ekki liggja fyrir afmörkun né magnstöðuástand grunnvatns í samræmi við lög um stjórn vatnamála og vatnatilskipun Evrópusambandsins. Kallað er hér eftir nýtingaleyfi til 65 ára á vatni sem er samt lögformlega í þjóðareign og þar með í almannaeign. Aðgangurinn að þessu vatni er þannig einkavæddur. Langtímaleyfi eru í raun næstum eins og eignarhald sem veldur áhyggjum um aðgang almennings í framtíðinni að vatni. Með þessu móti má sveitarfélag ekki veita öðrum aðgang á sama svæði, því einungis fyrirtækið nýtir vatnið. Eignarhald á fyrirtækjum breytist eins og dæmi sanna og því varðar þetta tiltekna mál þjóðaröryggi og grundvallarauðlind.
8. Beiðni um umsögn v. uppfærðrar umsóknar Rauðukamba um nýtingarleyfi fyrir kalt grunnvatn
Með vísan til 3. mgr. 6. gr. laga, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu nr.
57/1998 óskar Umhverfis- og orkustofnun eftir umsögn Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna umsóknar Rauðukamba ehf um leyfi til nýtingar á grunnvatni í Þjórsárdal.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum að gera ekki athugasemd við fyrirhugað leyfi til nýtingar á grunnvatni í Þjórsárdal.
Axel Á. Njarðvík greiðir atkvæði gegn því að ekki sé veitt umsögn um málið og gerir athugasemd um veitingu nýtingarleyfis fyrir kalt vatn og leggur fram eftirfarandi bókun um:
Ég vil koma því á framfæri að tryggja þarf að magnstaða, þ.e magnstöðuástand grunnvatshlotanna hafi verið metið af þar til gerðu stjórnvaldi og sé í samræmi við þolmat þeirra. Til að mynda virðist ekki liggja fyrir afmörkun né magnstöðuástand grunnvatns í samræmi við lög um stjórn vatnamála og vatnatilskipun Evrópusambandsins. Kallað er hér eftir nýtingaleyfi til 65 ára á vatni sem er samt lögformlega í þjóðareign og þar með í almannaeign. Aðgangurinn að þessu vatni er þannig einkavæddur. Langtímaleyfi eru í raun næstum eins og eignarhald sem veldur áhyggjum um aðgang almennings í framtíðinni að vatni. Með þessu móti má sveitarfélag ekki veita öðrum aðgang á sama svæði, því einungis fyrirtækið nýtir vatnið. Eignarhald á fyrirtækjum breytist eins og dæmi sanna og því varðar þetta tiltekna mál þjóðaröryggi og grundvallarauðlind.
9. Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 0502/2025 í Skipulagsgátt
Lögð fram umsagnarbeiðni úr Skipulagsgátt frá Hrunamannahreppi vegna aðalskipulagsbreytinar í Kjóabyggð/Álftabyggð.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að gera ekki athugasemd við fyrirhugaða aðalskipulagsbreytingu í Kjóabyggð/Álftabyggð í Hrunamannahreppi.
10. Kæra Náttúrugrið á ákvörðun Skipulagsstofnunar
Lögð fram til kynningar fyrir sveitarstjórn kæra Náttúrugrið vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um að framkvæmdir við tilfærslu farvegar Þjórsárkvíslar skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum..
11. Hvatning til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar
Lagt fram erindi frá Ögmundi Gíslasyni frá Atlantsflugi þar sem sveitarstjórnir eru hvattar til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu á einni af þyrlum Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri.
12. Frumvörp til breytinga á eftirliti á vegum sveitarfélaganna.
Lagt fram bréf og fylgigögn frá framkvæmdastjóra Heilbrigðisnefndar Suðurlands vegna fyrirhugaðra breytinga á heilbrigðiseftirliti á Íslandi.
13. Fundargerð 319. fundar skipulagsnefndar
Minni-Núpur L166583; Búrfellslína 1, tilfærsla v. Hvammsvirkjun; Framkvæmdarleyfi - 2601077
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna færslu Búrfellslínu 1 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í framkvæmdinni felst tilfærsla raflínu vegna tengingar hennar við Hvammsvirkjun og til að færa línuna frá stíflumannvirkjum. Framkvæmdin er unnin af Landsneti og er sótt um framkvæmdaleyfi á grundvelli reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Axel Á. Njarðvík greiðir atkvæði gegn útgáfu framkvæmdaleyfis vegna færslu Búrfellslínu 1 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og leggur fram eftirfarandi bókun:
Ég tel orðið tímabært að Búrfellslína 1 verði tekin niður enda fer hún að nálgast sextugsaldurinn og ljúka sinni tíð. Rétt væri því að falla frá þessum flutningi og fara í að taka línuna niður.
14. Fundargerð 12. fundar oddvitanefndar
Lögð er fram fundargerð Oddvitanefndar uppsveita Árnessýslu frá 26. janúar 2026. Sérstaklega eru teknir fyrir liðir 1-5 í fundargerðinni.
Liður 1 - Rekstrarform Laugaráshéraðs
Oddvitanefndin leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaga Laugaráshéraðs að samþykkja að fela Dagnýju Sif Sigurbjörnsdóttur hdl., Lögmönnum Suðurlandi, að ganga frá tilkynningu til Skattsins/Fyrirtækjaskrár um slit og afskráningu Laugaráshéraðs að frágengnu samþykki, frágangi og eftir atvikum þinglýsingu skjala skv. fundarliðum 2-4 á fundinum.
Lagt er til að samþykkja tillögu oddvitanefndar þess efnis að sveitarstjórn samþykki að fela Dagnýju Sif Sigurbjörnsdóttur hdl., Lögmönnum Suðurlandi, að ganga frá tilkynningu til Skattsins/Fyrirtækjaskrár um slit og afskráningu Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, að frágengnu samþykki, frágangi og eftir atvikum þinglýsingu skjala skv. fundarliðum 2-4 á fundinum sem verða nú teknir sérstaklega fyrir.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum
Liður 2 - Drög að nýjum samstarfssamningi um jörðina Laugarás
Oddvitanefndin leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaga Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, að samþykkja fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi um jörðina Laugarás.
Lagt er til að samþykkja tillögu oddvitanefndar þess efnis að sveitarstjórn samþykki fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi um jörðina Laugarás, Bláskógabyggð, L167138, og að sveitarstjóra verði falið að undirrita samninginn f.h. sveitarfélagsins. Samningurinn nær til jarðarinnar sjálfrar og allra þeirra lóða sem hefur verið skipt út úr henni með öllu sem þeim fylgir og fylgja ber.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi með fimm atkvæðum og felur sveitarstjora að undirrita samninginn f.h. sveitarfélagsins.
Lagt er til að sveitarstjórn samþykki einnig að koma að viðræðum þeirra sveitarfélaga sem eiga jörðina Laugarás, Bláskógabyggð, L167138, um möguleg kaup Bláskógabyggðar á jörðinni með hliðsjón af fyrirliggjandi verðmati jarðarinnar. Sveitarstjóra verði jafnframt falið að fylgja viðræðunum eftir f.h. sveitarfélagsins og leggja eftir atvikum mögulegar útfærslur kaupa Bláskógabyggðar á jörðinni fyrir fund sveitarstjórnar að viðræðum loknum.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum og felur sveitarstjóra að fylgja viðræðum um málið eftir.
Liður 3 - Drög að eignayfirlýsingu vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs
Oddvitanefndin leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna að samþykkja fyrirliggjandi drög að eignayfirlýsingu vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs. Í yfirlýsingunni felst að við niðurlagningu Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, falli grunneignarréttur Laugaráshéraðs í öllum þeim fasteignum sem tilgreindar eru í fylgiskjali með eignayfirlýsingunni til eigenda Laugaráshéraðs í eftirtöldum eignarhlutföllum:
Hrunamannahreppur 30,0%
Skeiða- og Gnúpverjahreppur 24,9%
Grímsnes- og Grafningshreppur 11,9%
Bláskógabyggð 33,2%
Í eignayfirlýsingunni er tilgreint að framangreind sveitarfélög taki við öllum réttindum og skyldum Laugaráshéraðs í framangreindum hlutföllum og að öll veðbönd á eignunum haldi gildi sínu ásamt því að stór hluti hinna afsöluðu eigna séu leigulóðir og allir leigusamningar haldi gildi sínu.
Lagt er til að samþykkja tillögu oddvitanefndar þess efnis að sveitarstjórn samþykki fyrirliggjandi drög að eignayfirlýsingu vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, og að sveitarstjóra verði falið að undirrita eignayfirlýsinguna f.h. sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir tillögu oddvitanefndar með fimm atkvæðum og felur sveitarstjóra að undirrita fyrirliggjandi drög að eignayfirlýsingu vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs.
Liður 4 - Drög að yfirlýsingu um ráðstöfun fjármuna og greiðslu kostnaðar vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs og hagmunagæslu vegna jarðarinnar Laugaráss
Oddvitanefndin leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna að samþykkja fyrirliggjandi drög að yfirlýsingu um ráðstöfun fjármuna og greiðslu kostnaðar vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, og hagmunagæslu vegna jarðarinnar Laugaráss.
Lagt er til að samþykkja tillögu oddvitanefndar þess efnis að sveitarstjórn samþykki fyrirliggjandi drög að yfirlýsingu um ráðstöfun fjármuna og greiðslu kostnaðar vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, og hagmunagæslu vegna jarðarinnar Laugaráss, L167138, og að sveitarstjóra verði falið að undirrita yfirlýsinguna f.h. sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir fyrirliggjandi drög að yfirlýsingu um ráðstöfun fjármuna og greiðslu kostnaðar vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs með fimm atkvæðum og felur sveitarstjóra að undirrita yfirlýsinguna f.h. sveitarfélagsins.
Liður 5 - Húsnæði heilsugæslunnar Laugarási – misskráningar í fasteignaskrá
Oddvitanefndin leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna að samþykkja að fela Dagnýju Sif Sigurbjörnsdóttur hdl., Lögmönnum Suðurlandi, að fylgja eftir hagsmunagæslu aðildarsveitarfélaganna vegna eignarhluts þeirra í fasteigninni og eftir atvikum annarra misskráninga sem kunna að vera í fasteignaskrá og þinglýsingum vegna jarðarinnar Laugarás og útskiptra lóða.
Lagt er til að samþykkja tillögu oddvitanefndar þess efnis að sveitarstjórn samþykki að fela Dagnýju Sif Sigurbjörnsdóttur hdl., Lögmönnum Suðurlandi, að fylgja eftir hagsmunagæslu aðildarsveitarfélaganna vegna eignarhluts þeirra í fasteigninni og eftir atvikum annarra misskráninga sem kunna að vera í fasteignaskrá og þinglýsingum vegna jarðarinnar Laugaráss og útskiptra lóða.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum tillögu oddvitanefndar um að fela Dagnýju Sif Sigurbjörnsdóttur að fylgja eftir hagsmunagæslu aðildarsveitarfélaganna vegna eignarhluts þeirra í fasteigninni og eftir atvikum annarra misskráninga sem kunna að vera í fasteignaskrá og þinglýsingum vegna jarðarinnar Laugaráss og útskiptra lóða.
15. Fundargerð 133. fundar stjórnar UTU
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Varðandi lið 2, Merkjalýsingar og lóðamál, þá samþykkir Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps með fimm atkvæðum fyrirliggjandi ferla um afgreiðslur á merkjalýsingum og að starfsmenn UTU undirriti merkjalýsingar. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að skipulagsfulltrúi UTU fái umboð til að undirrita, fullgilda og ljúka við alla nauðsynlega skjalagerð í tengslum við merkjalýsingar þar sem aðildarsveitarfélögin eru landeigendur.
16. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-243
Fundargerð lögð fram til kynningar.
17. Fundargerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga nr. 215
Fundargerð lögð fram til kynningar.
18. Fundargerð 91. fundar stjórnar Bergrisans
Fundargerð lögð fram til kynningar.
19. Fundargerð 25. fundar stjórnar Arnardrangans
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundi slitið kl. 11.45.
Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 4. mars kl. 9.00, í Árnesi.
Fundargerð undirrituð rafrænt.