Sveitarstjórn

69. fundur 04. júní 2025 kl. 09:00 - 12:45 Árnesi
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jónsson
  • Vilborg Ástráðsdóttir
  • Bjarni Hlynur Ásbjörnsson
  • Gunnar Örn Marteinsso
  • Axel Á. Njarðvík
Starfsmenn
  • Sylvía Karen Heimisdóttir
Fundargerð ritaði: Sylvía Karen Heimisdóttir

Árnesi, 4. júní 2025
69. sveitarstjórnarfundur

 

Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.

 

1. Skýrsla oddvita á 69. sveitarstjórnarfundi

Oddviti fer yfir verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.

2. Frístundastyrkur barna í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Lagðar fram uppfærðar reglur um tómstundastyrk í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í fyrri reglum var tómstundastyrkur fyrir börn á aldrinum 6-18 ára sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu en í uppfærðum reglum verður tómstundastyrkur fyrir öll börn á aldrinum 0-17 ára sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum uppfærðar reglur um tómstundastyrk í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og rúmast breytingin innan viðauka við fjárhagsáætlun skv. lið 3 í fundargerð.

 

3. Fjárhagsáætlun 2025-2028 - viðauki II

Lagður fram viðauki II við fjárhagsáætlun ársins 2025-2028. Áhrif viðaukans nema auknum rekstrarkostnaði að fjárhæð 7,3 milljónum og felast í auknu framlagi til Brunavarna Árnessýslu, Tónlistarskóla Árnesinga og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands vegna samþykktar á nýjum kjarasamningum. Heildaráhrif nýrra kjarasamninga nema 3,7 millj. kr. Einnig er gert ráð fyrir aukinni styrkveitingu til æskulýðs- og íþróttamála í tengslum við breytingu á reglum um tómstundastyrki í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og nema áhrif breytinganna um 3,6 millj. kr. Áhrifum viðaukans er mætt með lækkun á handbæru fé.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum viðauka II við fjárhagsáætlun 2025-2028 og felur sveitarstjóra að skila honum inn til viðkomandi aðila.

 

4. Gjaldskrár v. útleigu á húsnæði sveitarfélagsins

​Lagðar fram gjaldskrár vegna útleigu á félagsheimilinu í Brautarholti og gamla bókasafnshúsinu í Brautarholti.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum gjaldskrár fyrir félagsheimilið í Brautarholti og gamla bókasafnshúsinu í Brautarholti.

 

5. Reglur vinnuskóla Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Lagðar fram reglur um vinnuskóla Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagðar reglur um vinnuskóla í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

 

6. Umsókn um rekstrarleyfi í flokki IV – B Stærra gistiheimili

​Lögð fram umsagnarbeiðni frá Engjar ehf vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðar í flokki IV – B stærra gistiheimili á Hestakránni að Húsatóftum 5.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemdir við umsókn um rekstrarleyfi í flokki IV frá Engjar ehf.

 

7. Stofnun lögbýlis á Sandlækjarmýri L201309

​Lögð fram umsagnarbeiðni vegna stofnunar lögbýlis á Sandlækjarmýri, landnúmer L201309.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps felur sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um fyrirhuguð uppbyggingaráform.

 

8. Umferðarhraði við sumarhúsabyggð við Flatir

Reglulega hafa borist kvartanir til sveitarstjóra um mikinn umferðarhraða á Flötunum. Samkvæmt 3. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 ákveður sveitarstjórn hraðamörk að fenginni umsögn lögreglu.  50 km hraði er reglan innan þéttbýlis en þá þarf viðkomandi hverfi að vera skilgreint sem þéttbýli og afmarkað með þéttbýlismerkjum. Ef ekki þá gildir í raun almenna reglan í dreifbýli 80 km á malarvegi og 90 km hraði á malbiki nema annað sé ákveðið af sveitarstjórn og gefið til kynna með umferðarmerkjum. Flatirnar eru ekki skilgreindar innan þéttbýlismarka og því má leiða af því líkum að á svæðinu sé 80 km hámarkshraði.

Lagt er til að sveitarstjóra verði falið að fá umsögn hjá lögreglu um lækkun hámarkshraða á svæðinu niður í 30 km. Í framhaldinu ákveði sveitarstjórn að lækka hraðann niður í 30 km og að skilti um slíkt verði sett upp.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fela sveitarstjóra að fá umsögn hjá lögreglu um lækkun hámarkshraða á Flötunum niður í 30km hraða og leggja málið aftur fyrir sveitarstjórn þegar umsögn lögreglu liggi fyrir.

 

Axel Á. Njarðvík lagði fram eftirfarandi bókun við málið:

Samfara þessu þá verði hraði dreginn niður þar sem bæir standa nærri malarvegum og í öllum sumarbústaðasvæðum.

Ég lýsi líka yfir áhyggjum af þungaflutningum á vegi 32, þar sem hann virðist ekki vera gerður fyrir þá umferð sem í vændum er. Fara þarf fram á að vegur 32 sé tekinn í heild sinni til verka frá Sandlækjarmýri og jafnvel vegur 30 frá Skeiðavegamótum.

 

9. Rarik-Orkumál sveitarfélaga

Lagt fram bréf frá forstjóra Rarik þar sem fjallað er um orkumál sveitarfélaga og mikilvægi þess að halda áfram góðu samtali og samstarfi þegar kemur að dreifikerfi raforku í sveitarfélaginu.

10. Hússtjórn Þjóðveldisbæjarins

​Stjórn Hússtjórnar Þjóðveldisbæjarins.

Afgreiðslu málsins frestað.

 

11. Ályktun aðalfundar Skógfræðingafélags Íslands 2025

Lögð fram ályktun aðalfundar Skógfræðingafélags Íslands þar sem beint er fram mikilvægi grænna svæða í þéttbýli fyrir lýðheilsu fólks. Skógfræðingafélag Íslands lýsir yfir áhuga á að fræða sveitarstjórnir um uppbyggingu og umhirðu skógarsvæða í og við þéttbýli íbúum til heilla.

12. Ársfundar Brákar íbúðafélags hses. 11. júní 2025

Lagt fram fundarboð til ársfundar Brákar íbúðafélags hses. miðvikudaginn 11. júní 2025 kl. 11:30. Sveitarstjórn þarf að skipa fulltrúa á aðalfundinn

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að skipa Harald Þór Jónsson sem fulltrúa Skeiða- og Gnúpverjahrepps á aðalfundi Brákar íbúðafélags hses sem haldinn verður miðvikudaginn 11. júní.

 

13. Stjórnskipulag og hópslysaáætlun á Suðurlandi

Búið er að samþykkja nýja framsetningu á viðbragðsáætlunum fyrir Suðurland.

Almannavarnarnefndir á Suðurlandi hafa samþykkt áætlanirnar og búið er að skrifa undir stjórnskipulag aðgerðarstjórnar á Suðurlandi ásamt hópslysaáætlun fyrir Suðurland. Skýrslur um stjórnskipulag aðgerðarstjórnar ásamt atviksáætlun vegna hópslysa lagðar fram til kynningar.

 

14. Fundargerð 303. fundar skipulagsnefndar

Búrfells- og Skeljafellsland L223324; Bakkavörn við Fossá í Þjórsárdal; Framkvæmdarleyfi - 2505036

Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Búrfells- og Skeljafellslands L223324. Í framkvæmdinni felst gerð 350 m langrar bakkavarnar við Fossá í Þjórsárdal.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi og fyrir liggja umsagnir frá Veiðifélagi Þjórsár, Fiskistofu og Hafrannsóknarstofnun er ekki talin þörf á grenndarkynningu.

 

Veiting Austurkvíslar Þjórsárkvísla í fyrri farveg; Umsagnarbeiðni - 2505061

Lögð er fram umsagnarbeiðni vegna tilkynningar um matsskyldu sem tekur til Austurkvíslar Þjórsárkvísla.

Að mati sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps er gerð grein fyrir framkvæmdinni í framlögðum gögnum en æskilegt er að framkvæmdin fari í umhverfismat. Líkt og fram kemur innan gagnanna er framkvæmdin sem fjallað er um innan skýrslunnar háð útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar um útgáfu framkvæmdaleyfa nr. 772/2012 þar sem tilgreint er í 5. gr. að stíflur eða breytingar á árfarvegi séu háðar útgáfu framkvæmdaleyfis.

 

Vorsabær 2 L166502; Vorsabær 2A og 2B og Vorsalir; Stofnun lóða - 2505074

Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 12.05.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun 3ja nýrra landeigna úr landi Vorsabæjar 2 L166502. Óskað er eftir að stofna Vorsabæ 2A, 1.157,32 fm lóð undir þegar byggt íbúðarhús og bílskúr, Vorsabæ 2B, 7.928,37 fm lóð undir þegar byggt starfsmannahús og Vorsali sem er 3.048,27 fm óbyggð lóð. Fyrir liggur rökstuðningur um hvaðan nafnið Vorsalir er fengið.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemd við stofnun lóðanna eða staðfang lóðar Vorsala skv. framlagðri merkjalýsingu. Sveitarstjórn samþykkir erindið. Sveitarstjórn bendir á að framkvæmdir innan lóðar eru að jafnaði háðar gerð deiliskipulags sem tekur til svæðisins.

 

Gunnbjarnarholt (L166549); byggingarheimild; vélaskemma - 2505081

Móttekin var umsókn þann 23.05.2025 um byggingarheimild fyrir 945,2 fm vélaskemmu á jörðinni Gunnbjarnarholt L166549 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Innan byggingarlýsingar aðaluppdráttar sem tekur til hússins er tilgreint að umsótt hús falli ekki að skilmálum deiliskipulags er varðar hæð, stærð og staðsetningu hússins. Jafnframt er þess óskað að heimiluð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi á grundvelli framlagðra gagna. Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við að lögð verði fram breyting á deiliskipulagi sem tekur til aukins byggingarmagns, hæðar og staðsetningar hússins og gerir ekki athugasemdir við gerð breytingar á deiliskipulagi svæðisins. Sveitarstjórn frestar því að gefa heimild til útgáfu byggingarleyfis meðan byggingaráform eru ekki í samræmi við deiliskipulag.

 

Aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps; Stækkun á Búðanámu; Aðalskipulagsbreyting - 2411052

Lögð er fram, eftir auglýsingu, tillaga breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Breytingin felur í sér stækkun á Búðanámu vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Búðafossvegi. Stærð námunnar er 1 ha og heimiluð efnistaka er 50.000 m3. Náman verður stækkuð í 4,5 ha og efnismagn sem heimilt verður að taka er hækkað í 60.000 m3. Umsagnir bárust á auglýsingartíma skipulagsbreytingar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum málsaðila.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Að mati sveitarstjórnar er brugðist við umsögnum með fullnægjandi hætti innan samantektar vinnsluaðila skipulagsbreytingar á umsögnum og viðbrögðum. Sveitarstjórn tekur undir þau rök sem þar eru færð fyrir frekari efnistöku úr námunni og stækkun hennar. Sveitarstjórn óskar eftir því Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Axel Á. Njarðvík greiðir atkvæði gegn breytingu á aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps og bókar eftirfarandi um málið:

 

Ég vil hafna þessari breytingu á aðalskipulagi og tek undir ábendingar Náttúrufræðistofnunar sem fylgja þessu máli en þar segir m.a.: „að umrætt svæði í Þjórsárhrauni er að miklu leyti óraskað og að röskun þess hefði neikvæð og óafturkræf áhrif. ... verndargildi hraunsins hefur ekki verið metið með fullnægjandi hætti og ekki liggja fyrir viðhlítandi rök fyrir því að engir raunhæfir valkostir séu í boði í nágrenninu. ... Ekki kemur fram hvaða brýnu almannahagsmunir réttlæta röskun á hrauninu. Því þarf, í samræmi við ofangreint ákvæði náttúruverndarlaga, að koma fram hvaða brýnu almannahagsmunir réttlæta röskun á hrauninu.“ Ég tel að réttast væri að endurskoða þörfina á námunni frá grunni, með það að markmiði að forðast óþarfa rask á Þjórsárhrauni og þeirri merkilegu landslagsheild sem hraunið myndar með Búðaröðinni.

 

15. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 25-227

Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.

16. Fundargerð skólanefndar

Fundargerð lögð fram til kynningar.

17. Fundargerð 17. fundar skólanefndar Flúðaskóla

Fundargerð lögð fram til kynningar.

18. Fundargerðir Menningar- og æskulýðsnefndar

Fundargerð lögð fram til kynningar.

19. Fundargerð 122. fundar stjórnar UTU bs.

Varðandi lið 2 í fundargerð, tillögu frá fulltrúum Ásahrepps og Flóahrepps sem snýr að samþykktarbreytingu sem heimilar sveitarstjórnum að skipa áheyrnarfulltrúa í skipulagsnefnd UTU, þá tekur sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps vel í slíka breytingu um mun samþykkja hana verði það vilji aðildarsveitarfélaga UTU.

 

Fundargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.

20. Fundargerð Hússtjórnar Þjóðveldisbæjarins 8. maí 2025

Fundargerð lögð fram til kynningar.

21. Fundargerð stjórnar SASS nr. 622

Fundargerð lögð fram til kynningar.

22. Fundargerð 979. fundar stjórnar Sambandsins

Fundargerð lögð fram til kynningar.

23. Fundargerð 23. fundar stjórnar Arnardranga hses.

Fundargerð lögð fram til kynningar.

24. Fundargerð 85. fundar stjórnar Bergrisans bs.

Fundargerð lögð fram til kynningar.

25. Fundargerð 213. fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga

Fundargerð lögð fram til kynningar.

26. Ársreikningur Arnardrangs hses 2024

Ársreikningur lagður fram til kynningar.

27. Ársreikningur Orlof húsmæðra 2024

Ársreikningur lagður fram til kynningar.

 

 

Fundi slitið kl. 12:46.

 

Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 18. júní, kl. 9.00, í Árnesi.

 

Fundargerð undirrituð rafrænt.