Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.
1. Fundargerð 335. fundar skipulagsnefndar
Selið L222243; Nýtt frístundasvæði; Fyrirspurn – 2610052
Lögð er fram fyrirspurn um fyrirhugaða uppbyggingu nýrrar frístundabyggðar í landi Sels (Árhrauns), landnúmer L222243, í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Áformað er að afmarka nýtt frístundabyggðarsvæði í aðalskipulagi sveitarfélagsins 20192031 og vinna deiliskipulag fyrir svæðið samhliða. Gert er ráð fyrir smáhýsum og stærri frístundahúsum og að nýta fyrirliggjandi innviði á svæðinu.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps bendir á að samkvæmt skilmálum Aðalskipulags Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 skulu lóðir í frístundabyggð vera að jafnaði á stærðarbilinu 0,5 - 2 hektarar og uppfyllir því framlagður skipulagsuppdráttur ekki skilmála aðalskipulags. Einnig bendir sveitarstjórn á að umrætt svæði er á flóðasvæði þar sem lágmarks gólfkóti húsa skal vera 53 m.y.s. og kemur hvergi fram í framlögðum gögnum hvaða áhrif flóð geta haft á umrætt skipulagssvæði. Meðan framlögð gögn eru ekki í samræmi við aðalskipulag tekur sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps neikvætt í fyrirspurn um fyrirhugaða uppbyggingu frístundabyggðar í landi Sels við Árhraun. Ekki þykir sýnt fram á að fullnægjandi forsendur liggi fyrir varðandi umfang uppbyggingarinnar, umhverfisáhrif, fráveitu og aðra innviði. Þá liggja ekki fyrir nægjanlegar upplýsingar um mögulegar fornleifar á svæðinu. Áður en unnt er að taka afstöðu til fyrirhugaðrar uppbyggingar þarf að vinna frekar að þessum þáttum og sýna fram á samræmi við gildandi aðalskipulag og viðeigandi skipulagsforsendur.
Steinsholt 1 millispilda (L241658); byggingarheimild; gripahús – 2610042
Móttekin var umsókn þann 15.10.2026 um byggingarheimild fyrir 810 m2 gripahúsi á landinu Steinsholt 1 millispilda (L241658) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
2. Fundargerð 30. fundar skólanefndar
Fundargerð lögð fram til kynningar.
3. Gjaldskrá og álagningarforsendur 2027
Lögð fram drög að breytingum á gjaldskrám og álagningarforsendum fyrir árið 2026. Lagt er upp með að útsvarsprósenta verði óbreytt og engin gjaldskrá hækki umfram 2,5%. Einnig er lagt upp með að tekinn verði upp gjaldfrjáls leikskóli fyrir allt að 6 tíma vistun á dag.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir að gjaldskrár verði til grundvallar á vinnufundi fjárhagsáætlanagerðar og samþykkir sveitarstjórn með fimm atkvæðum að vísa gjaldskrám til síðari umræðu.
4. Fjárhagsáætlun 2027 og 2028-2030 - fyrri umræða
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og 2028-2030 lögð fram til fyrri umræðu. Farið var yfir helstu forsendur fjárhagsáætlunar og drög að fjárfestingaráætlun. Fyrir liggja vinnufundir sveitarstjórnar um fjárhagsáætlun á milli umræðna.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun vegna ársins 2027 og áranna 2028-2030 til síðari umræðu.
Vilborg Ástráðsdóttir víkur af fundi.
5. Erindi til sveitarstjórnar frá Hestamannafélaginu Jökli
Lagt fram bréf frá stjórn Hestamannafélagsins Jökuls þar sem óskað er eftir áframhaldandi samstarfi og fjárhagslegum stuðningi frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi við starf félagsins á sambærilegum nótum og núgildandi samningur sem er að renna út.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir samhljóða að taka vel í erindi um áframhaldandi stuðning við Hestamannafélagið Jökul og felur sveitarstjóra að vinna að nýjum styrktarsamningi við Hestamannafélagið Jökul.
Vilborg Ástráðsdóttir kemur aftur inn á fundinn.
6. Endurskoðun landbótaáætlunar
Lagt fram bréf frá Land og skógi vegna endurskoðunar landbótaáætlunar. Land og skógur vinnur nú að yfirferð og endurnýjun landbótaáætlana í tengslum við innleiðingu reglugerðar nr. 670/2024 um sjálfbæra landnýtingu. Í forgangi eru þær landbótaáætlanir sem unnar voru á grundvelli reglugerðar um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu nr. 511/2018. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum um ástand Gnúpverjaafréttar er það mat Lands og skóga að þörf sé á að gera nýja landbótaáætlun fyrir svæðið. Með bréfinu er kynnt niðurstöður ástandsmatsins og óskað eftir yfirferð sveitarstjórnar á þeim upplýsingum sem það byggist á og hefja samráð um gerð nýrrar áætlunar.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umfjöllunar í Loftslags- og umhverfisnefnd.
7. Endurskoðun húsnæðisáætlunar fyrir árið 2027
Lagt fram bréf frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þar sem hafin er endurskoðun á húsnæðisáætlun sveitarfélaga, sem sveitarstjórn skal uppfæra og skila inn fyrir 20. janúar 2027.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps felur oddvita að vinna að uppfærslu á húsnæðisáætlun í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir sveitarstjórn til samþykktar.
8. Aðstaða fyrir björgunarskóla Landsbjargar
Lagt fram erindi frá Björgunarsveit Sigurgeirs vegna óska um aðstöðu fyrir Björgunarskóla Landsbjargar.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps tekjur vel í erindið og samþykkir með fimm atkvæðum að fela sveitarstjóra að gera reglur er snúa að húsnæði sveitarfélagsins þegar kemur að notkun fyrir björgunarsveitir og aðra samfélagslega mikilvæga starfssemi.
9. Trúnaðarmál
Fært í trúnaðarmálabók.
10. Skýrsla oddvita
Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.
11. Fundargerð aðalfundar Listasafns Árnesinga bs. 29.09.2029
Undir dagskrárlið 5 í fundargerð, arfur til Listasafns Árnesinga:
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að veita arfi Frosta Fjalars Jónssonar, kt. 291236-3169, móttöku með þeim skilyrðum eða kvöðum sem settar eru fram í erfðaskránni í þágu markmiðs arfleiðslunnar og að færa málefni búsins í farveg opinberra skipta skv. ákvæðum laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum.
Fundargerð að öðru leiti lögð fram til kynningar.
12. Fundargerð aðalfundar Tónlistarskóla Árnesinga bs. 29.09.2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
13. Fundargerð aðalfundar Héraðsskjalasafn Árnesinga bs 29.09.2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
14. Fundargerð aðalfundar Byggðasafns Árnesinga bs. 29.09.2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
15. Fundargerð aðalfundar Héraðsnefndar Árnessýslu bs 29.09.2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
16. Fundargerð aðalfundar Brunavarna Árnessýslu bs. frá 29.09.2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
17. Fundargerð 258. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Fundargerð lögð fram til kynningar.
18. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-268
Fundargerð lögð fram til kynningar.
19. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-269
Fundargerð lögð fram til kynningar.
20. Fundargerð 4. fundar stjórnar UTU bs.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
21. Fundargerð 639. fundar stjórnar SASS
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundi slitið kl. 12:00
Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 18. nóvember kl. 9.00, í Árnesi.
Fundargerð undirrituð rafrænt.