Sveitarstjórn

96. fundur 16. september 2026 kl. 09:00 - 13:40 Árnes
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jónsson
  • Vilborg Ástráðsdóttir
  • Harpa Dís Harðardóttir
  • Sigurður Kristmundsson
  • Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir.
Starfsmenn
  • Sylvía Karen Heimisdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Sylvía Karen Heimisdóttir sveitarstjóri

Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.

Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:

Skipulags- og byggingarmál

1. Fundargerð 332. fundar skipulagsnefndar

Víðimýri L228878; Gerð deiliskipulags; Fyrirspurn - 2608067

Lögð er fram fyrirspurn er varðar Víðimýri L228878. Í fyrirspurninni er óskað eftir afstöðu skipulagsnefndar til þess að unnið verði deiliskipulag fyrir lóðina, þar sem byggingarreitur fyrir usumarhús og áhaldageymslu ásamt aðkomu að svæðinu verði skilgreindur.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að synja erindinu þar sem uppbyggingaráformin samræmast ekki aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029.

 

Efri-Brúnavellir 1 lóð L197554; Brúnavallakot; Breitt heiti lóðar - 2609008

Lögð er fram umsókn um breytingu á skráningu lóðar. Óskað er eftir því að lóðin Efri-Brúnavellir 1 lóð L197554 fái heitið Brúnavallakot.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum heitið Brúnavallakot í stað Efri-Brúnavellir 1 lóð skv. fyrirliggjandi umsókn.

 

Gnúpverjaafréttur L223326; Spornað við breytingu árfarvegar með leiðigarði og rás; Framkvæmdarleyfi - 2609006

Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Gnúpverjaafréttar L223326. Í framkvæmdinni felst gerð leiðigarðs og rásar í Austurkvísl Þjórsárkvísla á malareyrum skammt ofan Þjórsárlóns. Tilgangur framkvæmdarinnar er að beina rennsli Austurkvíslar Þjórsár í fyrra horf, þannig að hún renni aftur inn í Þjórsárlón.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.

Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins á meðan ekki liggur fyrir samþykkt framkvæmdaleyfi frá Náttúruverndarstofnun.

 

Rauðukambar L234185; Rafstrengur - plæging, að hóteli; Framkvæmdarleyfi - 2609011

Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Rauðukamba L234185. Í framkvæmdinni felst lagning rafstrengs að hóteli í landi Rauðukamba.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

2. Erindi til sveitarstjórnar frá faghópi 3 í Rammaáætlun

​​​Lagt fram bréf til sveitarstjórnar frá faghópi 3 þar sem leitar er eftir áliti sveitarstórnar á vindorkuhugmyndum sem eru til umfjöllunar í 6. áfanga Rammaáætlunar.

Verkefnastjórn rammaáætlunar hefur verið falið að ljúka mati á sjö virkjunarhugmyndum sem hafa verið til mats í fyrri áföngum, þar á meðal Hrútmúlavirkjun sem væri staðsett í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Við matið á m.a. að fara eftir nýjum lögum sem samþykkt voru á Alþingi 19. júní á þessu ári, sem snúa sérstaklega að vindorkuverum í rammaáætlun. Í 5. grein laganna eru ýmis atriði sem snúa að samfélagsáhrifum virkjana og áforma um virkjun á ákveðnum stað. Þar er m.a. tekið fram að horfa eigi til þess hvort „viðkomandi sveitarfélag hafi lýst yfir formlegri afstöðu til virkjunarhugmyndar og hvaða sjónarmið liggja til grundvallar; jafnframt skal litið til umsagna nálægra sveitarfélaga hafi virkjunarhugmynd áhrif á hagsmuni þeirra.“. Einnig er nefnt að meta eigi hvort að virkjunarhugmyndin efli raforkuöryggi og hver áhrifin yrðu mögulega á atvinnu- og byggðaþróun, auk áhrifa á „íbúa nærumhverfis“.

Samkvæmt drögum að frumvarpi um rýmiseignir er áhrifasvæði vindorkuvera skilgreint sem 30 km og því myndi Skeiða- og Gnúpverjahreppur augljóslega lenda innan þeirra marka frá virkjunarhugmyndinni Hrútmúlavirkjun, sem yrði með staðsetningu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að hafna fyrirhugaðri Hrútmúlavirkjun eins og verkefnið liggur fyrir og telur að ekki séu forsendur til þess að færa virkjunarkostinn í orkunýtingarflokk rammaáætlunar.

Afstaðan byggist á því að ekki hefur verið sýnt fram á nægjanlegan samfélagslegan ávinning af verkefninu fyrir Skeiða- og Gnúpverjahrepp eða nærsamfélagið, á meðan fyrirliggjandi gögn benda til verulegra neikvæðra áhrifa á samheldni samfélags, landslag, búsetugæði, ferðaþjónustu, útivist og aðra landnotkun.

Sveitarstjórn telur jafnframt að framkvæmdaraðila hafi ekki tekist að byggja upp nauðsynlegt traust og samfélagslega sátt um verkefnið. Kynning og samráð við íbúa og nágranna framkvæmdasvæðisins hefur að mati sveitarstjórnar verið ófullnægjandi miðað við umfang og varanleika framkvæmdarinnar.

Sveitarstjórn minnir jafnframt á fyrri afstöðu sína frá 15. febrúar 2023 um að tryggja verði með lögum að nærsamfélagið þar sem orkuauðlindir eru nýttar njóti sanngjarns og varanlegs efnahagslegs ávinnings af þeirri starfsemi. Sú grundvallarafstaða stendur óbreytt.

Sveitarstjórn telur að almenn þörf fyrir aukna raforkuframleiðslu geti ekki ein og sér réttlætt einstakan virkjunarkost. Meta verði hvert verkefni með hliðsjón af staðsetningu, áhrifum á íbúa og atvinnustarfsemi, samfélagslegri sátt og því hvort sanngjarnt jafnvægi sé á milli ávinnings verkefnisins og þeirra byrða sem nærsamfélagið ber.

Að mati sveitarstjórnar er slíkt jafnvægi ekki fyrir hendi í tilviki Hrútmúlavirkjunar.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps beinir því til verkefnisstjórnar rammaáætlunar að Hrútmúlavirkjun verði ekki færð í orkunýtingarflokk.

 

3. Skil á lóð- Vallarbraut 1-5

Lagt fram erindi frá Ólafsvöllum ehf. þar sem óskað er eftir því að skila lóðinni Vallarbraut 1-5 í Brautarholti.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að lóðinni Vallarbraut 1-5 í Brautarholti verði skilað inn og felur sveitarstjóra að auglýsa hana aftur.

 

4. Viðauki við leigusamning um Hólaskóg

​Lögð fram til samþykktar drög að viðauka við leigusamningi um lóðina og fjallaskála við Hólaskóg milli sveitarfélagsins og Hrauneyja ehf. Tilgreindur samningstími í lóðarleigusamningi er fimm ár frá 1. mars 2021, með ákvæði um gerð nýs lóðarleigusamnings í framhaldi af gerð deiliskipulags svæðisins. Með viðauka er samningstími lengdur um 2 ár eða til 1. mars 2028.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum viðauka við samninginn um tímabundna framlengingu til 1. mars 2028 á meðan vinnu við deiliskipulag um svæðið klárast. Að þeim tíma liðnum verði gerður 40 ára leigusamningur í samræmi við upphaflegan samning.

 

5. Setrið- auglýsing

Lögð fram auglýsing um leigu á lóð á Gnúpverjaafrétti L240005. Á lóðinni er Fjallaskáli í eigu Ferðaklúbbsins 4x4. Lóðin er 14.620 m2 að stærð, stofnuð úr Flóa og Skeiðamannaafrétt (L223325), stærð fyrir 80095,9ha. Svæðið er innan friðlands Þjórsárvera.

Umrædd lóð er á þjóðlendu (Flóa- og Skeiðamannaafrétti) skv. úrskurði óbyggðanefndar frá 21. mars 2002 í máli nr. 7/2000. Í ljósi þess þarf leyfi sveitarfélagsins Skeiða- og Gnúpverjahrepps til að nýta land og landsréttindi á svæðinu, sbr. 3. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlenda og afrétta. Jafnframt þarf samþykki forsætisráðuneytisins, þar sem umrædd nýting á að vara lengur en til eins árs, sbr. 2. mgr. 3. gr. sömu laga.

Það er stefna Skeiða- og Gnúpverjahrepps að nýting hálendisins til útivistar og ferðaþjónustu verði sjálfbær í sátt við náttúru og umhverfi þannig að yfirbragð hálendisins haldist að mestu ósnortið. Er það í samræmi við rammaskipulag sveitarfélagsins, landsskipulagsstefnu og stefnu forsætisráðuneytis um samþykki fyrir nýtingu lands og landsréttinda.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagða auglýsingu og felur sveitarstjóra að auglýsa lóðina.

 

6. Búðafossvegur – beiðni um geymslusvæði fyrir grjót og síulag

Lagt fram erindi frá Landsvirkjun þar sem óskað er eftir mögulegu geymslusvæði við iðnaðarsvæði í Árnesi þar sem stendur til að geyma efni sem notað verður í Búðafossveg og við nýja brú yfir Þjórsá.​ Geymslusvæðið þarf að vera tiltækt yfir framkvæmdatíma Búðafossvegar.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að útvega Landsvirkjun geymslusvæði á skilgreindu iðnaðarsvæði við hlið gámasvæði sveitarfélagsins. Mikilvægt er að skipulag svæðisins um efnistökuna og frágang á geymslutíma verði í samræmi við umræðu í sveitarstjórn og oddvita falið að eiga samskipti við Landsvirkjun um útfærslu geymslusvæðisins.

 

Skólamál

7. Heimsókn forstöðumanns Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.

​Hallur Símonarson, forstöðumaður Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. kemur inn á fund sveitarstjórnar og fer yfir starfsemi og skipulag Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings auk þeirra málefna sem falla undir byggðasamlagið.

Sveitarstjórn þakkar Halli Símonarsyni fyrir góða kynningu og gott samtal um stöðu skóla- og velferðarmála í sveitarfélaginu.

 

8. Aðgerðaráætlun um innleiðingu farsældarlaga

Lögð fram til kynningar fyrir sveitarstjórn aðgerðaráætun um innleiðingu farsældarlaga ásamt erindisbréfi stýrihóps um innleiðingu farsældarlaga.​

 

9. Umsókn um leikskóladvöl utan lögheimilis

Lögð fram umsókn um leikskóladvöl frá Hrunamannahreppi þar sem óskað er eftir að nemandi fái 8 tíma leikskólavist í leikskólanum Leikholti veturinn 2026-2027.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum umsókn um leikskóladvöl barns í Leikholti.

 

Almenn mál

10. Lántaka og framlenging yfirdráttarheimildar

Á árunum 2023-2026 hefur sveitarfélagið fjárfest í varanlegum fastafjármunum fyrir um 2 milljarða. Á þeim tíma hefur engin langtíma lántaka átt sér stað. Sveitarfélagið hefur haft aðgang að lánalínu að upphæð 800 milljónir sem nú er búið að fullnýta. Síðustu vikur hefur verið unnið að því að ganga frá langtíma lántöku í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun ársins 2026. Í núverandi áætlun er gert ráð fyrir langtímalántöku að upphæð 845 milljónir. Fyrir liggja tilboð í langtíma fjármögnun samtals að fjárhæð 800 milljónir sem lögð eru fyrir sveitarstjórn. Einnig er gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins 2026 að skammtímafjármögnun sé allt að 200 milljónir.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að taka tilboði Landsbankans og Lánasjóðs sveitarfélag í óverðtryggða langtímafjármögnun samtals að fjárhæð 800 milljónir, sem skiptist í 400 milljónir hjá hvorum lánveitanda. Einnig er samþykkt að taka tilboði Landsbankans um að núverandi lánalína verði lækkuð niður í 200 milljónir og haldi gildistíma sínum til 1. mars 2028. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir sveitarstjórn til endanlegrar staðfestingar þegar lánapappírar eru tilbúnir. Á meðan málið er í vinnslu, samþykkir sveitarstjórn með fimm atkvæðum að sveitarstjóra verði heimilt að óska eftir því að yfirdráttarheimild sveitarfélagsins hjá Landsbankanum verði hækkuð tímabundið úr 50 milljónum í 100 milljónir eða til 5. apríl 2027.

 

11. Persónuverndarstefna Skeiða- og Gnúpverjahrepps - síðari umræða

Lögð fram uppfærð persónuverndarstefna Skeiða- og Gnúpverjahrepps til síðari umræðu í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum uppfærða persónuverndarstefnu Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

 

12. Umsókn um leyfi til sölu gistingar

Lögð fram beiðni frá sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn um rekstrarleyfi til gistingar í flokki II – C minna gistiheimili að Vorsabæ 2a.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að gera ekki athugasemdir við leyfisveitinguna.

 

13. Skipan í nefndir

Lögð fram tillaga að eftirfarandi skipun í Farsældarráð Suðurlands:

Aðalmaður: Matthildur Elísa Vilhjálmsdóttir

Varamaður: Sophie Susanna Dobernigg

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum skipun í Farsældarráð Suðurlands með Matthildi Elísu Vilhjálmsdóttir sem aðalmann og Sophie Susanna Dobernigg sem varamann.

 

14. Skýrsla oddvita

Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.

15. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-261

Fundargerð lögð fram til kynningar.

16. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-262

Fundargerð lögð fram til kynningar.

17. Fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga 21. ágúst 2026

Fundargerð lögð fram til kynningar.

18. Fundargerðir 93., 94., 95. og 96. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga

Fundargerð lögð fram til kynningar.

19. Fundargerð 1.001 fundar stjórnar Sambandsins

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

Fundi slitið kl. 13:40

Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 7. október kl. 9.00, í Árnesi.

Fundargerð undirrituð rafrænt.