- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.
Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:
1. Ósk um lausn frá störfum í sveitarstjórn
Gunnar Örn Marteinsson óskar eftir lausn frá störfum í sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps frá 1. júlí 2026 og út kjörtímabilið.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að leysa Gunnar Örn Marteinsson frá störfum sem sveitarstjórnarfulltrúi frá og með 1. júlí 2026 og út kjörtímabilið. Í samræmi við 4. mgr. 31. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 tekur næsti kjörni fulltrúi E-listans, Sigurður Kristmundsson, við sæti aðalfulltrúa í sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps, eða frá og með 1. júlí 2026 og út kjörtímabilið.
Skólamál
2. Fundargerð 27. fundar skólanefndar
Fundargerð lögð fram og staðfest af sveitarstjórn.
3. Starfsfólk í mötuneyti Þjórsárskóla
Lögð fram drög að starfslýsingu vegna aðstoðar í eldhúsi mötuneytis Þjórsárskóla. Gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf í upphafi skólaárs 2026-2027.
Sveitarstjórn samþykkir með fimm atkvæðum drög að starfslýsingu og felur sveitarstjóra að auglýsa starfið.
Skipulags- og byggingarmál
4. Fundargerð 327. fundar skipulagsnefndar
Fundargerð lögð fram til kynningar.
5. Fundargerð 328. fundar skipulagsnefndar
Hvammsvirkjun; Efnistaka, vegir, strengir og afmarkanir; Deiliskipulagsbreyting - 2605086
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Hvammsvirkjunar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Rangárþingi ytra. Landsvirkjun hefur unnið að útboðshönnun á mannvirkjum tengdum Hvammsvirkjun í og við Þjórsá innan beggja sveitarfélaga. Ýmsar forsendur hafa breyst og er því gerð breyting á nokkrum þáttum deiliskipulagsins.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir að fá fulltrúa Landsvirkjunar inn á næsta fund til að fara yfir málið með sveitarstjórn.
Sandlækur 2 L166591; Verslunar- og þjónustusvæði; Aðalskipulagsbreyting - 2512021
Lögð er fram tillaga að aðalskipulagsbreytingu, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að sett verður inn nýtt verslunar- og þjónustusvæði sem nær yfir Sandlæk 2 L166591, Sandlæk I land 4 L212043, Sandlæk 1 lóð 5 L217870, Sandlæk 2 lóð L209688 og Sandlæk 1 L201306. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi. Markmið með breytingunni er að heimila gistingu fyrir allt að 40 gesti á um 3 ha svæði. Föst búseta verður áfram á svæðinu og heimilað verður að halda áfram búskap. Umsagnir bárust við kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Sandlækur 2 L166591, verslunar- og þjónustusvæði, í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga að undangenginni samþykkt HMS.
Bali L239322; Úr landi Steinsholts 1 L166598; Stækkun lóðar - 2606015
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 04.06.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun nýrrar lóðar. Óskað er eftir að afmarka nýja landspildu úr landi Steinsholts 1 L166598, stærð 552,1 m² sem sameinast síðar landi Bala L239322.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að gera ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið. Sveitarstjórn bendir á að þegar að lóðir eru stofnaðar innan jarða þá er æskilegt að þinglýsa kvöð um aðkomu.
6. Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 0746/2026 í Skipulagsgátt
Lögð fram til kynningar sveitarstjórnar matsskyldufyrirspurn vegna brennsluofns fyrir dýrahræ og dýraleifar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
7. Umsókn um byggingarlóð - Holtabraut 37-41
Lögð fram umsókn frá Guðrún Svövu Bjarnadóttur um lóðina Holtabraut 37-41.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að úthluta Guðrúnu Svövu Bjarnadóttur, kt. 261064-3329, lóðina Holtabraut 37-41 í samræmi við reglur um úthlutun lóða í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
8. Umsókn um leyfi – Háifoss
Lagt fram erindi frá Náttúruverndarstofnun um leyfi til að stækka bílastæði við Háafoss. Um er að ræða 450-500 fermetra stækkun sem kemur sem samtengd viðbót við núverandi stæði og í samræmi við gildandi deiliskipulag við Háafoss. Stækkunin er til að bregðast við auknum fjölda ferðamanna að Háafossi, en í júní voru á milli 3-400 manns sem komu að Háafossi á hverjum degi og núverandi bílastæði of lítið miðað við þann fjölda.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framkvæmdaleyfi til stækkunar bílastæðis við Háafoss á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Almenn mál
9. Nefndir og stjórnir Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2026-2030
Lögð var fram tillaga um kjör fulltrúa í kjörnefnd:
Aðalmaður:
Helga Kolbeinsdóttir
Helga Guðlaugsdóttir
Eggert Jóhannesson
Varamaður:
Ísak Jökulsson
Berglind Bjarnadóttir
Bergljót Þorsteinsdóttir
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum skipun í kjörnefnd fyrir tímabilið 2026-2030.
10. Rekstrarskýrsla janúar-apríl 2026
Sveitarstjóri leggur fram rekstrarskýrslu fyrir janúar- apríl 2026, ásamt upplýsingum um stöðu fjárfestinga fram í miðjan júní.
Samhliða fjölgun íbúa eru útsvarstekjur að hækka um 23,7% fyrstu fjóra mánuði ársins samanborið við sama tímabil árið 2025 og tekjur af fasteignaskatti eru að aukast um 10% á milli ára. Rekstrarafgangur fyrstu 4 mánuðina er um 88,7 milljónir kr. sbr. við 46 milljónir árið áður, en aukinn rekstrarafgang milli ára fyrstu fjóra mánuðina má að stórum hluta rekja til bókfærðs söluhagnaðar á eignarhlut sveitarfélagsins í jörðinni Laugarási sem var seldur á tímabilinu.
Miklar fjárfestingar hafa verið í gangi í sveitarfélaginu í vetur í tengslum við byggingu verknámshúss og nýrrar íþróttamiðstöðvar. Um miðjan júní er búið að fjárfesta fyrir um 410 millj kr. á árinu 2026. Verknámshúsinu er nú lokið og bygging íþróttamiðstöðvar er langt komin og eru verklok áætluð í haust. Fjárfestingaráætlun fyrir árið 2026 hljóðaði upp á 710 milljónir kr. Framkvæmdir eru byrjaðar við nýja tengibyggingu milli íþróttamiðstöðvar og Þjórsárskóla og endurbætur á leikskólalóð sveitarfélagsins eru að fara af stað.
Í haust þegar framkvæmdir klárast verður búið að fjárfesta fyrir u.þ.b. 2 milljarða í varanlegum rekstrarfjármunum á sl. 4 árum. Í júní er samtals búið að draga á lánalínu fyrir sem nemur 650 milljónum kr. á framkvæmdatímanum. Undirliggjandi rekstur heldur áfram að styrkjast og erum við að sjá árangur ákvarðana síðustu ára raungerast í rekstri sveitarfélagsins.
Megin ástæða betri rekstrarafkomu má rekja til fjölgunar íbúa, hagræðingar í rekstri og
hagsmunagæslu sem hefur skilað auknum tekjum. Þrátt fyrir að reksturinn sé í góðum horfum er mikilvægt að halda áfram að gæta ráðdeildar og fyrirhyggju í rekstri og þannig leggja grunninn að því að greiða hratt niður lánalínuna sem er opin til mars 2028 og lágmarka þá langtíma lántöku sem þarf að klára fyrir mars 2028.
11. Sala á Heiðargerði 7
Lagt fram verðmat fasteignasala á Heiðargerði 7. Sveitarfélagið á 25% eignarhlut í eigninni á móti ríkinu sem á 75% hlut. Í gildi er lóðarleigusamningur milli ríkis og sveitarfélagsins. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur samþykkt verðmat fasteignasala á Heiðargerði 7 og að selja sinn eignarhluta í Heiðargerði 7. Óskað er eftir að sveitarstjórn samþykki að setja Heiðargerði 7 í söluferli hjá Húsi fasteignasölu.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fasteignin Heiðargerði 7 verði sett á sölu hjá Húsi fasteignasölu á verðinu 79,9 millj, kr.
12. Samkomulag við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda
Lagt fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. 19. maí 2025 gerði sambandið samkomulag við ríkið um breytta ábyrgðarskiptingu í máefnum barna með fjölþættan vanda. Samkomulagið fól í sér að ríkið tæki að sér framkvæmd og fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búsett eru utan heimilis. Nú hefur mennta- og barnamálaráðuneytið hins vegar einhliða ákveðið með nýrri reglugerð að endurskilgreina þann hóp sem um ræðir og þrengja verulega þann hóp barna sem fellur undir samkomulagið þrátt fyrir að umrædd skilgreining hafi verið lögð til grundvallar í öllum þeim skýrslum sem unnar hafa verið undanfarin ár og þessir hópar aldrei fyrr verið aðgreindir. Ríkið er því að skilgreina sig frá ábyrgð á tilteknum hóp barna með tilheyrandi óvissu og auknum kostnaði sveitarfélaga. Þýðing þessarar breyttu skilgreiningar er veruleg. Samkvæmt þeirri skýrslu sem lá til grundvallar samkomulaginu voru 34 börn og ungmenni í skilgreindum hópi barna með fjölþættan vanda árið 2024. Samkvæmt útreikningum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga í aðdraganda samkomulagsins var gert ráð fyrir sambærilegum fjölda barna á þessu ári. Á þessu ári hefur hins vegar eingöngu verið samþykkt greiðsla fyrir 17 börn og því ljóst að fyrirhugað er að hópurinn sem um ræðir mun minnka verulega.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.
Sveitarstjórn telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.
13. Breytingar að stofnsamningi og starfsreglum Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. - fyrri umræða
Lagðar fram til fyrri umræðu breytingar að stofnsamningi og starfsreglum Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum breyttan stofnsamning og starfsreglur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. og vísar þeim til síðari umræðu.
14. Ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár
Lagt fram til kynningar fyrir sveitarstjórn erindi frá Atvinnuvegaráðuneytinu er varðar búfjárbeit og ágang búfjárs.
15. Framboðsfrestur til formanns Sambandsins
Lagt fram bréf Sambandi íslenskra sveitarfélaga er varðar framboðsfrest til formanns Sambandsins, en framboðsfrestur er til og með 15. júlí nk.
16. Erindi til nýkjörinna sveitarstjórna landsins
Lagt fram til kynningar fyrir sveitarstjórn erindi frá landssambandi eldri borgara er varðar áherslur landssambandsins um málefni eldri borgara.
17. Tilkynning um breytingar á rekstri landsbyggðarvagna
Lagt fram bréf frá Vegagerðinni er varðar tilkynningar um breytingar á þjónustu landsbyggðavagna með tilheyrandi þjónustuskerðingu.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps lýsir yfir miklum áhyggjum að ítrekuðum þjónustuskerðingum landsbyggðarvagna í Uppsveitum Árnessýslu. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á svæðinu undanfarin ár og er því undarlegt að á sama tíma og íbúum fjölgi skuli almenningssamgöngur vera skertar. Í síðustu breytingum landsbyggðarvagna var tekin út stoppustöð á gatnamótum Þjórsárdalsvegar og Skeiðavegar. Sú stoppustöð var eina tenging íbúa í Árnesi við almenningssamgöngur, sem í dag landsbyggðarvagnar keyra framhjá án þess að stoppa. Sveitarstjórn mótmælti þeim breytingum harðlega án þess að fá nokkur svör. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps felur sveitarstjóra að óskar eftir því að fulltrúi Vegagerðarinnar komi á fund sveitarstjórnar til þess að ræða almenningssamgöngur á svæðinu. Það er óboðlegt að Árnes sé einnig byggðarkjarninn í Uppsveitum Árnessýslu þar sem engar almenningssamgöngur séu til staðar.
18. Íþróttavika Evrópu 2026
Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin ár hvert dagana 23.–30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive.
Líkt og undanfarin ár verður lögð áhersla á að hvetja landsmenn til þátttöku með því að bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega íþrótta- og hreyfidagskrá dagana 23.–30. september og taka þannig þátt í Íþróttaviku Evrópu 2026. Hjá mörgum hefur Íþróttavikan fest sig í sessi sem árviss viðburður.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps felur sveitarstjóra að ræða við ungmennafélögin í sveitarfélaginu um að koma að undirbúningi dagskrár í sveitarfélaginu í tengslum við íþróttavikuna.
19. Fundargerð 1. fundar afréttamálanefndar Gnúpverja
Fundargerð 1. fundar afréttarmálanefndar Gnúpverja lögð fram.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum tillögu um að Gylfi Sigríðarson verði formaður nefndarinnar.
Fundargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.
20. Skýrsla oddvita
Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.
21. Úrskurður Umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2603007 – Búðafossvegur
Úrskurður lagður fram til kynningar.
22. Bráðabirgðaúrskurður í máli nr. UUA2605005
Úrskurður lagður fram til kynningar.
23. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-252
Fundargerð lögð fram til kynningar.
24. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-253
Fundargerð lögð fram til kynningar.
25. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-254
Fundargerð lögð fram til kynningar.
26. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-255
Fundargerð lögð fram til kynningar.
27. Fundargerð 33. fundar Menningar- og æskulýðsnefndar
Fundargerð lögð fram til kynningar.
28. Fundargerð 34. fundar Menningar- og æskulýðsnefndar
Fundargerð lögð fram til kynningar.
29. Fundargerð 35. fundar Menningar- og æskulýðsnefndar
Fundargerð lögð fram til kynningar.
30. Fundargerð 1. fundar stjórnar UTU
Fundargerð lögð fram til kynningar.
31. Fundargerð 2. fundar stjórnar UTU
Fundargerð lögð fram til kynningar.
32. Fundargerð aukaaðalfundar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. 18. júní 2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
33. Fundargerð 94. fundar stjórnar Bergrisans
Fundargerð lögð fram til kynningar.
34. Fundargerð aukaaðalfundar Bergrisans 15. júní 2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
35. Fundargerð 636. fundar stjórnar SASS
Fundargerð lögð fram til kynningar.
36. Fundargerð 637. fundar stjórnar SASS
Fundargerð lögð fram til kynningar.
37. Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga 8. júní 2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
38. Fundargerð aðalfundar Eignarhaldsfélags Suðurlands 2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
39. Fundargerð 255. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Fundargerð lögð fram til kynningar.
40. Fundargerð 999. fundar stjórnar Sambandsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
41. Fundargerð 1000 fundar stjórnar Sambandsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
42. Fundargerð aðalfundar Vottunarstofunnar Túns 2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
43. Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga 2025
Ársreikningur lagður fram til kynningar.
Fundi slitið kl. 12:00.
Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 5. ágúst kl. 9.00, í Árnesi.
Fundargerð undirrituð rafrænt.