- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Gunnar Örn Marteinsson setti fundinn og spurðist fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.
Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:
1. Kosning oddvita og varaoddvita
Lögð fram tillaga af meirihluta stjórnar um að Haraldur Þór Jónsson gegni stöðu oddvita á kjörtímabilinu 2026-2030. Gengið var til kosninga um oddvita og hlaut Haraldur Þór Jónsson þrjú atkvæði. Gunnar Örn Marteinsson og Ingibjörg Sæunn Jónsdóttur sátu hjá.
Haraldur Þór Jónsson er því rétt kjörinn oddviti út kjörtímabilið.
Nýkjörinn oddviti, Haraldur Þór Jónsson, tekur við fundarstjórn.
Lögð fram tillaga af meirihluta stjórnar um að Vilborg Ástráðsdóttir gegni stöðu varaoddvita á kjörtímabilinu 2026-2030. Gengið var til kosninga um varaoddvita og hlaut Vilborg Ástráðsdóttir þrjú atkvæði. Gunnar Örn Marteinsson og Ingibjörg Sæunn Jónsdóttur sátu hjá.
Vilborg Ástráðsdóttir er því rétt kjörinn varaoddviti út kjörtímabilið.
Sylvia Karen Heimisdóttir víkur af fundi.
2. Ráðningarsamningur Sveitarstjóra
Lagður fram ráðningarsamningur sveitarstjóra ásamt starfslýsingu. Í ráðningarsamninginum eru launakjör sveitarstjóra óbreytt frá núverandi ráðningarsamningi og eru þau tengd þingfarakaupi.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með þremur atkvæðum ráðningarsamning og starfslýsingu sveitarstjóra og er oddvita falið að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með þremur atkvæðum að Sylvía Karen Heimisdóttir, kt. 290882-5679 fari með prókúru sveitarfélagsins frá og með 1. júní 2026, samanber 45. gr. samþykktar um stjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Gunnar Örn Marteinsson og Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Gunnar Örn Marteinsson og Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun:
Við teljum að ekki sé ástæða til að hafa bæði sveitarstjóra og oddvita í fullu starfi hjá sveitarfélaginu og munum gera betur grein fyrir því í bókun við ráðningarsamning oddvita. Við sitjum því hjá við afgreiðslu ráðningarsamnings sveitarstjóra.
Sylvía Karen Heimisdóttir kemur aftur inn á fund.
Haraldur Þór Jónsson víkur af fundi og í stað hans kemur Björgvin Þór Harðarson inn á fundinn. Vilborg Ástráðsdóttir tekur við fundarstjórn.
3. Ráðningarsamningur oddvita
Lagður fram ráðningarsamningur oddvita ásamt starfslýsingu. Í ráðningarsamninginum eru launakjör oddvita óbreytt frá núverandi ráðningarsamningi og eru þau tengd þingfarakaupi.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með þremur atkvæðum ráðningarsamning oddvita, merkt 2026-2 og starfslýsingu oddvita og er sveitarstjóra falið að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarstjórnar. Gunnar Örn Marteinsson og Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir greiða atkvæði gegn ráðningarsamningi oddvita, merkt 2026-2.
Gunnar Örn Marteinsson og Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun við afgreiðslu málsins:
Við viljum taka skýrt fram að athugasemdir okkar snúa ekki að því að oddviti fái greitt fyrir þau störf sem embættinu fylgja. Það er eðlilegt að oddviti fái sanngjarna þóknun fyrir sitt hlutverk. Athugasemdir okkar snúa að umfangi starfslýsingarinnar, verkaskiptingu innan sveitarfélagsins og þeirri hættu að hlutverk oddvita sé fært of langt inn á verksvið sveitarstjóra og faglegrar stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Í fyrirliggjandi gögnum er oddvita meðal annars ætlað að sjá um skipulagsmál sveitarfélagsins, bera ábyrgð á stefnumótun og framtíðarsýn, hafa umsjón með verklegum framkvæmdum, annast undirbúning framkvæmda, gera kostnaðaráætlanir og sinna framkvæmdaeftirliti. Að okkar mati er þetta mun víðtækara hlutverk en almennt verður ráðið af stöðu oddvita sem kjörins fulltrúa og fundarstjóra sveitarstjórnar.
Þetta eru ekki eingöngu verkefni sem snúa að pólitískri eftirfylgni. Þau varða stjórnsýslu, framkvæmd ákvarðana, undirbúning mála, fjárhagslegar forsendur og eftirlit með framkvæmdum. Það eru verkefni sem eðlilegra er að heyri undir sveitarstjóra, fagsvið, nefndir eða sveitarstjórn sem heild, eftir eðli máls.
Sérstaklega teljum við þetta óeðlilegt þar sem sveitarfélagið er jafnframt að ráða sveitarstjóra í fullt starf. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum og samþykktum sveitarfélagsins er sveitarstjóri ráðinn til að fara með daglega stjórn sveitarfélagsins, annast framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og verkefni sveitarfélagsins. Í samþykkt sveitarfélagsins kemur jafnframt fram að oddviti fari með daglega stjórn ef ekki er ráðinn sérstakur sveitarstjóri.
Ef sveitarstjóri er ráðinn í fullt starf teljum við ekki eðlilegt að oddvita sé samhliða falið svo víðtækt framkvæmdahlutverk. Slíkt getur rýrt stöðu sveitarstjóra, gert ábyrgð hans óljósa og skapað tvöfalt stjórnkerfi þar sem ekki liggur nægilega skýrt fyrir hver ber ábyrgð á undirbúningi mála, framkvæmd ákvarðana og samskiptum við fagsvið, ráðgjafa, verktaka og íbúa.
Við teljum einnig að slíkt fyrirkomulag geti dregið úr vægi annarra kjörinna fulltrúa. Oddviti er einn af kjörnum fulltrúum sveitarstjórnar. Ef honum er falið sérstakt og víðtækt hlutverk inni í stjórnsýslu sveitarfélagsins, langt umfram aðra fulltrúa, getur það raskað jafnræði innan sveitarstjórnar. Þá fær einn kjörinn fulltrúi mun meiri aðgang að undirbúningi, framkvæmd og eftirfylgni mála en aðrir.
Kjörnir fulltrúar eiga að taka ákvarðanir á grundvelli upplýstra gagna og faglegs undirbúnings. Það er hins vegar ekki heppilegt að einn kjörinn fulltrúi sé settur í stöðu þar sem hann bæði kemur að undirbúningi eða framkvæmd mála og situr síðan við afgreiðslu þeirra í sveitarstjórn.
Við teljum jafnframt að fyrirkomulagið geti skapað óvissu um hæfi. Ef oddviti kemur að undirbúningi, umsjón eða framkvæmd einstakra mála í hlutverki sem líkist starfsmanns eða framkvæmdahlutverki, geta vaknað spurningar um hæfi hans þegar sömu mál koma síðar til afgreiðslu í sveitarstjórn. Slíkt snýst ekki aðeins um formreglur, heldur líka um traust, jafnræði og vandaða stjórnsýslu.
Að okkar mati á oddviti að hafa pólitíska yfirsýn, leiða fundi sveitarstjórnar, koma fram fyrir hönd sveitarstjórnar eftir því sem við á og fylgja eftir stefnu sveitarstjórnar á pólitískum vettvangi. Oddviti á hins vegar ekki að taka yfir verkefni sem eðlilegra er að séu á ábyrgð sveitarstjóra, fagsviða, nefnda eða sveitarstjórnar sem heild.
Við teljum að fyrirliggjandi starfslýsing sé því á skjön við skýra og eðlilega verkaskiptingu milli oddvita og sveitarstjóra, sérstaklega í sveitarfélagi sem hyggst ráða sveitarstjóra í fullt starf. Málið snýst um það hvernig ábyrgð og vald skiptist innan sveitarfélagsins, hver ber ábyrgð á daglegri stjórnun og hvernig tryggt er að allir kjörnir fulltrúar hafi eðlilega aðkomu að málum.
Af þessum ástæðum teljum við ekki rétt að samþykkja framlagðan ráðningarsamning og starfslýsingu oddvita óbreytta.
Við leggjum til að hlutverk oddvita verði afmarkað með skýrari hætti og að starfshlutfall oddvita verði 50%, líkt og þekkist í nærliggjandi sveitarfélögum. Að okkar mati væri slíkt fyrirkomulag hófstilltara og eðlilegra, sérstaklega þar sem sveitarfélagið hyggst jafnframt ráða sveitarstjóra í fullt starf.
Við leggjum jafnframt til að ákvæði um þriggja mánaða uppsagnarfrest verði fellt brott. Oddviti er kjörinn fulltrúi sem gegnir embætti á grundvelli ákvörðunar sveitarstjórnar, en ekki almennur starfsmaður sveitarfélagsins í hefðbundnum skilningi. Við teljum ekki eðlilegt að kjörinn fulltrúi eigi rétt á greiddum uppsagnarfresti að loknu kjörtímabili eða ef sveitarstjórn kýs annan oddvita.
Greiðslur til oddvita eiga að taka mið af því tímabili sem viðkomandi gegnir embættinu hverju sinni og falla niður þegar viðkomandi lætur af störfum sem oddviti.
Björgvin þór Harðarson víkur af fundi og Haraldur Þór Jónsson kemur aftur inn á fund. Haraldur Þór Jónsson tekur aftur við fundarstjórn.
4. Nefndir og stjórnir Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2026-2030
Lögð var fram tillaga um kjör fulltrúa í eftirfarandi nefndir, stjórnir og ráð, sbr. 41. gr. samþykktar um stjórn sveitarfélagsins, sem unnið hefur verið af báðum listum sveitarstjórnar.
Eftirfarandi skipun nefnda var samþykkt samhljóða af sveitarstjórn:
Skólanefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Vilborg M. Ástráðsdóttir |
|
Ingvar Þrándarson |
|
Guðmundur Árnason |
|
Birna Þorsteinsdóttir |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Ingvar Hjálmarsson |
|
Sigurður Kristmundsson |
|
Ingvar Hersir Sveinsson |
|
Sigríður Björk Marinósdóttir |
|
Hrönn Jónsdóttir |
Vilborg Ástráðsdóttir er kjörinn formaður skólanefndar af sveitarstjórn
Afréttamálanefnd Gnúpverjaafréttar
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Guðmundur Árnason |
|
Ingvar Þrándarson |
|
Vilborg Ástráðsdóttir |
|
Jóhannes Hlynur Sigurðsson |
|
Gylfi Sigríðarson |
|
Haukur Arnarsson |
Guðmundur Árnason er kjörinn formaður afréttamálanefndar Gnúpverjaafréttar af sveitarstjórn.
Afréttamálafélag Flóa og Skeiða
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Ingvar Hjálmarsson |
|
Elín Moqvist |
|
Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir |
|
Kjartan H. Ágústsson |
Loftslags- og Umhverfisnefnd
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
|
Bjarki Þór Þorsteinsson |
|
Jóhannes Hlynur Sigurðsson |
|
Oddrún Ýr Sigurðardóttir |
|
Birna Þorsteinsdóttir |
|
Sigvaldi Kaldalóns Jónsson |
|
Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir |
|
Hilmar Njáll Þórðarson |
|
Ingvar Hersir Sveinsson |
|
Sigríður Björk Gylfadóttir |
Harpa Dís Harðarson er kjörin formaður Loftslags- og Umhverfisnefndar af sveitarstjórn.
Húsnæðisnefnd
Sveitarstjórn skipar nefndina
Bókasafnsnefnd
Sveitarstjórn skipar nefndina
Menningar- og æskulýðsnefnd
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Gestur Einarsson |
|
Sára Annamária Herczeg |
|
Guðfinna Ósk Magnúsdóttir |
|
Helga Jóhanna Úlfarsdóttir |
|
Gylfi Sigríðarson |
|
Ástráður Unnar Sigurðsson |
Gestur Einarsson er kjörinn formaður menningar- og æskulýðsnefndar
Samráðshópur um málefni aldraðra
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Sigvaldi Kaldalóns Jónsson |
|
Birna Þorsteinsdóttir |
Veitunefnd
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Björgvin Þór Harðarson |
|
Ingvar Þrándarson |
|
Oddrún Ýr Sigurðardóttir |
|
Birna Þorsteinsdóttir |
|
Kristín Eva Einarsdóttir |
|
Guðmundur Arnar Sigfússon |
Björgvin Þór Harðarson er kjörinn formaður veitunefndar af sveitarstjórn.
Atvinnu- og samgöngunefnd
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Björgvin Þór Harðarson |
|
Ingvar Þrándarson |
|
Oddrún Ýr Sigurðardóttir |
|
Birna Þorsteinsdóttir |
|
Bjarki Þór Þorsteinsson |
|
Jóhannes Hlynur Sigurðsson |
|
Kristín Eva Einarsdóttir |
|
Hannes Ólafur Gestsson |
|
Guðmundur Arnar Sigfússon |
|
Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir |
Björgvin Þór Harðarson er kjörinn formaður atvinnu- og samgöngunefndar af sveitarstjórn.
Stjórn Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs.
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Sylvía Karen Heimsdóttir |
|
Haraldur Þór Jónsson |
Aðalfundur Bergrisans
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Sigvaldi Kaldalóns Jónsson |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
|
Birna Þorsteinsdóttir |
|
Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir |
|
Sigurður Kristmundsson |
Skipulagsnefnd Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
Stjórn Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
Héraðsnefnd Árnesþings
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Vilborg Ástráðsdóttir |
Öldungaráð
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Sigvaldi Kaldalóns Jónsson |
|
Birna Þorsteinsdóttir |
Fjarskiptafélag Skeiða- og Gnúpverjahrepps
|
Aðalmaður |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Björgvin Þór Harðarson |
|
Vilborg M. Ástráðsdóttir |
|
Birna Þorsteinsdóttir |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
|
Guðmundur Árnason |
|
Gunnar Örn Marteinsson |
|
Sigurður Kristmundsson |
|
Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir |
|
Sigríður Björk Marinósdóttir |
Stjórn Hitaveitufélags Gnúpverja
|
Aðalmaður |
|
Varamenn |
|
Ingvar Þrándarson |
|
Haraldur Þór Jónsson |
Almannavarnanefnd Árnessýslu
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Sylvía Karen Heimisdóttir |
|
Haraldur Þór Jónsson |
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
Aðalfundur sambands sunnlenskra sveitarfélaga
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Björgvin Þór Harðarson |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
|
Birna Þorsteinsdóttir |
|
Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir |
|
Sigurður Kristmundsson |
Aðalfundur orkusveitarfélaga
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Björgvin Þór Harðarson |
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Sylvía Karen Heimisdóttir |
Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
Aðalfundur Sorpstöðvar Suðurlands
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Sylvía Karen Heimisdóttir |
Aðalfundur Héraðsnefndar Árnesinga
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
Aðalfundur Byggðasafns Árnesinga
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
Aðalfundur Hérðasskjalasafns Áresnginga
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
Aðalfundur Listasafns Árnesinga
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
Aðalfundur Brunavarna Árnessýslu
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
Aðalfundur Tónlistarskóla Árnesinga
|
Aðalmenn |
|
Varamenn |
|
Haraldur Þór Jónsson |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
Stjórn Sorpstöðvar Suðurlands
|
Aðalmaður |
|
Haraldur Þór Jónsson |
Stjórn Sambands sunnlenskra sveitarfélaga
|
Aðalmaður |
|
Haraldur Þór Jónsson |
Stjórn Héraðsskjalasafns Árnesinga
|
Aðalmaður |
|
Haraldur Þór Jónsson |
Stjórn Listasafns Árnesinga
|
Aðalmaður |
|
Harpa Dís Harðardóttir |
Skipun í eftirfarandi nefndir er frestað fram að næsta fundi sveitastjórnar:
Kjörstjórn
Ungmennaráð
Velferðar- og jafnréttisnefnd
Farsældarráð Suðurlands
5. Laun fulltrúa og nefndarmanna hjá Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að laun verða óbreytt og engar breytingar verði gerðar á reglum Skeiða- og Gnúpverjahrepps um laun sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna.
6. Fundartímar sveitarstjórnar 2026-2030
Oddviti leggur til að fundartími sveitarstjórnar á kjörtímabilinu 2026-2030 verði áfram fyrsta og þriðja miðvikudag kl. 9:00 í hverjum mánuði.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum fundartíma sveitarstjórnar fyrir kjörtímabilið 2026-2030
7. Landsþing SÍS 2026
Dagana 23.-25. september 2026 verður landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga haldið á Akureyri. Öll sveitarfélög sem eiga aðild að Sambandinu eiga rétt til að senda fulltrúa á landsþingið í samræmi við íbúafjölda í viðkomandi sveitarfélagi 1. janúar 2026. Þá eiga framkvæmdastjórar sveitarfélaga, þ.e. bæjar- og sveitarstjórar, auk formanna og framkvæmdastjóra landshlutasamtaka sveitarfélaga, rétt til setu á landsþingi með málfrelsi og tillögurétti. Skeiða- og Gnúpverjahreppur á rétt á að senda einn fulltrúa ásamt sveitarstjóra á landsþingið.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að oddviti, Haraldur Þór Jónsson verði fulltrúi sveitarfélagsins á landsþingi SÍS 2026.
8. Aukaaðalfundur SASS
Lagt fram aðalfundarboð SASS sem haldinn verður í Versölum í Þorlákshöfn fimmtudaginn 25. júní nk. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur skipað þrjá fulltrúa á fundinn en allri sveitarstjórn er boðið á aðalfundinn.
9. Lóðarleigusamningur Leiti
Lagður fram uppfærður lóðaleigusamningur um jörðina Leiti sem er framlenging á fyrri samningi. Nýr lóðaleigusamningur er til 50 ára.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan lóðarleigusamning og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn.
10. Opnunartími í Skeiðalaug
Eftir að Skeiðalaug var endurgerð og opnunartími lengdur í 16-22 alla daga vikunnar hefur aðsókn margfaldast. Til að bregðast við mikilli aðsókn um helgar er lagt til að opnunartími á laugardögum og sunnudögum verði lengdur og Skeiðalaug opni kl. 10:00 um helgar.
Nýr opnunartími Skeiðalaugar verði því mánudaga-föstudaga 16:00-22:00, laugardaga og sunnudaga 10:00-22:00.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum breyttan opnunartíma í Skeiðalaug. Breytingarnar rúmast innan núverandi fjárheimilda.
11. Aðalfundur Veiðifélags Þjórsár 2026
Lagt fram aðalfundarboð Veiðifélags Þjórsár sem fram fer þriðjudaginn 9. júní kl. 17:00 í félagsheimilinu í Árnesi.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum að fela oddvita, Haraldi Þór Jónssyni, kt. 270576-5089 að mæta á fundinn fyrir hönd Skeiða- og Gnúpverjahrepps og veitir honum umboð til að fara með atkvæði Skeiða- og Gnúpverjahrepps á fundinum.
Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.
12. Aðalfundur Vottunarstofunnar Túns 2026
Lagt fram aðalfundarboð Vottunarstofunnar Túns sem fram fer 4. júní kl. 15:30.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fela oddvita, Haraldi Þór Jónssyni, kt. 270576-5089 að mæta á fundinn fyrir hönd Skeiða- og Gnúpverjahrepps og veitir honum umboð til að fara með atkvæði Skeiða- og Gnúpverjahrepps á fundinum.
13. Yfirlit 4HMS vegna húsnæðis- og skipulagsmála
Yfirlit HMS vegna húsnæðis- og skipulagsmála lagt fram til kynningar.
14. Skýrsla oddvita
Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.
15. Fundargerð 326. fundar skipulagsnefndar
Hæll 1 L166569; Hæll 1- Skjónuleyni; Stofnun lóðar - 2605034
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 08.05.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun nýrrar landeignar. Óskað er eftir að stofna 0,57 ha landeign, Skjónuleyni, úr upprunalandinu Hæll 1 L166569.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að gera ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
Fundargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.
16. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa 26-251
Fundargerð lögð fram til kynningar.
17. Fundargerð 32. fundar Menningar- og æskulýðsnefndar
Fundargerð lögð fram til kynningar.
18. Kosningaskýrsla vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026
Kosningaskýrsla lögð fram til kynningar.
19. Fundargerð 998 fundar stjórnar Sambandsins
Ársskýrsla lögð fram til kynningar.
20. Fundargerð 91. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
21. Fundargerð 92. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
22. Fundargerð 1. fundar farsældarráðs Suðurlands
Fundargerð lögð fram til kynningar.
23. Fundargerð 2. fundar farsældarráðs Suðurlands
Fundargerð lögð fram til kynningar.
24. Afréttakofi Hólaskógur
Lagt fram bréf frá Benedikt G. Sigurðssyni til nýkjörinnar sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps þar sem vakin er athygli á því að afréttarkofinn í Hólaskógi verður 90 ára í haust.
Sveitarstjórn þakkar Benedikt G. Sigurðssyni fyrir erindið og lýsir yfir áhuga á því að saga afréttakofans verði viðhaldið og vísar erindinu til umfjöllunar til atvinnu- og samgöngunefndar og menningar- og æskulýðsnefndar.
Fundi slitið kl. 14:24.
Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 1. júlí kl. 9.00, í Árnesi.
Fundargerð undirrituð rafrænt.