Sveitarstjórn

89. fundur 06. maí 2026 kl. 09:00 - 10:45 Árnes
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jónsson oddviti
  • Vilborg Ástráðsdóttir
  • Bjarni H. Ásbjörnsson
  • Gunnar Örn Marteinsson
  • Kjartan H. Ágústson í fjarveru Gerðar Stefánsdóttur.
Fundargerð ritaði: Sylvía Karen Heimisdóttir

Raðnúmer fundar í WorkPoint skjalakerfi F202604-0013

89. sveitarstjórnarfundur

Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.

Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:

1. Skýrsla oddvita

Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.

 

2. Ársreikningur Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2025 - síðari umræða

​​​​​Ársreikningur Skeiða- og Gnúpverjahrepps lagður fram til síðari umræðu.

Samstæðureikningur samanstendur af annars vegar A- hluta, þ.e. aðalsjóði, eignasjóði, þjónustumiðstöð og samstarfsverkefnum, og hins vegar B- hluta, sem er vatnsveita, Hitaveita Brautarholts, fráveita, leiguíbúðir og Fjarskiptafélag Skeiða- og Gnúpverjahrepps ehf.

Helstu niðurstöður fyrir árið 2025 er jákvæð rekstrarniðurstaða A og B hluta að fjárhæð 181 millj. kr. samanborið við 164 millj kr. í afgang árið 2024. Er afkoma því 37 millj kr. betri en gert hafði verið ráð fyrir í áætlun. Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 178 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Bókfært verð eigna var 2.501 millj kr. í árslok. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 1.561 millj kr. í A og B hluta.

 

Álagningarhlutfall útsvars var 14,97% sem er lögbundið hámark. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki var 0,43% en lögbundið hámark þess er 0,50%. Í B-flokki nam álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hámark þess og í C flokki nam álagningarhlutfallið 1,65% sem er lögbundið hámark þess auk heimildar sveitarstjórnar til að hækka álagningu A og C flokkanna um allt að 0,25.

 

Útsvarstekjur og fasteignaskattur hækkuðu um samtals 99 millj. kr. frá fyrra ári. Rekstrartekjur samstæðunnar á árinu námu 1.538 millj kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta en þar af námu tekjur A hluta 1.497 millj kr.

 

Rekstrarkostnaður var 1.285 millj. kr. í A og B hluta en 1.275 millj. kr. í A hluta. Afskriftir á árinu námu 49 millj. kr. í samstæðu samanborið við 42 millj. kr. árið á undan.

 

Framlegð frá rekstri A og B hluta nam 253 millj kr. eða 16,45% af tekjum. Handbært fé á reikningum sveitarfélagsins og B hluta fyrirtækjum var um 70 millj kr. í árslok.

 

Veltufé frá rekstri er 239 millj kr. fyrir árið 2025 eða 15,6% af heildartekjum og hækkar lítillega á milli ára en staða veltufjár sveitarfélagsins er sterk um áramót og sýnir það svigrúm sem reksturinn hefur til að standa straum af afborgunum lána og framkvæmdum.

 

Fjárfestingar á árinu námu 847 millj. kr. og er stærsti hlutinn vegna nýrrar íþróttamiðstöðvar í Árnesi eða 520 milljónir. Aðrar fjárfestingar voru nýtt verknámshús við Þjórsárskóla, viðbygging við Skeiðalaug og líkamsræktartæki í viðbygginguna, breytingar í Þjórsárskóla, kaup á tækjum fyrir áhaldahús, endurnýjun bifreiðar, endurnýjun í Hitaveitu Brautarholts ásamt fleiri minni verkefnum.

 

Engar langtímalántökur voru á árinu, en sveitarfélagið hefur aðgang að lánalínu vegna framkvæmdanna sem í lok árs 2025 var búið að draga 410 millj. kr.

 

Jafnvægisregla (rekstrarjöfnuður) er 482 millj kr. og hækkar um 15,6% á milli ára sem er jákvætt. Rekstrarjöfnuður sýnir samanlagðan rekstrarafgang síðustu þriggja ára, en heildarútgjöld til rekstrar vegna A og B hluta á hverju þriggja ára tímabili skulu ekki vera hærri en nemur samanlögðum reglulegum tekjum.

 

Skuldaviðmið skv. skilgreiningu í reglugerð nam 45% á árinu 2025. Umræður urðu um ársreikninginn. Niðurstaða ársins 2025 er umfram áætlanir og er ánægjulegt að sjá þann styrk og þá getu sem sveitarfélagið hefur til áframhaldandi uppbyggingar í sveitarfélaginu.

 

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum ársreikning Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2025 og staðfestir hann með undirritun. Endurskoðunarskýrsla fyrir árið 2025 er samhliða lögð fram til kynningar.

 

3. Ársreikningur Hitaveitu Brautarholts 2025 - síðari umræða

Ársreikningur Hitaveitu Brautarholts 2025 lagður fram til síðari umræðu. Rekstrartekjur námu 7,0 millj. kr. á árinu 2025 og hækkuðu um 1,6 millj. kr. milli ára. Rekstrarniðurstaða var neikvæð um 0,2 millj. kr. Eigið fé í árslok var jákvætt um 13,6 millj. kr.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum ársreikning Hitaveitu Brautarholts 2025 og staðfestir hann með undirritun.

 

4. Laun kjörstjórnar

Í samræmi við e. lið 3. tl. reglna Skeiða- og Gnúpverjahrepps um laun sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna er lagt til að laun kjörstjórnar verði í samræmi við laun almennra fulltrúa í nefndum fyrir hvern setinn fund í aðdraganda kosninga, eða 1,5% af þingfarakaupi eins og það er hverju sinni. Formaður skal fá greitt 3% af þingfarakaupi eins og það er hverju sinni. Fyrir kjörfund hinn 16. maí 2026 eða aðra vinnu í tengslum við kjörfundardag skal kjörnefnd, og annað starfsfólk á kjörfundi, fá greitt 6.770 kr. fyrir hverja unna klst.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum tillögu að þóknun kjörstjórnar á kjörfundi 16 maí 2026.

 

5. Samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga bs - fyrri umræða

Lagðar fram til fyrri umræðu uppfærðar samþykktir fyrir Héraðsnefnd Árnesinga bs.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga bs og vísar þeim til síðari umræðu.

 

6. Sveitarfélag ársins - vertu með

​​​Lagt fram bréf frá Gallup vegna Sveitarfélag ársins en með bréfinu er boðin þátttaka í könnuninni fyrir allt starfsfólk.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að taka þátt í könnuninni fyrir allt starfsfólk Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Þátttökugjald við könnunina rúmast innan fjárhagsáætlunar 2026.

 

7. Úti- og bæjarhátíðir á Suðurlandi - ósk um umsögn

​Lögð fram skýrsla um úti- og bæjarhátíðir á Suðurlandi frá Öruggara suðurlandi, en í skýrslunni er greining á skipulagi og framkvæmd með tillögum að forvörnum. Óskað er eftir umsögnum eða athugasemdum um skýrsluna.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemdir við framlagða skýrslu og tillögur stýrihóps að forvörnum.

 

8. Til umsagnar 595. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

​​​Lagt fram til umsagnar 595. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis.

 

9. Fundargerð 324. fundar skipulagsnefndar

Klettar (L166589); byggingarheimild; starfsmannahús og geymsla - breyta innra skipulagi og útliti - 2503091

Erindi sett að nýju fyrir fund. Móttekin var breytt umsókn og teikning þann 14.04.2026. Í afþreyingarherbergi 95 m2 á mhl 05 starfsmannahúsi og geymslu verða gufur og saunur ásamt skiptiklefum ætlað til notkunar fyrir gesti sem eru í gistingu.

Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins.

 

Sandlækur 2 L166591; Verslunar- og þjónustusvæði; Aðalskipulagsbreyting - 2512021

Lögð er fram tillaga að aðalskipulagsbreytingu, eftir kynningu skipulagslýsingar, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að sett verður inn nýtt verslunar- og þjónustusvæði sem nær yfir Sandlæk 2 L166591, Sandlæk I land 4 L212043, Sandlæk 1 lóð 5 L217870, Sandlæk 2 lóð L209688 og Sandlæk 1 L201306. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi. Markmið með breytingunni er að heimila gistingu fyrir allt að 40 gesti á um 3 ha svæði. Föst búseta verður áfram á svæðinu og heimilað verður að halda áfram búskap. Umsagnir og athugasemdir bárust við kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvðum aðalskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Húsatóftir 2A L191340; Skilmálabreyting VÞ5; Aðalskipulagsbreyting - 2604037

Lögð er fram tillaga að óverulegri aðalskipulagsbreytingu á skilmálum fyrir verslunar og þjónustusvæði VÞ5 í gildandi Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029, í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með breytingunni er verið að fjölga gistiplássum og fjölda gesta innan verslunar- og þjónustusvæðis VÞ5 fyrir Húsatóftir IIa ásamt því að breyta staðfangi í Húsatóftir 5. Engin breyting er á aðkomu eða afmörkun svæðis. Engin viðbótaruppbygging er fyrirhuguð heldur en einungis verið að innrétta núverandi byggingar og nýta þær betur. Gistirýmum fjölgar úr 10 í 18, og gestafjöldi hækkar úr 20 í 36.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum viðkomandi breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins skal auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar.

 

10. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa 26-249

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

11. Fundargerð 26. fundar skólanefndar

Staðfestingu fundargerðar frestað.

 

12. Ársreikningur Brákar íbúðafélags 2025

​Ársreikningur lagður fram til kynningar.

 

13. Fundargerð 13. fundar oddvitanefndar uppsveita Árnessýslu

Í lið 3. Í fundargerðinni er fjallað um færslu á léninu www.laugaras.is. Oddvitanefnd leggur til að lénið www.laugaras.is fylgi með kaupunum á jörðinni Laugarási.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að lénið www.laugaras.is verði fært til Bláskógabyggðar og að Hrunamannahreppi verði falið að ganga frá skráningu lénsins í samræmi við það.

Fundargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.

 

14. Fundargerð 36. fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu

Í lið 1. í fundargerðinni er lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun 2026 til þess að uppfylla lágmarkskröfur um mönnun dagvaktar slökkviliðs.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan viðauka. Breytingin fellur innan núverandi fjárheimilda.

Í lið 2. í fundargerðinni samþykkir stjórn Brunavarna Árnessýslu lánsumsókn að upphæð 240 milljónir vegna byggingar nýrrar slökkvistöðvar á Flúðum og kaupa á nýrri slökkvibifreið sem staðsett verður í Reykholti. Núverandi kostnaðarhlutdeild Skeiða- og Gnúpverjahrepps í Brunavörnum Árnessýslu er 5,15%.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Brunavarna Árnessýslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að 240.000.000 kr. ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.

Lánið er tekið vegna fjármögnunar á nýrri slökkvistöð á Flúðum og vegna kaupa á nýrri slökkvibifreið sem verður staðsett í Reykholi. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda Brunavarna Árnessýslu til að breyta ekki ákvæðum samþykkta félagsins sem kveða á um að félagið megi ekki, að neinu leyti, fara í eigu einkaaðila.

Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.

Jafnframt er Sylvíu Karen Heimisdóttir, sveitarstjóra, kt. 290882-5679, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

 

15. Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambandsins

Fundargerð lögð fram til kynningar

 

16. Fundargerð vorfundar Héraðsnefndar Árnessýslu 14. apríl 2026

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

17. Fundargerð aukaaðalfundar Byggðasafns Árnesinga 14. apríl 2026

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

18. Fundargerð aukaaðalfundar Listasafns Árnesinga 14. apríl 2026

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

19. Fundargerð aukaaðalfundar Brunavarna Árnesinga 14. apríl 2026

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

20. Fundargerð aukaaðalfundar Héraðsskjalasafns Árnesinga 14. apríl 2026

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

21. Fundargerð aukaaðalfundar Tónlistarskóla Árnesinga 14. apríl 2026

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

22. Fundargerð 254. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Fundi slitið kl. 10.45.

Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 20. maí kl. 9.00, í Árnesi.

Fundargerð undirrituð rafrænt.