Sveitarstjórn

88. fundur 22. apríl 2026 kl. 09:00 - 13:25 Árnes
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jónsson oddviti
  • Vilborg Ástráðsdóttir
  • Bjarni H. Ásbjörnsson
  • Gunnar Örn Marteinsson
  • Axel Árnason Njarðvík
Starfsmenn
  • Sylvía Karen Heimisdóttir

Raðnúmer fundar í WorkPoint skjalakerfi F202604-0011

Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.

 

Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:

1. Skýrsla oddvita

Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.

2. Ársreikningur Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2025 - fyrri umræða

​​​​​Haraldur Örn Reynisson og Arnar Leó Guðnason endurskoðendur KPMG komu inn á fundinn og kynntu ársreikning fyrir árið 2025 og helstu niðurstöður. Ársreikningur Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2025 lagður fram til fyrri umræðu.

Rekstrarniðurstaða A og B hluta við fyrri umræðu var jákvæð um 181 millj. kr. en í A hluta var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 178 millj. kr. Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 1.538 millj. kr. í A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 1.497 millj. kr. Fjárfestingar ársins námu 847 millj. kr. í A og B hluta, en þar af námu fjárfestingar í A hluta 819 millj. kr.
Í A og B hluta er skuldahlutfall 61% og skuldaviðmið 45%.

Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 1.561 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam 1.640 millj. kr.

Niðurstöður ársreiknings 2025 teknar til fyrri umræðu. Endurskoðun er enn í gangi með tilliti til byggðasamlaga og annarra samstarfsverkefna sem er ekki að fullu lokið. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að vísa ársreikningi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2025 til endurskoðunar og síðari umræðu.

 

3. Ársreikningur Hitaveitu Brautarholts 2025 - fyrri umræða

Ársreikningur Hitaveitu Brautarholts 2025 lagður fram til fyrri umræðu. Rekstrartekjur námu 7,0 millj. kr. á árinu 2025 og hækkuðu um 1,6 millj. kr. milli ára. Rekstrarniðurstaða var neikvæð um 0,2 millj. kr. Eigið fé í árslok var jákvætt um 13,6 millj. kr.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að vísa ársreikningi Hitaveitu Brautarholts 2025 til síðari umræðu.

 

4. Sorpþjónusta Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar frá 86. fundi þann 18. mars er í undirbúningi stofnun á B-hluta fyrirtæki fyrir sorpþjónustu Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Sveitarstjórn þarf að velja nafn á hið nýja félag. Tillaga kom upp um að heiti stofnunarinnar verði Orkubrunnur og að slagorð stofnunarinnar verði frá úrgangi í auðlind.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að nafn sorpþjónustu Skeiða- og Gnúpverjahrepps verði Orkubrunnur og að slagorð þessi verði frá úrgangi í auðlind.

5. Dagþjónusta fyrir eldri borgara

Lagt fram fyrir sveitarstjórn tilkynning Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dagsett 30. mars 2026, um að samþykkt hafi verið að fela Sjúkratryggingum Íslands að hefja samningaviðræður við Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshrepp, Hrunamannahrepp og Skeiða- og Gnúpverjahrepp um sameiginlegan rekstur átta almennra dagdvalarrýma í uppsveitum Árnessýslu. 

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps fagnar því að umsókn sveitarfélaganna fjögurra um heimild til að reka dagdvalarrými hafi fengið jákvæða afgreiðslu. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fela sveitarstjóra að vinna áfram að samningaviðræðum við Sjúkratryggingar Íslands um dagdvöl í Uppsveitum Árnessýslu.

6. Minka- og refaveiðar Skeiða- og Gnúpverjahreppi

​​​Núverandi samningar við minka- og refaveiðimenn rann út í lok árs 2025. Heildarkostnaður við verkefnið hefur verið um 2,7 milljónir á ári og á móti kostnaði kemur framlag frá Náttúruverndarstofnun.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að framlengja núverandi samninga fyrir árið 2026.

 

7. Skipan varamanns í kjörnefnd

 

​Eftir yfirferð framboðslista og meðmælenda þarf að skipa nýjan varamann í stað Jónasar Yngva Ásgrímssonar.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að skipa Ísak Jökulsson sem varamann í kjörnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

8. Skil á lóðum Holtabraut 21-23 og 37-41.

​​​Lagt fram bréf frá Húsamót ehf um að skila lóðunum sem Húsamót fékk úthlutað við Holtabraut 21-23 og Holtabraut 37-41.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að lóðunum við Holtabraut 21-23 og 37-41 verði skilað. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram, endurgreiða gatnagerðargjöld sem greidd hafa verið og auglýsa lóðirnar að nýju.

9. Umsögn vegna 565. mál frá nefna- og greiningarsviði Alþingis

Lögð fram umsögn sveitarstjórnar sem send var til nefndarsviðs Alþingis er varðar umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 48/2011 umverndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur), þskj. 955 — 565- mál.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum framlagða umsögn. Axel Á. Njarðvík situr hjá.

10. Erindi frá Náttúrugriðum- vegir í náttúru Íslands

​Lagt fram erindi frá Náttúrugriðum er varðar vegi í náttúru Íslands.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps þakkar fyrir erindið og samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til nýrrar sveitarstjórnar.

11. Styrkbeiðni frá söngsveitinni Tvennir Tímar

Lagt fram erindi frá söngsveitinni Tvennir Tímar þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 150.000 krónur.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafnar með fimm atkvæðum fjárhagslegri styrkbeiðni og vísar til þess að styrkveiting sveitarfélagsins til kóra sem starfa á svæðinu sé í formi aðstöðu til æfinga og tónleikahalds án endurgjalds.

12. Auka aðalfundur Samtaka Orkusveitarfélaga 29. apríl 2026

​Lagt fram fundarboð á aukaaðalfund Samtaka Orkusveitarfélaga sem fram fer 29. apríl kl. 16:00 í fjarfundi.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps felur Haraldi Þór Jónssyni að fara á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

13. Aðalfundarboð Rangárbakka 2025

Lagt fram aðalfundarboð Rangárbakka, þjóðaleikvangs íslenska hestsins ehf en fundurinn fer fram mánudaginn 27. apríl kl. 20:30 á Hellu.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps skipar Vilborgu Ástráðsdóttur sem fulltrúa sveitarfélagsins á fundinum.

14. Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands

Lögð fram til kynningar fyrir sveitarstjórn ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Ísland.

15. Fundargerð 323. fundar skipulagsnefndar

Gaukshöfði og Búðafoss; Sveitarfélagamörk; Aðalskipulagsbreyting - 2602017

Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps, sem felur í sér samræmingu sveitarfélagamarka á aðalskipulagi beggja sveitarfélaga, í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með breytingunni eru sveitarfélagamörk samræmd frá Gaukshöfða niður undir Búðafoss, þar sem staðfest landamerki milli jarða beggja vegna árinnar liggja til grundvallar, en að öðru leyti er miðað við sveitarfélagamörk samkvæmt IS50v. Jafnframt er landnotkun aðlöguð að breyttum sveitarfélagamörkum, án breytinga á skilmálum, og eru breytingarnar unnar samhliða á aðalskipulagi beggja sveitarfélaga.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum viðkomandi breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar.

Búðafossvegur; Vegagerð og brú yfir Þjórsá; Framkvæmdaleyfi - 2602021

Fyrirhuguð framkvæmd felst í lagningu um 7,4 km nýs vegar á milli Þjórsárdalsvegar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Landvegar í Rangárþingi ytra. Vegurinn mun heita Búðafossvegur og kemur til með að liggja frá nýju hringtorgi á Þjórsárdalsvegi um land Réttarholts og Minna-Hofs, um nýja brú yfir Þjórsá og þaðan um land Vindáss og Minni-Valla að Landvegi. Búðafossvegur verður útfærður samkvæmt viðmiðum vegflokks C8 með tveimur 3,5 m breiðum akreinum og 0,5 m breiðum öxlum beggja megin. Heildarbreidd vegar er því 8,0 m og verður hámarkshraði vegarins 90 km/klst með áætlaðri umferð um 500 bifreiða daglega. Vegsvæði vegarins verður 40 m breitt, 20 m frá miðlínu í hvora átt. Um er að ræða nokkuð umfangsmikinn veg og brú yfir Þjórsá sem liggur um svæði sem er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi sveitarfélaganna beggja vegna árinnar. Rúmir 2 km munu liggja í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og um 5 km í Rangárþing ytra. Fyrirhugað hringtorg verður malbikað en annað yfirborð vegarins klætt. Yfir Þjórsá verður byggð 204 m löng tvíbreið stálbitabrú með steyptu gólfi í 5 m hæð yfir vatnsyfirborði árinnar og í fimm höfum; tveimur 36 m löngum og þremur 44 m löngum. Heildarbreidd brúar verður 11 m og frá nyrðri bakka Þjósár að sjálfri brúnni verður Búðafossvegur á um 140 m langri grjótvaraðri fyllingu út í ána. Áætluð efnisþörf í framkvæmdina er tæplega 350.000 m3 sem verður fengið frá fjórum efnistökusvæðum og úr skerðingum. Eina nýja náman sem opnuð verður vegna framkvæmdanna er Búðanáma sem verður staðsett rétt vestan fyrirhugaðs Búðafossvegar á norðurbakka Þjórsár.

Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Vegagerðarinnar og öðrum fylgigögnum umsóknar.

Eftirtalin gögn eru lögð fram hjá sveitarstjórn:

Greinargerð umsóknar framkvæmdaraðila, framkvæmdalýsing, ásamtviðbótarskjalaskrá

Teikningasett ásamt teikningaskrá.

Teikning, Yfirlitsmynd Búðafossvegar.

Teikning, kennisnið Búðafossvegar C8.

Teikning, kennisnið heimreiða og tenginga C7.

Teikning, Búðafossvegur norðan Þjórsár.

Teikning, Búðafossvegur sunnan Þjórsár.

Teikning, Búðafossvegur girðingar reiðleið - 1611-170-32-A000-V05.

Teikning, Búðafossbrú Yfirlitsmynd og þversnið.

Efla, minnisblað - Fyllingar í árfarveginum, dags. 6. júní 2023.

Skipulagsstofnun, ákvörðun um mat á umhverfisáhrifum, dags. 28. ágúst 2009.

Efla f.h. Vegagerðarinnar, vegna breytinga á námum, 15. júní 2022.

Matsskyldufyrirspurn og greinargerð framkvæmdaraðila, dags. 17. nóvember 2025.

Matsskylduákvörðun Skipulagsstofnunar, dags. 2. febrúar 2026.

Leyfi Fiskistofu, dags. 29. febrúar 2024.

Uppfærð skilagrein um áhrif framkvæmda á lífríki í vatni/umsögn Hafrannsóknarstofnunar, dags. 5. maí 2022.

Umsögn Veiðifélags Þjórsár, dags. 21. júlí 2022.

Verkís, straumfræðigreining, dags. 6. febrúar 2024.

Umsögn Hafrannsóknarstofnunar um áhrif á vatnshlot, dags. 24. apríl 2024.

Hafrannsóknarstofnun, stuðningsskjal áhrifamat vatnshlots.

Fornleifar - FS895-22291, Búðafossvegur 2022.

Fornleifar - FS933-22451, Vegna lagningar Búðafossvegar 2023.

Fornleifar - FS983-23231, Tóftin við Markamýri og uppgröftur á tóft í Vindási 2024.

Minjastofnun, staðfesting, dags. 7. október 2025

Framkvæmdaáætlun verkkaupa.

Matsskyldufyrirspurn og greinargerð framkvæmdaraðila vegna stækkunar Búðanámu, dags. 27. janúar 2025.

Skipulagsstofnun, ákvörðun um mat á umhverfisáhrifum vegna stækkunar Búðanámu, dags. 3. apríl 2025.

Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu og greinargerð framkvæmdaraðila vegna efnistöku, dags. í júlí 2009, ásamt bréfi dags. 15. júlí 2009.

Umsögn Náttúruverndarstofnunar til Skeiða- og Gnúpverjahrepps, dags. 12. mars 2026.

Svör Vegagerðarinnar vegna umsagnar Náttúruverndarstofnunar, dags. 10. Mars 2026, auk yfirlitskorts vegna kortlagningar á náttúrufari í veglínu Búðafossvegar, sunnan Þjórsár.

Umsögn Umhverfis- og Orkustofnunar, dags. 31. mars 2026

Svarbréf Umhverfis- og Orkustofnunnar, dags 14. apríl 2026

Greinargerð leyfisveitanda, dags. 10. apríl 2026.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskyldufyrirspurnir, matsskylduákvarðanir og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Vegagerðarinnar með framkvæmdaleyfis-umsókninni. Þá liggur fyrir sameiginleg greinargerð Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem leyfisveitenda vegna framkvæmdarinnar frá 10. apríl 2026 um þau atriði sem meta skal við afgreiðslu framkvæmdaleyfisumsóknar skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, 5. mgr. 13. gr. eldri laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, og 26. gr. laga nr. 111/2021, með hliðsjón af þeim kröfum sem gerðar eru til greinargerðaleyfisveitanda vegna matsskyldra framkvæmda skv. 27. gr. laga nr. 111/2021 og 13. gr. eldri laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, þar sem fram koma skilyrði og mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum fyrirliggjandi greinargerð leyfisveitanda vegna framkvæmdarinnar frá 10. apríl 2026 sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdaleyfisumsóknina og fellst á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda lagningar Búðafossvegar og nýrrar brúar yfir Þjórsá, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Vegagerðarinnar og önnur fyrirliggjandi gögn.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps telur brýna nauðsyn bera til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna með vísan til þess að afar áríðandi sé að tryggðar séu greiðar og öruggar samgöngur á þessu svæði og á milli sveitarfélaganna, sem er grundvallarmarkmið framkvæmdarinnar. Sveitarstjórn telur tilgang framkvæmdarinnar þýðingarmikinn vegna almannaheilla. Einnig telur sveitarstjórn að í fyrirliggjandi gögnum sé næg grein gerð fyrir framkvæmdinni eins og hún liggur fyrir umfram aðra valkosti og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum og telur tilgang framkvæmdarinnar vega þyngra en þau umhverfisáhrif sem framkvæmdin hefur.

Axel Á. Njarðvík situr hjá við afgreiðslu málsins.

16. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa 26-248

Fundargerð lögð fram til kynningar.

17. Fundargerð 28. fundar Menningar- og æskulýðsnefndar

Fundargerð lögð fram til kynningar.

18. Fundargerð 29. fundar Menningar- og æskulýðsnefnd

Fundargerð lögð fram til kynningar.

19. Fundargerð 135. fundar stjórnar UTU

Fundargerð lögð fram til kynningar.

20. Fundargerð 134. fundar stjórnar UTU

Fundargerð lögð fram til kynningar.

21. Fundargerð stjórnar SVÁ frá 30. mars 2026

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan viðauka I við fjárhagsáætlun byggðasamlagsins Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. fyrir árið 2026. Viðauki I er kostnaðarauki upp á 5.160.000 kr. og er mætt með viðbótarframlögum frá aðildarsveitarfélögum í samræmi við samþykkta kostnaðarskiptingu í stofnsamningi byggðasamlagsins. Viðbótarframlag sveitarfélagsins vegna viðaukans rúmast innan fjárhagsáætlunar Skeiða- og Gnúpverjahrepps fyrir árið 2026.

Fundargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.

22. Fundargerð 34. fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu

Fundargerð lögð fram til kynningar.

23. Fundargerð 35. fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu

Fundargerð lögð fram til kynningar.

24. Fundargerð 92. fundar stjórnar Bergrisans

Fundargerð lögð fram til kynningar.

25. Fundargerð 634. fundar stjórnar Sambands sunnlenskra sveitarfélaga (SASS)

Fundargerð lögð fram til kynningar.

26. Fundargerð 635. fundar stjórnar Sambands sunnlenskra sveitarfélaga (SASS)

Fundargerð lögð fram til kynningar.

27. Fundargerð 8. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands

Fundargerð lögð fram til kynningar.

28. Ársreikningur Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita 2025

Ársreikningur lagður fram til kynningar.

29. Ársreikningur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings 2025

Ársreikningur lagður fram til kynningar.

30. Ársreikningur Bergrisans 2025

Ársreikningur lagður fram til kynningar.

 

Fundi slitið kl. 13:25.

Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 6. maí kl. 9.00, í Árnesi.

Fundargerð undirrituð rafrænt.