Fjallskil á Gnúpverjaafrétti 2018

 

Lagt verður upp í Sandleit miðvikudaginn 5. sept. og eftirsafn  laugardaginn. 22. september.

Fjallkóngur verður Guðmundur Árnason og foringi í Eftirsafni Arnór Hans Þrándarson.  Fjallskilasjóður sér fyrir mat og heyi í allar leitir.

Réttardagurinn er föstudagur 14. september og verður safnið rekið inn kl. 11.00.

 

Fjallmenn eru beðnir að merkja föggur sínar vel og hafa samband við trússara og láta vita hvar föggur þeirra  verða.  

 

Ef gulu fjallmannavestin liggja heima hjá einhverjum eru þeir vinsamlegast beðnir um að skila þeim sem fyrst.

 

Eftirsöfnum Gnúpverja, Skeiða og Flóamanna verður réttað í Skaftholtsréttum að morgni sunnudags hálfum mánuði eftir aðalrétt, ásamt óskilum úr heimahögum en lögboðinn smaladagur er degi áður (laugardag).  Skilarétt verður sunnudaginn 30.sept. kl. 10.00. 

 

“Hverjum bónda ber að hreinsa vel heimalönd sín af öllum óskilum við hverja almenningssmölun og halda öllu fé annarra sem best til skila.”  Sjá má fjallskilareglugerð í markaskrá og á www.skeidgnup.is  og eru landeigendur hvattir til að kynna sér hana.

 

Reykjaréttir eru laugardaginn 15. september og hefjast kl. 9.00. Þar er fjáreigendum ætlað að koma og draga fé sitt í sameiginlegan dilk Gnúpverja, að réttum loknum verður féð flutt í Skaftholtsréttir og dregið þar í sundur.

 

    

Sandleit:                                           

Þjórsárholt: fjallkóngur Guðmundur Árnason

Eystra-Geldingaholt, trúss: Ólafur Jónsson

Hæll I: Helga Höeg Sigurðardóttir

 

Norðurleit:

Háholt Jón Bragi Bergmann

Háholt: Aðalheiður Einarsdóttir

Háholt trúss: Sigurður Kárason

Þrándarholt: Ingvar Þrándarson

Hæll II: Einar Gestsson

 

Dalsá:

Ásar: Jón Hákonarson, Haukur Vatnar Viðarsson

V-Geldingaholt: Bryndís Heiða Guðmundsdóttir.

Háholt: Gylfi Sigríðarson,Sveinn Sigurðarson,Fanney Hrund Hilmarsdóttir,Steinþór Runólfsson

Hæll II: Valgerður Einarsdóttir

Minni-Mástunga:  Jón Marteinn Finnbogason

Sandlækjarkot, Jónas Jónmundsson

Matráður:  Ingibjörg María Guðmundsdóttir

Steinsholt I: Sigurður Loftsson

Stóri Núpur: Hjördís Ólafsdsóttir,Óttar Már Bergmann,Gunnar Sigfús Jónsson,Andreas Bergmann

Skarð: Ástráður Unnar Sigurðsson

St-Mástunga: Stefán Már Ágústsson

Laxárdalur: Kristinn Högnason

Stöðulfell trúss: Ágúst Guðmundsson

 

 

 

 

Eftirsafn:

Þrándarholt: Arnór Hans Þrándarson foringi,

Eystra-Geldingaholt, trúss: Ólafur Jónsson

Hæll III: Birkir Þrastarson

Skarð: Sigurður Unnar Sigurðsson

Stóra-Mástunga: Haukur Haraldsson

Þjórsárholt: Guðmundur Árnason

Ásar: Jón Hákonarson

Steinsholt: Sigurður Loftsson

 

Fjallskilanefnd