- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Fundur hófst kl 9:00.
Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.
Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:
Skipulags- og byggingarmál
1. Fundargerð 331. fundar skipulagsnefndar
Maríulundur L218709; Stækkun byggingarreits; Deiliskipulagsbreyting – 2608031
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Maríulundar L218709. Breytingin felst í breyttri afmörkun byggingarreits þannig að núverandi bygging verði innan hans. Einnig verður heimilt að reisa tvö gestahús á lóðinni, allt að 20 m² hvort.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Þéttbýlið við Árnes; Tvísteinabraut 6; Athafnasvæði í iðnaðarsvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2608089.
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Breytingin snýr að lóð innan þéttbýlisins við Árnes. Breytingin tekur til lóðarinnar Tvísteinabraut 6 sem er innan athafnasvæðis sem auðkennt er AT1. Landnotkunarflokkur lóðarinnar breytist úr því að vera athafnasvæði í það að verða iðnaðarsvæði.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkkir með fimm atkvæðum viðkomandi breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Málið verði sent Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til samþykktar áður en niðurstaða sveitarstjórnar verður kynnt.
Skólamál
2. Leikskólamál í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Lagðar fram drög að uppfærðum reglur Leikholts er snúa að gjaldskrá, vistunartíma og heimgreiðslum. Markmið breytinganna er að bjóða upp á 6 tíma gjaldfrjálsa leikskólavist, viðbótarvistun án kröfu um lágmarks þátttöku ásamt því að taka upp valmöguleika á heimgreiðslum til foreldra barna á aldrinum 12-24 mánaða sem ekki hefja leikskólagöngu.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að vísa framlögðum tillögum að nýrri gjaldskrá Leikholts, uppfærðum reglum er snúa að vistunartíma ásamt reglum um heimgreiðslur til umsagnar í skólanefndar og foreldrafélags Leikholts.
3. Umsókn um skólavist utan lögheimilis sveitarfélags
Umsókn dregin tilbaka.
4. Fundargerð 28. fundar skólanefndar
Fundargerð lög fram til staðfestingar sveitarstjórnar
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum tillögur skólanefndar um vinnuhóp við stefnumótum í matarmenningu við leik- og grunnskóla sveitarfélagsins. Sveitarstjórn staðfestir að öðru leyti framlagða fundargerð.
5. Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Almenn mál
6. Störf sveitarstjórnar og upphaf vinnu vegna fjárhagsáætlunar
Endurskoðandi sveitarfélagsins, Haraldur Örn Reynisson frá KPMG kemur inn á fundinn. Haraldur Örn fjallar almennt um störf og skyldur sveitarstjórnar. Farið er sérstaklega yfir vinnu fjárhagsáætlunar sem er framundan, núverandi stöðu rekstrar sveitarfélagsins ásamt því að ræða mögulega aðkomu sveitarfélagsins að stofnun fasteignaþróunarfélags til að stuðla að uppbygginu íbúða í sveitarfélaginu.
Sveitarstjórn þakkar Haraldi Erni fyrir góða kynningu og gott samtal um stöðu sveitarfélagsins.
7. Persónuverndarstefna Skeiða- og Gnúpverjahrepps - fyrri umræða
Lögð fram uppfærð persónuverndarstefna Skeiða- og Gnúpverjahrepps til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að vísa uppfærðri persónuvernarstefnu Skeiða- og Gnúpverjahrepps til síðari umræðu.
8. Erindi til sveitarstjórnar frá faghópi 3 í Rammaáætlun
Lagt fram bréf til sveitarstjórnar frá faghópi 3 þar sem leitar er eftir áliti sveitarstórnar á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga Rammaáætlunar.
Verkefnastjórn rammaáætlunar hefur verið falið að ljúka mati á sjö virkjunarhugmyndum sem hafa verið til mats í fyrri áföngum, þar á meðal Hrútmúlavirkjun sem væri staðsett í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Við matið á m.a. að fara eftir nýjum lögum sem samþykkt voru á Alþingi 19. júní á þessu ári, sem snúa sérstaklega að vindorkuverum í rammaáætlun. Í 5. grein laganna eru ýmis atriði sem snúa að samfélagsáhrifum virkjana og áforma um virkjun á ákveðnum stað. Þar er m.a. tekið fram að horfa eigi til þess hvort „viðkomandi sveitarfélag hafi lýst yfir formlegri afstöðu til virkjunarhugmyndar og hvaða sjónarmið liggja til grundvallar; jafnframt skal litið til umsagna nálægra sveitarfélaga hafi virkjunarhugmynd áhrif á hagsmuni þeirra.“. Einnig er nefnt að meta eigi hvort að virkjunarhugmyndin efli raforkuöryggi og hver áhrifin yrðu mögulega á atvinnu- og byggðaþróun, auk áhrifa á „íbúa nærumhverfis“.
Samkvæmt drögum að frumvarpi um rýmiseignir er áhrifasvæði vindorkuvera skilgreint sem 30 km og því myndi Skeiða- og Gnúpverjahreppur augljóslega lenda innan þeirra marka frá virkjunarhugmyndinni Hrútmúlavirkjun, sem yrði með staðsetningu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Þar sem faghópar og verkefnisstjórn vinna innan nokkuð þröngs tímaramma væntum hún svara fyrir 18. september frá sveitarstjórn til að geta nýtt inn í mat faghóps 3 á Hrútmúlavirkjun.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fresta afgreiðslu og bókun vegna málsins til næsta fundar sveitarstjórnar sem fer fram 16. september.
9. Erindi frá eigendum sumarhúsa á Flötum
Lagt fram erindi frá eigendum að Flötum 1-24 þar sem óskað er eftir því að Flatir verði gerðar að íbúðakjarna með það fyrir augum að hægt verði að hafa búseturétt á Flötunum í framtíðinni.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps tekur vel í erindi eigenda að Flötum og vísar erindinu til fyrirhugaðrar vinnu við endurskoðun aðalskipulags Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem mun hefjast í haust.
10. Erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands er varðar 16.gr. laga nr. 55/1992
Lagt fram bréf frá NTÍ þar sem hún beinir sjónum sínum að vaxandi tjónum á nýlegum mannvirkjum á þekktum flóðasvæðum og talsverðrar umræðu um enn frekari framkvæmdir á slíkum svæðum. Með bréfinu er áréttuð lagaleg staða og ábyrgð sveitarfélaga í skipulagsmálum og réttur almennings til skýrra upplýsinga um takmarkanir á vátryggingarvernd og bótarétti skv. 16. gr. laga nr. 55/1992 þegar byggt er á svæðum með fyrir fram þekkta náttúruvá, einkum vegna vatns- og sjávarflóða.
11. Trúnaðarmál- fært í trúnaðarbók
12. Skýrsla oddvita
Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.
13. Fundargerð 2. fundar Afréttamálanefndar Gnúpverja
Fundargerð lögð fram til kynningar.
14. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-259
Fundargerð lögð fram til kynningar.
15. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-260
Fundargerð lögð fram til kynningar.
16. Fundargerð samráðsfundar Vegagerðarinnar og Uppsveita 17.08.2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
17. Fundargerð samráðsfundar Vegagerðarinnar og Uppsveita 21.08.2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
18. Fundargerð 1. fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
19. Fundargerð 6. fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundi slitið kl. 13:35.
Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 16. september kl. 9.00, í Árnesi.
Fundargerð undirrituð rafrænt.