Sveitarstjórn

94. fundur 19. ágúst 2026 kl. 09:00 - 12:01 Árnes
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jónsson
  • Vilborg Ástráðsdóttir
  • Harpa Dís Harðardóttir
  • Sigurður Kristmundsson
  • Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir.
Starfsmenn
  • Sylvía Karen Heimisdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Sylvía Karen Heimisdóttir sveitarstjóri

Fundur hófst kl 9:00.

Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.

Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:

Skipulags- og byggingarmál

1. Fundargerð 330. fundar skipulagsnefndar

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Almenn mál

2. Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings- breytingar á stofnsamningi og starfsreglum - síðari umræða.

​​​Lagðar fram til síðari umræðu breytingar að stofnsamningi og starfsreglum Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum breyttan stofnsamning og starfsreglur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.

 

3. Reglugerð Hitaveitu Brautarholts - síðari umræða

Lögð fram til síðari umræðu uppfærð reglugerð Hitaveitu Brautarholts. Núverandi reglugerð er frá 1979 og er því verið að uppfæra reglugerðina í heild.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum nýja reglugerð fyrir Hitaveitu Brautarholts.

 

4. Viðauki við samning

​​​​Lagður fram til staðfestingar sveitarstjórnar viðauki við samningi við Þrándarholt sf í tengslum við byggingu tengibyggingar sem tengja á íþróttamiðstöð og Þjórsárskóla.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps staðfestir framlagðan samning.

 

5. Uppbygging á vatnsveitu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Lögð fram til kynningar fyrir sveitarstjórn skýrsla ISOR um uppbyggingu á kaldavatns vatnsveitu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Einnig lagt fram minnisblað oddvita frá október 2025.

Í skýrslu ÍSOR kemur fram að hægt sé að byggja upp öfluga kaldavatnsveitu sem væri örugg, með mikið áfallaþol ásamt því að hægt sé að stefna að því að vatnsveitan geti sinnt bæði þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins og megin þorra dreifbýlisins.


Allar forsendur eru fyrir því að byggja upp veituna á komandi árum með skynsamlegum fjárfestingum á hverju ári þangað til búið verði að framkvæma alla áfanga sem lagðir eru til í skýrslunni.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að vinna áfram að uppbyggingu vatnsveitunnar með tillögur ÍSOR til hliðsjónar og að við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 og 2028-2030 verði gert ráð fyrir árlegum fjárfestingum í vatnsveitunni.

 

6. Neslaug- opnuntartími veturinn 2026-2027

​Lagðar fram aðsóknartölur fyrir árið 2025 og 2026 í Neslaug. Lagt er til að vetraropnun Neslaugar verði á laugardögum og sunnudögum.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að hefja vetraropnun Neslaugar verði á laugardögum og sunnudögum með möguleika á endurskoðun.

 

Vilborg Ástráðsdóttir vék af fundi.

7. Erindi frá Hestamannafélaginu Jökli

Lagt fram erindi frá reiðveganefnd Hestamannafélagsins Jökuls þar sem óskað er eftir því að að sveitarfélagið Skeiða- og Gnúpverjahreppur standi straum af kostnaði við að ljúka frágangi reiðleiðar við þéttbýlið í Árnesi. Um er að ræða um það bil 3,5 km langan kafla þar sem lagður var reiðstígur haustið 2025. Vegna mikillar fjarlægðar í hentuga malarnámu var nýtt efni sem var aðgengilegt nær framkvæmdasvæðinu en í ljós kom að það innihélt of mikið af grófum steinum og yfirborð reiðstígsins varð því grófara en æskilegt er, fyrir hross.

Til að bæta úr því er hagkvæmast að fara yfir yfirborðið með svokölluðum grjótbrjót, sem skilar jafnara, fíngerðara og öruggara yfirborði fyrir hesta og ríðandi umferð. Reynsla af sambærilegum framkvæmdum annars staðar sýnir að með þessari aðferð má ná fram góðu og endingargóðu yfirborði reiðstíga til margra ára.

Með framkvæmdinni yrði lokið við mikilvægan reiðvegskafla við þéttbýlið í Árnesi og tryggð mun betri og öruggari reiðleið fyrir íbúa, félagsmenn og aðra hestamenn sem fara um svæðið.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum leggja 500.000 kr. í verkefnið árið 2026 og rúmast styrkveitingin innan núverandi fjárheimilda. Sveitarstjórn vísar því svo til vinnu fjárhagsáætlunar fyrir komandi ár að mynda heildstæða stefnu við framlög til reiðvegagerðar innan sveitarfélagsins.

Vilborg Ástráðsdóttir kemur aftur inn á fund.

 

8. Styrkbeiðni frá Vísinda- og rannsóknarsjóði Suðurlands

Lögð fram beiðni um styrk í Vísinda- og rannsóknarsjóði Suðurlands. Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands hefur það að markmiði að efla rannsóknir sem tengjast Suðurlandi og skapa nýja þekkingu sem nýtist samfélagi og atvinnulífi Suðurlands. Sjóðurinn styrkir nemendur sem vinna að lokaverkefnum á háskólastigi og er við mat á umsóknum sérstaklega horft til þess að rannsóknirnar hafi skýra tengingu við Suðurland, þjóni atvinnulegum eða fræðilegum tilgangi og geti stuðlað að frekari rannsóknum, atvinnuuppbyggingu og hagsmunum Sunnlendinga. Í gegnum árin hefur sjóðurinn stutt við fjölbreytt rannsóknarverkefni, meðal annars á sviði ferðaþjónustu, náttúru og lífríkis, samfélagsmála og atvinnulífs. Sjóðurinn byggir á frjálsum framlögum styrktaraðila.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að styrkja sjóðinn um 50.000 kr. árlega á árunum 2026-2028. Styrkveiting rúmast innan núverandi fjárhagsheimildar.

 

9. Skil á lóð - Holtabraut 37-41

Lagt fram erindi frá Guðrún Svövu Bjarnadóttur sem fékk úthlutaðri lóð við Holtabraut 37-41 á fundi sveitarstjórnar hinn 1. júlí sl. Óskar hún eftir að skila lóðinni aftur til sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að lóðinni Holtabraut 37-41 verði skilað og að álögð gatnagerðargjöld verði felld niður. Sveitarstjóra er falið að auglýsa lóðina aftur.

 

10. Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.

Lögð fram drög að umsögn sveitarstjórnar í tengslum við þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að umsögn og felur oddvita að klára að vinna umsögnina í samræmi við umræður á fundinum og skila í samráðsgátt stjórnvalda.

 

11. Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 21. ágúst

Lagt fram fundarboð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem fram fer föstudaginn 21. ágúst ásamt skýrslu stjórnar, ársreikningi og fjárhagsáætlun.

 

12. Skýrsla oddvita

Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.

 

13. Íþróttavika Evrópu

Lögð fram til kynningar fyrstu drög að dagskrá og kostnaðaráætlun fyrir heilsu- og hreyfiviku Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem áætlað er að halda í tengslum við íþróttaviku Evrópu dagana 23-30 september.

 

14. Fundargerð 3. fundar Farsældarráðs Suðurlands

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

15. Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga 5.8.2026

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

Fundi slitið kl. 12.01.

Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 2. september kl. 9.00, í Árnesi.

Fundargerð undirrituð rafrænt.