Sveitarstjórn

90. fundur 20. maí 2026 kl. 09:00 - 10:05 Árnes
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jónsson oddviti
  • Vilborg Ástráðsdóttir
  • Bjarni H. Ásbjörnsson
  • Sigríður Björk Gylfadóttir í fjarveru Gunnars Arnars Marteinssonar
  • Gerður Stefánsdóttir.
Fundargerð ritaði: Sylvía Karen Heimisdóttir sveitarstjóri

Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera. Ein beiðni barst frá varamanni U- lista, Axel Á. Njarðvík, um að tekið yrði inn á fund erindi um að setja inn í viðauka við fjárhagsáætlun heimild til greiðslu á þeirri þjónustu sem fulltrúi U-listans kallaði eftir og dregin var saman í greinargerð U-listans við afgreiðslu umsóknar Landsvirkjunnar um framkvæmdaleyfi Hvammsvirkjunnar á fundi sveitarstjórnar þann 18. mars 2026. Beiðni um að setja mál inn á dagskrá fundar er hafnað þar sem ekki liggja fyrir fullnægjandi gögn.

 

Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:

1. Skýrsla oddvita

Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.

 

Gerður Stefánsdóttir kom inn á fund kl 9.15.

 

2. Samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga bs - síðari umræða

​​​​​Lagðar fram til síðari umræðu samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga.

 

3. Tilkynning um stjórnsýslukæru nr. UUA2605005, Hvammsvirkjun

Lögð fram stjórnsýslukæra vegna veitingu framkvæmdaleyfis fyrir Hvammsvirkjun

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum að fela sveitarstjóra í samráði við lögfræðinga sveitarfélagsins að svara kærunni.

 

Gerður Stefánsdóttir bókaði eftirfarandi:

Bókun min byggir á reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og í lögum um Umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021   

Markmið reglugerðar um framkvæmdaleyfi er meðal annars að:

  •        tryggja faglegan undirbúning við útgáfu framkvæmdaleyfis
  •        tryggja að leyfisskildar framkvæmdir séu í samræmi við mat á umhverfisáhrifum
  •        tryggja að framkvæmdir séu ekki hafnar án leyfis

Í 10 gr. um reglugerðinnar segir um meðferð umsókna um framkvæmdaleyfi:

1 mgr. Áður en umsókn um framkvæmdaleyfi er afgreidd skal leyfisveitandi meta hvort framlögð gögn lýsi framkvæmdinni á fullnægjandi hátt, hönnunargögn séu fullnægjandi og framkvæmdin sé í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir og einnig mat á umhverfisáhrifum ef við á.

2 mgr. Þá skal leyfisveitandi leggja álit Skipulagsstofnunar um mat á umhvrefisáhrifum framkvæmdarinnar til grundvallar.

Í lögum um Umhverfismat framkvæmda og áætlana kemur með skýrum hætti fram í 28 gr laganna að:

Ef framkvæmd hefst ekki innan tíu ára frá því að álit Skipulagsstofnunar um umhverfismat framkvæmdarinnar liggur fyrir skal framkvæmdaraðili eða viðkomandi leyfisveitandi óska eftir slíku áliti Skipulagsstofnunar.

Samkvæmt þessu hefði sveitastjórn, miðað við skýrt ábyrgðarhlutverk samkvæmt reglugerð um framkvæmdaleyfi átt að að senda fyrirspurn til HSM (áður Skipulagsstofnun) áður en framkvæmdarleyfi var gefið út.

Ég hvet sveitastjórn til að standa betur að verklagi við framkvæmdaleyfi en verið hefur, tryggja að leyfi liggi fyrir og séu í samræmi við lög.

 

4. Mál kærunefndar jafnréttismála nr. 6/2026 - óskað eftir afstöðu

Lögð fram bréf frá kærunefnd jafnréttismála þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins vegna ráðningar í starfið bókara/launafulltrúa um hvort brotið hafi verið gegn 19. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna við ráðningu.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fela sveitarstjóra í samráði við lögfræðinga sveitarfélagsins að svara bréfinu.

 

5. Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands 27. maí 2026

Lagt fram fundarboð á aðalfund Eignarhaldsfélags Suðurland sem haldinn verður þann 27. maí 2026.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fela oddvita, Haraldi Þór Jónssyni, að mæta á fundinn fyrir hönd Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

 

6. Fundargerð 325. fundar skipulagsnefndar

​​​Eystra-Geldingaholt l (L194247); byggingarheimild; sumarhús - 2605014

Móttekin var umsókn þann 05.05.2026 um byggingarheimild fyrir 115,1 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Eystra-Geldingaholt I (L194247) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

 

Húsatóftir 4A (L222395); byggingarheimild; sumarhús - 2605015

Móttekin var umsókn þann 05.01.2026 um byggingarheimild fyrir 52 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Húsatóftir 4A (L222395) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

 

Selhöfðar 2 L238511; Úr smáhýsi í gistihús; Deiliskipulagsbreyting - 2605011

Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Selhöfða 2, L238511 í Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Í breytingunni felst stækkun hámarksstærðar gistihúsa, úr 60 m² í 75 m² og tekið er út ákvæði um fjölda þeirra, samanlagt byggingarmagn helst óbreytt. Í stað þess að kalla húsin smáhýsi, er talað um lítil gistihús. Spennistöð sem áður var teiknuð við vesturenda Selhöfða 2 er nú flutt um 65 m norðar á lóð Selhöfða 4 í samráði viðviðeigandi veitustofnun.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins, með fyrirvara um uppfærð gögn er varðar að hámarksfjöldi gestahúsa verði óbreyttur. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.

 

7. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-250

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

8. Fundargerð 26. fundar skólanefndar

​​​Fundargerð er staðfest af sveitarstjórn.

 

9. Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2026

Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2026 lögð fram til kynningar.

 

10. Björgunarsveitin Sigurgeir ársskýrsla og ársreikningur 2025.

Ársreikningur og ársskýrsla lögð fram til kynningar.

 

11. Fundargerð ársfundar Brákar íbúðafélags hses. 2025

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

12. Fundargerð stjórnar SVÁ 4. maí 2026

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

13. Fundargerð 93. fundar stjórnar Bergrisans

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

14. Fundargerð 218. fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

15. Fundargerð 219. fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

16. Fundargerð Öldungaráðs Uppsveita og Flóa frá 8. Apríl 2026.

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

17. Bréf til til sveitarfélaga á sambandssvæði HSK

Bréf lagt fram til kynningar.

 

18. Orlof húsmæðra ársskýrsla 2025

Ársskýrsla lögð fram til kynningar.

 

19. Ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar 2025

Ársskýrsla lögð fram til kynningar.

 

20. Spurningar og svör eftir fundi HES með Atvinnuveganefnd og Umhverfis- og samgöng.

Spurningar og svör eftir fundi HES lagðar fram til kynningar.

 

Fundi slitið kl. 10:05.

 

Síðasti fundur sveitarstjórnar.

Fundargerð undirrituð rafrænt.