- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:
1. Ráðning skólastjóra Þjórsárskóla.
Hinn 21. mars 2025 var staða skólastjóra Þjórsárskóla auglýst á heimasíðu og
samfélagsmiðlum sveitarfélagsins, Alfreð, DFS og á atvinnusíðu Morgunblaðsins.
Umsóknarfrestur rann út 14. apríl. Sex umsóknir bárust um starfið en í viðtalsferlinu drógu þrír
umsækjendur umsókn sína til baka, einn umsækjandi uppfyllti ekki kröfur. Ferlið samanstóð af
hæfnismati á umsækjendum byggðu á innsendum umsóknargögnum, hegðunartengdum
viðtölum og umsögnum. Til grundvallar matinu lágu skilgreind hæfniviðsmið og var
niðurstaðan að hæfasti umsækjandinn sé Guðmundur Finnbogason.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum að staðfesta
ráðningu Guðmundar Finnbogasonar sem skólastjóra Þjórsárskóla.
Gunnar Örn Marteinsson situr hjá við afgreiðslu málsins.
2. Fulltrúar á aðalfund Brunavarna Árnessýslu bs.
Kjör fulltrúa á aðalfund Brunavarna Árnessýslu bs. til loka kjörtímabilsins, einn fulltrúi og einn
til vara. Vegna breytinga á stjórnskipulagi Brunavarna Árnessýslu bs. samþykkir sveitarstjórn
Skeiða- og Gnúpverjahrepps með fimm atkvæðum að Haraldur Þór Jónsson verði fulltrúi
sveitarfélagsins á aðalfundi Brunavarna Árnessýslu bs. sem haldinn verður í tengslum við
vorfund Héraðsnefndar Árnesinga bs. Varamaður verði Bjarni Hlynur Ásbjörnsson.
3. Fulltrúar á aðalfund Tónlistarskóla Árnessýslu bs.
Kjör fulltrúa á aðalfund Tónlistarskóla Árnessýslu bs. til loka kjörtímabilsins, einn fulltrúi og
einn til vara. Vegna breytinga á stjórnskipulagi Tónlistarskóla Árnessýslu bs. samþykkir
sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps með fimm atkvæðum að Haraldur Þór Jónsson verði
fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundi Tónlistarskóla Árnessýslu bs. sem haldinn verður í tengslum
við vorfund Héraðsnefndar Árnesinga bs. Varamaður verði Bjarni Hlynur Ásbjörnsson.
Fundi slitið kl. 12:05
Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 7. maí, kl. 9.00, í Árnesi.
Fundargerð undirrituð rafrænt.