Sveitarstjórn

86. fundur 18. mars 2026 kl. 09:00 - 11:18 Árnes
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jónsson oddviti
  • Vilborg Ástráðsdóttir
  • Bjarni H. Ásbjörnsson
  • Gunnar Örn Marteinsson
  • Axel Á. Njarðvík.
Fundargerð ritaði: Haraldur Þór Jónsson Sylvía Karen Heimisdóttir

Árnesi, 18. mars 2026

Raðnúmer fundar í WorkPoint skjalakerfi F202603-0009

Fundargerð:

86. sveitarstjórnarfundur

Mætt til fundar:

Haraldur Þór Jónsson oddviti, Vilborg Ástráðsdóttir, Bjarni H. Ásbjörnsson, Gunnar Örn Marteinsson og Axel Á. Njarðvík.

Sylvía Karen Heimisdóttir ritaði fundinn.

Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.

Óskaði oddviti eftir því að bæta við tveimur málum á dagskrá, annars vegar bókun frá sveitarstjórn um frekari uppbyggingu orkumannvirkja til framtíðar og verður það mál nr 3 á dagskrá fundar, færast aðrir dagskrárliðir neðar sem því nemur, hins vegar fundargerð loftslags- og umhverfisnefndar sem verður mál nr. 17 á fundinum. Var það samþykkt með fimm atkvæðum.

 

Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:

1. Skýrsla oddvita á 86. sveitarstjórnarfundi

Haraldur Þór Jónsson, oddviti, leggur fram eftirfarandi bókun:

Á núverandi kjörtímabili sem senn er að enda komið hefur oddviti, fyrir hönd Samvinnulistans og sveitarstjórnar, unnið markvisst að uppbyggingu Skeiða- og Gnúpverjahrepps ásamt því að vinna ötullega að hagsmunagæslu fyrir íbúa sveitarfélagsins. Það hefur verið gert með mikilli upplýsingagjöf og samvinnu í sveitarstjórn, þvert á alla lista sem eiga fulltrúa í sveitarstjórn.

Allir í sveitarfélaginu vita að U-listinn hefur haft eitt meginmál sem sitt stefnumál sem er að berjast gegn því að Hvammsvirkjun verði byggð. Á kjörtímabilinu hefur einnig komið í ljós að megin stefna U-listans er að koma í veg fyrir/hindra frekari uppbyggingu í sveitarfélaginu. Það má sjá með bókunum fulltrúa U-listans í sveitarstjórn þegar kemur að virkjanamálum, uppbyggingu ferðaþjónustu í Þjórsárdal, uppbyggingu ferðaþjónustu við Selhöfða, uppbyggingu íbúða í Árnesi og einfaldra skipulagsbreytinga hjá landeigendum innan sveitarfélagsins.

Mikilvægasta samgöngubót sem íbúar sveitarfélagsins hafa beðið eftir um langa tíð eru framkvæmdir við Búðafossveg og bygging nýrrar brúar yfir Þjórsá. Nú liggur fyrir að U-listinn hefur lagst harkalega gegn framkvæmdinni með umsögn inn í skipulagsgátt, umsögn sem inniheldur mikinn fjölda af rangfærslum. Einnig hefur Náttúrugrið kært úrskurð Skipulagsstofnunar um Búðafossveg til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, en kæran byggir að meginstefnu á umsögn frá fulltrúum U-listans. Mögulegt er að kæruferlið orsaki frestun á því að framkvæmdir við Búðafossveg hefjist á næstu vikum.

Að mati oddvita er framganga U-listans í málinu slíkur trúnaðarbrestur gagnvart samfélaginu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi að ekki sé lengur forsenda fyrir frekari upplýsingagjöf og samstarfi í sveitarstjórn við U-listann. Því mun oddviti ekki lengur flytja sína skýrslu í sveitarstjórn, heldur eingöngu vinna áfram náið í samstarfi við aðra fulltrúa í sveitarstjórn.

Gert er hlé á fundi kl 9.05. Fundur hefst aftur kl 9.24.

Axel Á. Njarðvík leggur fram eftirfarandi bókun:

Það sem oddviti bókar í sínu nafni dregur fram þá megin stefnu að sveitarstjórn fari að lögum. Það hefur U-listinn haft að leiðarljósi. Því getur ekki verið um trúnarbrest að ræða þegar kjörinn fulltrúi leitast við að fara að lögum. Öllum íbúum ætti að vera það ljóst sem oddvita, að umhyggja, uppbygging og umhverfi er kjörorð U-listans. Þessi kjörorð spynnast um nefnd mál sem oddviti dregur fram í bókun sinni og rými hlýtur að þurfa að gefast þegar ólík sjónarmið sem spretta af þeirri eyðileggju búsvæða sem téðar framkvæmdir fela í sér. Oddvita getur ekki verið stætt á þessari framgöngu sinni sem bókunin dregur fram. Þegar unnið er að sameiginlegum málefnum sveitarfélagsins verður að vera rými fyrir ólíkar skoðanir sem leiða til niðurstöðu án þess að slíku sé beitt sem beitt er. Þarf því að leita til Sambands sveitarfélaga og jafnvel ráðuneytis með þessa bókun.

 

2. Hvammsvirkjun; Vatnsaflsvirkjun í Þjórsá; Framkvæmdaleyfi -2512066

​​​Lögð er fram umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdum við 95 MW Hvammsvirkjun, dags. 22. janúar 2026, ásamt fylgiskjölum.

Hvammsvirkjun er fyrirhuguð vatnsaflsvirkjun í neðanverðri Þjórsá, skilgreind á aðalskipulagi innan svæðis I15, Hvammsvirkjun. Fyrirhugað inntakslón virkjunarinnar, Hagalón, er áætlað í farvegi Þjórsár norður af Skarðsfjalli.

Framkvæmdaleyfisumsókn Landsvirkjunar tekur til heildarframkvæmda við virkjunina, sbr. virkjunarleyfi og leyfi til breytinga á vatnshloti, dags. 12. desember 2025.

Með Hvammsvirkjun verður nýtt allt að 352 m3/s rennsli og 32 m fall Þjórsár á um 9 km kafla frá Yrjaskeri að neðri enda Ölmóðseyjar. Virkjunin nýtir miðlað rennsli Þjórsár frá lónunum ofar á vatnasviðinu. Virkjunarsvæðið er innan sveitarfélaganna Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Flest mannvirki verða í því fyrrnefnda. Hagalón verður myndað með stíflu í Þjórsá á mörkum jarða Minna-Núps í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Hvamms 1 í Rangárþingi ytra, stíflugarði í landi Skarðs í Rangárþingi ytra og Þjórsárdalsvegi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Steinsteypt flóðvirki, fiskvegir, inntaksskurður, inntaksvirki, aðrennslispípur, stöðvarhús, sveifluþró, frárennslisgöng og frárennslisskurður verða í landi Hvamms 1. Innan framkvæmdasvæðisins eru byggingarleyfisskyld mannvirki skv. nánari útlistun þar á í fyrirliggjandi greinargerð með umsókn um framkvæmdaleyfið. Sótt verður um byggingarleyfi fyrir þeim mannvirkjum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012 eftir því sem mannvirkjagerð kallar á. Umsóknin tekur ekki til endurbyggingar og færslu Þjórsárdalsvegar, færslu Gnúpverjavegar og styrkingu núverandi Hvammsvegar, né framkvæmda vegna nýs tengivirkis í landi Skarðs og breytinga á Búrfellslínu 1, en þær framkvæmdir eru á forræði Vegagerðarinnar og Landsnets.

Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Landsvirkjunar og öðrum fylgigögnum umsóknar.

Eftirtalin gögn eru lögð fram hjá sveitarstjórn:

Umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi, dags. 22. janúar 2026.

Greinargerð Landsvirkjunar með umsókn um framkvæmdaleyfi, dags. 22. janúar 2026.

Viðauki með greinargerð Landsvirkjunar, Ytri skilyrði og kröfur, mótvægisaðgerðir og vöktun

Teikningar og yfirlitsmynd af framkvæmd

Deiliskipulag Hvammsvirkjunar

Skipulagsgreinargerð og umhverfisskýrsla

Skipulagsuppdráttur 1:12.500

Skipulagsuppdráttur 1:2.500

Umhverfismatsskýrsla, dags. apríl 2003

Úrskurður Skipulagsstofnunar, dags. 19. ágúst 2003

Úrskurður umhverfisráðherra, dags. 27. apríl 2004

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um endurskoðun matsskýrslu, dags. 16. desember 2015

Endurskoðað umhverfismat, frá því í október 2017

Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Hvammsvirkjunar, dags. 12. mars 2018

Leyfi Minjastofnunar Íslands, dags. 26. nóvember 2021

Leyfi Fiskistofu, dags. 14. júlí 2022

Virkjunarleyfi frá Umhverfis- og orkustofnun auk heimildar til breytinga á vatnshlotum, dags. 12. desember 2025

Umsögn Náttúruverndarstofnunar, dags. 19. febrúar 2026.

Athugasemdir Landsvirkjunar, dags. 20. febrúar 2026 vegna umsagnar Náttúruverndar-stofnunar.

Samkomulag landeigenda og framkvæmdaraðila um mótvægisaðgerðir vegna áhrifa Hvammsvirkjunar á friðun Viðeyjar/Minnanúpshólma, dags. 22. desember 2023.

Greinargerð í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 16. febrúar 2026.

Málið var tekið fyrir hjá skipulagsnefnd 11. mars 2026 þar sem lagt var til við sveitarstjórn að greinargerð í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 16. febrúar 2026, yrði samþykkt sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdaleyfisumsóknina og fallist yrði á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna Hvammsvirkjunar í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsvirkjunar og önnur fyrirliggjandi gögn.

Málið var tekið fyrir hjá loftslags- og umhverfisnefnd þann 16. mars 2026 og óskað umsagnar, sbr. 3. mgr. 61. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Umsögn nefndarinnar liggur fyrir hjá sveitarstjórn. Nefndin gerði ekki athugasemdir við útgáfu framkvæmdaleyfis vegna Hvammsvirkjunar, en benti m.a. á mikilvægi þess að röskun yrði ekki á framkvæmdasvæðinu

umfram það sem brýna nauðsyn bæri til og lagði áherslu á að leyfið yrði bundið þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram koma í fyrirliggjandi greinargerð skv. 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 16. febrúar 2026.

Axel Á Njarðvík leggur fram eftirfarandi tillögu við sveitarstjórn:

Ég sem fulltrúi U-listans legg til að sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahreppi óski eftir ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar hvort endurskoðun umhverfismats hvað varðar vatnalíf og vatnafar, þurfi í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda varðandi umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafnar tillögu fulltrúa U-listans með fjórum atkvæðum gegn einu atkvæði.

 

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur gögn auk þess sem sveitarstjórn hefur látið taka saman greinargerð í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna framkvæmdarinnar, dags. 16. febrúar 2026, sem liggur fyrir í gögnum málsins.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum framlagða greinargerð sveitarfélagsins, í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, sbr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdarleyfisumsóknina og að í henni felist rökstuðningur sveitarstjórnar skv. 5. mgr. 61. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013 auk þess sem sveitarstjórn vísar til umsagnar loftslags- og umhverfisnefndar.

Sveitarstjórn hefur, eins og nánar er gerð grein fyrir og rakið í greinargerð sveitarfélagsins, kynnt sér umsókn framkvæmdaaðila auk greinargerðar, matsskýrslu og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna, virkjunarleyfi ásamt heimild til breytingar á vatnshlotum og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsvirkjunar með framkvæmdaleyfisumsókninni.

Sveitarstjórn telur að í fyrirliggjandi gögnum sé sýnt fram á að brýna nauðsyn beri til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna og að í fyrirliggjandi gögnum sé einnig næg grein gerð fyrir framkvæmdum við Hvammsvirkjun umfram aðra valkosti. Tekur sveitarstjórn undir það mat Umhverfis- og orkustofnunar í fyrirliggjandi virkjunarleyfi ásamt heimild til breytinga á vatnshlotum, dags. 12. desember 2025, að ekki sé með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum.

Með vísan til rökstuðnings í greinargerð/umsögn sveitarstjórnar í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, sbr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, dags. 16. febrúar 2026, samþykkir sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps með fjórum atkvæðum að gefið verði út framkvæmdaleyfi í samræmi við framlagða umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun, með þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram koma í greinargerð sveitarfélagsins og nánar er gerð grein fyrir í öðrum framlögðum gögnum, s.s. varðandi vöktun og frágang vegna framkvæmdarinnar. Sveitarstjórn mun skipa aðila í eftirlitsnefnd vegna uppbyggingar á Hvammsvirkjun og felur sveitarstjórn þeirri nefnd að hafa eftirlit með framkvæmdunum. Eftirlitsnefndin skal hafa eftirlit með því að öllum skilyrðum sem framkvæmdinni hafa verið sett sé framfylgt. Eftirlitsnefndin hefur, ásamt skipulagsfulltrúa, eftirlit með því að framkvæmdin sé í samræmi við leyfi og fylgigögn leyfis. Nefndin skal skila af sér skýrslu til sveitarstjórnar um framkvæmd eftirlitsins fyrir lok hvers áfanga framkvæmdarinnar. Verði skilyrðum vegna framkvæmdarinnar ekki framfylgt, ásigkomulag, frágangi, notkun eða umhverfi framkvæmdar eða eigin eftirliti framkvæmdaaðila ábótavant eða stafi af framkvæmdinni hætta skal eftirlitsnefndin tilkynna sveitarstjórn þar um. Þá skal nefndin gera grein fyrir frávikum og tilkynna framkvæmdaraðila skriflega um frávik og kröfur til úrbóta.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps felur skipulagsfulltrúa, að uppfylltum framlögðum skilyrðum, að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við framangreint, ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og ákvæði reglugerðar nr. 772/2012.

Axel Á. Njarðvík greiðir atkvæði gegn veitingu framkvæmdaleyfis fyrir Hvammsvirkjun og samþykkt greinargerðar og leggur fram eftirfarandi bókun:

Í dag, 18. mars 2026 eru 54 ár liðin frá lokum hins almennan sveitarfundar í Árnesi um áform um miðlunarlón Landsvirkjunnar í Þjórsárverum sem landgræðslunefnd Ungmennafélags Gnúpverja hélt. Fundurinn hófst að kveldi þess 17. og stóð fram á rauða nótt og var slitið klukkan 3:30. Þar var mótmælt harðlega öllum áformum í og við Þjórsárver. Stórkostleg spjöll hefðu af hlotist hefðu áform Landsvirkjunnar gengið eftir.

Gnúpverjar tóku varðstöðu til stuðnings náttúru og fuglum himinsins.

Í dag samþykkir meirihluti sveitarstjórnar Skeiða-og Gnúpverjarhepps enn á ný einhverja stærstu eyðingu náttúru í byggð á Íslandi.

Ég sem fulltrúi U-listans leggst því algjörlega gegn veitingu framkvæmdaleyfis fyrir Hvammsvirkjun með vísan til alls sem hér fer á eftir í greinargerð.

Margir aðrir kostir eru til raforkuframleiðslu en að reisa óhagkvæma vatnsaflsvirkjun sem alls ekki hefur verið umhverfismetin með fullnægjandi hætti, með lagalega umdeildri undanþágu frá lögum um stjórn vatnamála, og í vatnsfalli sem hefur afar hátt gildi varðandi náttúrufar og líffræðilegan fjölbreytileika Atlantshafslaxins sem er á miklu undanhaldi á heimsvísu.

Hafna ber eða fresta, á meðan ágreiningur er til flýtimeðferðar fyrir dómstólum

Ég sem fulltrúi U-listans tel að ekki eigi veita framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun á þessu stigi þar eð verulegur lagalegur ágreiningur er um gildi bæði úrskurðar frá 2018 um að ekki þurfi að umhverfismeta áhrif virkjunar á vatnalíf og um virkjunarleyfið sjálft frá desember 2025. Um þann ágreining er rekið flýtimeðferðarmál og fer málflutningur fram í héraðsdómi fyrri hluta maímánaðar næstkomandi. Varúðarregla og krafa um vísindalegan grundvöll gildir við afgreiðslu sveitarstjórnar og málefnaleg sjónarmið mæla með því að hafna framkvæmdaleyfi að svo stöddu en ella fresta afgreiðslu málsins þar til úr ágreiningi hefur verið leyst fyrir dómstólum.

Ég sem fulltrúi U-listans og meirihluti sveitarstjórnar, sem stendur að 50 síðna greinargerð til stuðnings leyfisveitingu, eru sammála um að eldri umhverfismatslög, nr. 106/2000, gildi við afgreiðslu leyfisbeiðni. Þau lög mæltu fyrir um hámarkstíma sem líða mátti frá úrskurði Skipulagsstofnunar, sem var tíu ár. Þar sem meira en tíu ár liðu frá úrskurði Skipulagsstofnunar 16. desember 2015 um takmarkaða endurskoðun umhverfismats Hvammsvirkjunar þar til umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi barst sveitarfélaginu 22. janúar 2026, ber Skeiða- og Gnúpverjahreppi að lágmarki að bíða með ákvörðun um framkvæmdaleyfi og óska eftir nýrri ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um endurskoðun umhverfismats hvað varðar vatnalíf og vatnafar, í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda. Sú tillaga er því formlega sett fram hér af hálfu fulltrúa U-listans sem málamiðlun. Annars verður leyfisveitingin ógildanleg og á lögmætið mun væntanlega reyna eins og fyrri leyfisveitingu sveitarstjórnar fyrir sömu framkvæmd, hvort sem er fyrir dómstólum, æðra stjórnvaldi eða hvorutveggja.

Frekari þætti þessarar ákvörðunnar minnar er að finna í nýrri greinargerð U-listans um beiðni Landsvirkjunnar um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá sem fylgir fundargögnum.

 

3. Bókun sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps um frekari uppbyggingu orkumannvirkja til framtíðar

Í Íslandssögunni hefur hvergi verið framleidd meiri raforka heldur en í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Virkjanamálin hafa verið gríðarlega umfangsmikil í vinnu sveitarstjórnar og ljóst er að þau verða það áfram með tilliti til fjölmargra ónýttra virkjanakosta á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu, þar á meðal í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur á síðustu árum ítrekað bent á og lagt fram gögn sem sýna fram á að efnahagslegur ávinningur orkumannvirkja kemur mjög takmarkað fram í nærsamfélaginu heldur fyrst og fremst þar sem orkan er notuð.

Í núverandi lagaumgjörð eru tekjur Skeiða- og Gnúpverjahrepps engar af Hvammsvirkjun, né öðrum virkjunum sem nýverið hafa verið samþykktar í orkunýtingarflokk. Það er ástæðan fyrir því að þann 15. febrúar 2023 hætti sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að skipuleggja orkumannvirki meðan núverandi lagaumgjörð er við lýði.

Það er fagnaðarefni að ríkisstjórnin hefur boðað breytingar og samkvæmt þingmálaskrá mun Innviðaráðherra mæla fyrir frumvarpi þann 20. mars 2026 þar sem afnema á undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati og þannig tryggja nærsamfélaginu sanngjarnan ávinning af orkumannvirkjum.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hvetur ríkisstjórnina og alla flokka á Alþingi til að tryggja framgöngu málsins á núverandi þingi þannig að það verði að lögum og þannig tryggð samvinna sveitarfélaga og ríkisins að frekari uppbyggingu orkumannvirkja á Íslandi.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir samhljóða að vinna ekki frekar að skipulagningu orkumannvirkja fyrr en undanþága orkumannvirkja frá fasteignmati hefur verið felld úr gildi og nærsamfélaginu tryggður sanngjarn ávinningur af orkumannvirkjum.

Haraldur Þór Jónsson, oddviti, Bjarni H. Ásbjörnsson, varaoddviti, Vilborg Ástráðsdóttir, Gunnar Örn Marteinsson, Axel Á. Njarðvík

 

4. Stofnun félags um sorpþjónustu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Lagðir fram minnispunktar frá KPMG er varðar sorphirðu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í minnispunktunum er fjallað um hvernig skuli haga rekstrarformi sorpþjónustunnar sem sveitarfélagið hefur tekið til sín og er rekið af starfsmönnum áhaldahús sveitarfélagsins. Tvær rekstrarleiðir eru í boði fyrir sveitarfélagið, stofnun B-hluta félags þar sem starfsemin er rekin sem hluti af sveitarfélaginu eða stofna einkahlutafélag um starfsemina.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að stofna B-hluta félag um rekstur sorpþjónustunnar og felur sveitarstjóra í samvinnu við KPMG að vinna málið áfram og klára að vinna undirbúning að stofnun félagsins.

 

5. Sala á jörðinni Laugarás

Lögð fram drög að kaupsamningi um jörðina Laugarás í Bláskógabyggð. Bláskógabyggð kaupir eignarhlut Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Grímsnes- og Grafningshrepps og Hrunamannahrepps í jörðinni Laugarás og þau hlunnindi sem jörðinni fylgja. Lóðaleigusamningar um lóðir úr landi Laugarás halda gildi sínu. Matsverð jarðarinnar er 280 milljónir og greiðir Bláskóabyggð 187.040.000 kr. fyrir hlut hinna sveitarfélaganna. Hlutur Skeiða- og Gnúpverjahrepps í jörðinni er 24,9% og er því hlutur Skeiða- og Gnúpverjahrepps 69.720.000 kr.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum kaupsamninginn og felur Haraldi Þór Jónssyni, kt. 270576-5089, oddvita, að undirrita kaupsamninginn og önnur gögn tengd sölunni.

 

6. Kjörstaður í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í sveitarstjórnarkosningum 2026

​​​Samkvæmt 1. mgr. 78.gr. laga nr. 112/2021, kosningalög, þarf sveitastjórn að taka ákvörðun um staðsetningu á kjörstað.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að Þjórsárskóli verði kjörstaður í sveitarstjórnarkosningum sem fara fram 16. maí 2026.

 

7. Vegstæði Búðafossvegar

Lagt fram erindi og drög merkjalýsingu samningi og afsali vegna lítilsháttar tilfærslu á vegstæði Búðafossvegar, sem er tilkomin svo hægt sé að koma fyrir hringtorginu sem mun tengja Búðafossveg við Þjórsárdalsveg

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemd við merkjalýsingu og samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að samningi og afsali og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn og afsalið fyrir hönd sveitarstjórnar.

 

Vilborg Ástráðsdóttir víkur af fundi.

8. Erindi frá Hestamannafélaginu Jökli

​​​Lagt fram erindi frá Hestamannafélaginu Jökli um áframhaldandi samstarf vegna uppbyggingar bættrar aðstöðu fyrir hestaíþróttir í Uppsveitum Árnessýslu. Markmið samstarfsins væri að vinna að byggingu reiðhallar á Flúðum, sem yrði rúmlega 2.000 fermetrar ásamt skoðun á breytingum á eldri reiðhöll á Flúðum þannig að hún nýtist að hluta sem félagshesthús. Áætlaður kostnaður samkvæmt frumforsendum er 210 milljónir og er þá miðað við að kostnaðarhlutdeild hvers sveitarfélags í Uppsveitunum yrði um 37,5 milljónir.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum framlagða viljayfirlýsingu og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.

Vilborg Ástráðsdóttir kemur aftur inn á fundinn.

 

9. Til umsagnar 505. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umsögnum vegna fyrirhugaðra breytinga á sveitarstjórnarlögum

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fela oddvita að skila inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.

 

10. Kvörtun til Innviðaráðuneytisins vegna samþykktar stjórnar SVÁ 24. september 2025

​Lögð fram til kynningar sveitarstjórnar kvörtun til Innviðaráðuneytisins vegna samþykktar stjórnar SVÁ frá 24. september 2025.​

 

11. Fundargerð 321. fundar skipulagsnefndar

Stóra-Mástunga 1 L166603; Efnistökusvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2511005

Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að sett er inn ný náma í landi Stóru-Mástungu. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi. Með breytingunni er heimiluð allt að 45.000 m3 efnistaka á 2 ha svæði. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Stóru-Mástungu 1, L166603, efnistökusvæði í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn mælist til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar

Fundargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.

Axel Á. Njarðvík leggur fram eftirfarandi bókun við fundargerð skipulagsnefndar:

Með mikilli hógværð vil ég beina því til skipulagsnefndar að hlutverk hennar mótast af því að tryggja að pappírar séu réttir og gögn séu rétt. Skipulagsnefnd leggur til aftur og aftur að sveitarstjórn samþykki vitandi að oddviti situr í nefndinni og að mínu mati setur hann í undarlega stöðu.

 

12. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-245

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

13. Fundargerð 25. fundar skólanefndar

Dagskrárliður 7 í fundargerð – gjaldskrárreglur leikskólans Leikholt.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum endurskoðaðar gjaldskrárreglur Leikholts.

Dagskrárliður 8 í fundargerð – samantekt á hugmyndavinnu um leikskólalóð.

Sveitarstjórn tekur undir bókun skólanefndar um mikilvægi þess að færa leikskólalóðina í það horf að hún henti leikskólabörnum sem best og að hún uppfylli allar þær öryggiskröfur sem gerðar eru til útisvæðis við leikskóla. Í samþykktri fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir framkvæmdum við endurnýjun leikskólalóðar í Leikholti og felur sveitarstjórn oddvita að undirbúa og skipuleggja framkvæmdir í samræmi við tillögur vinnuhópsins þannig að framkvæmdir fari fram í sumar.

Fundargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.

 

14. Fundargerð öldungaráðs Uppsveita og Flóa 22.10.2025

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

15. Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambandsins

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

16. Fundargerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga nr. 216

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

17. Fundargerð 21. fundar loftslags- og umhverfisnefndar

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

Fundi slitið kl. 11:18.

Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 1. apríl kl. 9.00, í Árnesi.

Fundargerð undirrituð rafrænt.