Sveitarstjórn

85. fundur 04. mars 2026 kl. 09:00 - 12:20 Árnes
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór jónsson
  • Vilborg Ástráðsdóttir
  • Gunnar Örn Marteinsson
  • Axel Árnason Njarðvík
  • Gunnhildur Valgeirsdóttir
Fundargerð ritaði: Haraldur Þór Jónsson

Árnesi, 4. mars 2026

Raðnúmer fundar í WorkPoint skjalakerfi F202602-0007

Fundargerð:

85. sveitarstjórnarfundur.

Mætt til fundar:

Haraldur Þór Jónsson oddviti, Vilborg Ástráðsdóttir, Gunnar Örn Marteinsson, Axel Á. Njarðvík og Gunnhildur Valgeirsdóttir í fjarveru Bjarna H. Ásbjörnssonar.

Haraldur Þór Jónsson ritaði fundinn.

Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.

Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:

1. Skýrsla oddvita á 85. sveitarstjórnarfundi

Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.

Magnús Orri Marínarson Schram kom inn á fundinn til að ræða mögulegt samstarf varðandi uppbyggingu í Árnesi.

2. Eldun og framreiðsla á mat fyrir skóla og starfsfólk sveitarfélagsins

​​​Núverandi samningur um rekstur mötuneytis fyrir skóla og starfsfólk sveitarfélagsins við Árnes ferðaþjónustu ehf rennur út þann 31. júlí 2026. Ekki eru frekari heimildir til framlengingar á samninginum. Einnig eru fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi reksturs mötuneytis fyrir skóla og starfsfólk sveitarfélagsins með tilkomu nýrrar íþróttamiðstöðvar í Árnesi sem verður sambyggð Þjórsárskóla. Í nýju íþróttamiðstöðinni verður fullbúið eldhús og matsalur fyrir yfir 100 manns og er gert ráð fyrir að matur fyrir skólana og starfsfólk sveitarfélagsins færist í nýja húsnæðið.

Sveitarstjórn hefur undanfarið rætt um mikilvægi þess að tryggja framúrskarandi mat með áherslu á hráefni úr nærsamfélaginu og að allur matur verði eldaður frá grunni eftir fremsta megni. Með nýju fyrirkomulagi er því lagt til að bjóða ekki út rekstur mötuneytisins eins og hefur verið síðustu ár og heldur ráða matreiðslumann til þess að reka mötuneyti sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum breytingar á fyrirkomulagi um eldun og framreiðslu á mat fyrir skóla og starfsfólk sveitarfélagsins og felur sveitarstjóra að auglýsa eftir matreiðslumanni.

3. Boð á sumarviðburðinn Sumar í Borge

Lagt fram bréf frá Per-Kaare Holdal, formanni Borgvær Venneforening til sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Árið 2004 var vináttusamningur undirritaður milli sveitarfélagsins Vestvågeyjar í Noregi og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Til að styrkja þessi tengsl og blása nýju lífi í sameiginlega menningararf sveitarfélaganna, býður sveitarfélagið Vestvågeyjar í Noregi Skeiða- og Gnúpverjahreppi velkomna á viðburðinn „Sumar í Borge“ dagana 24. og 25. júlí 2026.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps þakkar fyrir gott boð frá Vestvågeyjar og telur mikilvægt að viðhalda og efla vináttusamning sveitarfélaganna. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að senda fulltrúa frá sveitarfélaginu til að taka þátt í „Sumar í Borge“ dagana 24. og 25. júlí og vísar erindinu til frekari umfjöllunar í menningar- og æskulýðsnefnd.

4. Uppsveitakastið - styrkbeiðni

Lagt fram bréf frá Jónasi Yngva Ásgrímssyni, sem frá 22. júlí 2024 hefur haldið úti Uppsveitakastinu og hafa verið gefnir út 61 þættir af þar sem fjölmargir íbúar Uppsveitanna hafa komið í viðtöl. Leitað er til sveitarfélaganna í Uppsveitunum til að standa að sérstökum kosningaþáttum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þar muni hverju framboði gefast kostur á að kynna sig. Þegar líður að kosningum verði síðan staðið fyrir pallborðsumræðum í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Ljóst er að töluverður kostnaður mun hljótast af verkefninu og er því leitað til sveitarfélaganna í Uppsveitunum að styrkja verkefnið.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum styrk til Uppsveitakastsins að upphæð 200.000 kr. til að standa undir kostnaði við sérstaka kosningaþætti framboða til sveitarstjórnarkosninga og pallborðsumræðu í sveitarfélaginu í aðdraganda kosninga. Styrkveitingin rúmast innan núverandi fjárhagsheimilda.

5. Umsókn um styrk v/ljósleiðara

​​​Lögð fram umsókn frá Bríet leigufélagi um umsókn um styrk vegna lagningar ljósleiðara í Bugðugerði 6b og Bugðugerði 9b.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með 5 atkvæðum styrk til leigufélagsins Bríet að upphæð 150.000 fyrir Bugðugerði 6b og 150.000 fyrir Bugðugerði 9b. í samræmi við almennar styrkveitingar um tengingu við Fjarskiptafélag Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Styrkveitingin rúmast innan núverandi fjárhagsheimilda.

6. Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu

Í samráðsgátt stjórnvalda er til umsagnar drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu. Í frumvarpinu eru gerðar tillögur að afnámi undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati, innleiðingu á sérstökum dreifireglum sem kveða á um hvernig fasteignaskattstekjum af slíkum orkumannvirkjum skuli skipt á milli þeirra sveitarfélaga sem verða fyrir áhrifum af orkuframleiðslu og ákvæði sem mælir fyrir um forsendur svokallaðs hvalrekaákvæðis, um hámark fasteignaskattstekna sveitarfélaga á hvern íbúa vegna stóriðju og orkumannvirkja. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps lýsir yfir ánægju með að loks skuli eiga að afnema undanþágu orkumannvirkja frá lögbundnum tekjustofni sveitarfélaga. Sveitarfélögin hafa barist fyrir þessari breytingu í 15 ár og að mati sveitarstjórnar er afnám undanþágunnar forsenda fyrir frekari uppbyggingu orkumannvirkja í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með 5 atkvæðum framlagða umsögn um fyrirhugaða lagabreytingu og felur oddvita að skila umsögninni í samráðsgátt stjórnvalda.

7. Fundarboð aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga 2026

​​​Lagt fram fundarboð aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga 2026 sem fer fram föstudaginn 20. mars 2026 kl. 14:00.

8. Fundargerð 320. fundar skipulagsnefndar

Reykir L166491; Frístundabyggð; Deiliskipulag – 2411063

Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir auglýsingu, sem tekur til Reykja L166491 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í deiliskipulaginu felst að skilgreindar verða fjórar frístundalóðir austast í landinu sem liggja að Sandlæk. Aðalskipulagsbreyting er lögð fram samhliða deiliskipulagi þessu. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Búrfells- og Skeljafellsland L223324, Þjóðlenda; Vegagerð við Bjarnalón; Framkvæmdarleyfi – 2602054

Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Búrfells- og Skeljafellsland L223324, Þjóðlendu. Framkvæmdin felur í sér tilfærslu á vegtengingu við Þjórsárdalsveg við stjórnloku Bjarnalóns og rúnun á beygju milli Bjarnalóns og Bjarnalækjarskurðar. Breytingarnar eru m.a. gerðar vegna kröfu um bætt umferðaröryggi og betri aðkomu.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Þrándarlundur lóð 2 L200496; Aukið byggingarmagn á kjúklingahúsi; Fyrirspurn – 2602012

Lögð er fram fyrirspurn er varðar Þrándarlund lóð 2 L200496 í Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Í fyrirspurninni er óskað eftir afstöðu til þess hvort heimilt sé annars vegar að reisa 400 m² viðbyggingu við núverandi kjúklingahús og hins vegar að reisa tvö ný 800 m² hús til viðbótar á lóðinni. Húsin yrðu frekar lágreist og auðvelt að fella þau að landslagi með mön og trjágróðri.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps telur mikilvægt að áður en lengra verði haldið að fyrirhugaðar framkvæmdir verði kynntar fyrir nágrönnum og umsagnir nágranna liggi fyrir áður en frekari umfjöllun eigi sér stað um málið í sveitarstjórn.

9. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-244

Fundargerð lögð fram til kynningar.

10. Fundargerð 27. fundar Menningar- og æskulýðsnefndar

​Fundargerð lögð fram til kynningar.

11. Fundargerð 88. fundar stjórnar Samtaka Orkusveitarfélaga

​Fundargerð lögð fram til kynningar.

12. Fundargerð 89. fundar stjórnar Samtaka Orkusveitarfélaga

​Fundargerð lögð fram til kynningar.

13. Fundargerð stjórnar SVÁ frá 11. febrúar 2026

Fundargerð lögð fram til kynningar.

14. Fundargerð 252. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands

Fundargerð lögð fram til kynningar.

15. Fundargerð 633. fundar stjórnar SASS

Fundargerð lögð fram til kynningar.

16. Fundargerð 993. fundar stjórnar Sambandsins

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

Fundi slitið kl. 12.20.

Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 18. mars kl. 9.00, í Árnesi.

Fundargerð undirrituð rafrænt.