- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Árnesi, 7. maí 2025
Mætt til fundar:
Haraldur Þór Jónsson oddviti, Vilborg Ástráðsdóttir, Bjarni H. Ásbjörnsson og Gunnar Örn Marteinsson. Gerður Stefánsdóttir boðaði forföll og í hennar stað kemur Axel Á. Njarðvík.
Sylvía Karen Heimisdóttir ritaði fundinn.
Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.
Oddviti óskar eftir að bæta við einu máli á dagskrá, umsagnarbeiðni v. Starfsleyfis í flokki IV-B Stærra gistiheimili. Samþykkt samhljóða að bæta málinu á dagskrá og verður málið númer 25 á dagskrá fundarins.
Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:
1. Skýrsla oddvita á 67. sveitarstjórnarfundi
Oddviti fer yfir verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.
2. Ársreikningur Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2024 - síðari umræða
Ársreikningur Skeiða- og Gnúpverjahrepps lagður fram til síðari umræðu. Haraldur Örn Reynisson endurskoðandi fylgdi eftir ársreikningi frá fyrri umræðu í gegnum Teams. Fyrri umræða fór fram hinn 16. apríl sl.
Samstæðureikningur samanstendur af annars vegar A- hluta, þ.e. aðalsjóði, eignasjóði, þjónustumiðstöð og samstarfsverkefnum, og hins vegar B- hluta, sem er vatnsveita, Hitaveita Brautarholts, fráveita, leiguíbúðir og Fjarskiptafélag Skeiða- og Gnúpverjahrepps ehf.
Helstu niðurstöður fyrir árið 2024 er jákvæð rekstrarniðurstaða A og B hluta að fjárhæð 164 millj. kr. samanborið við 137 millj kr. í afgang árið 2023. Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 175 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Bókfært verð eigna var 1.839 millj kr. í árslok. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2024 nam 1.354 millj kr. í A og B hluta.
Álagningarhlutfall útsvars var 14,97% sem er lögbundið hámark. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki var 0,43% en lögbundið hámark þess er 0,50%. Í B-flokki nam álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hámark þess og í C flokki nam álagningarhlutfallið 1,65% sem er lögbundið hámark þess auk heimildar sveitarstjórnar til að hækka álagningu A og C flokkanna um allt að 0,25.
Útsvarstekjur hækkuðu um 50. millj kr. á milli ára en útsvar og fasteignaskattur hækkuðu um samtals 85 millj. kr. frá fyrra ári. Rekstrartekjur samstæðunnar á árinu námu 1.425 millj kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta en þar af námu tekjur A hluta 1.391 millj kr.
Rekstrarkostnaður var 1.215 millj. kr. í A og B hluta en 1.200 millj. kr. í A hluta. Afskriftir á árinu námu 42 millj. kr. í samstæðu samanborið við 35 millj. kr. árið á undan.
Framlegð frá rekstri A og B hluta nam 210 millj kr. eða 14,74% af tekjum. Handbært fé á reikningum sveitarfélagsins og B hluta fyrirtækjum var um 196 millj kr. í árslok.
Veltufé frá rekstri er 15,3% í árslok og lækkar lítillega á milli ára en staða veltufjár sveitarfélagsins er sterk um áramót og sýnir það svigrúm sem reksturinn hefur til að standa undir afborgunum lána og framkvæmdum.
Fjárfestingar á árinu námu 257 millj. kr. og fólust helst í gatnagerð við Vallarbraut og Þingbraut, vinnu við nýja Borholu í Brautarholti og dæluskúr, keyptar voru vélar og tæki á gámasvæði og við þjónustumiðstöð, fráveituframkvæmdir í Brautarholti, viðbyggingu við Skeiðalaug, byggingu nýs íþróttahúss í Árnesi, breytingu á húsnæði leikskólans Leikholts og breytingu á húsnæði Þjórsárskóla, auk annarra smærri verkefna. Keypt voru ný húsgögn í Þjórsárskóla og leiktæki við útisvæði Þjórsárskóla ásamt því að ný félagsmiðstöð og fablab aðstaða var innréttuð í kjallara Þjórsárskóla. Innheimt gatnagerðargjöld námu 59 millj. kr. á árinu.
Engar lántökur voru á árinu.
Jafnvægisregla (rekstrarjöfnuður) er 417 millj kr. og hækkar um 67,4% á milli ára sem er jákvætt en rekstrarjöfnuður sýnir samanlagðan rekstrarafgang síðustu þriggja ára, en heildarútgjöld til rekstrar vegna A og B hluta á hverju þriggja ára tímabili skulu ekki vera hærri en nemur samanlögðum reglulegum tekjum.
Skuldahlutfall skv. skilgreiningu í reglugerð nam 34% á árinu 2024 og skuldaviðmið 7%.
Umræður urðu um ársreikninginn. Niðurstaða ársins 2024 er umfram áætlanir og er ánægjulegt að sjá þann styrk og þá getu sem sveitarfélagið hefur til áframhaldandi uppbyggingar í sveitarfélaginu.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum ársreikning 2024 og staðfestir hann með undirritun.
3. Ársreikningur Hitaveitu Brautarholts 2024 – síðari umræða
Ársreikningur Hitaveitu Brautarholts 2024 lagður fram til síðari umræðu. Rekstrartekjur námu 5,4 millj. kr. á árinu 2024 og hækkuðu um 0,3 millj. kr. milli ára. Rekstrarniðurstaða var neikvæð um 1,1 millj. kr. Eigið fé í árslok var jákvætt um 13,9 millj. kr.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir ársreikninginn með fimm atkvæðum og staðfestir hann með undirritun.
4. Endurskoðunarskýrsla KPMG fyrir árið 2024
Endurskoðunarskýrsla KPMG fyrir árið 2024 lögð fram til kynningar fyrir sveitarstjórn. Skýrslan hefur verið gerð í tengslum við endurskoðun KPMG á ársreikningi sveitarfélagsins fyrir árið 2024, sem gerður hefur verið í samræmi við lög um ársreikninga. Skýrslan er gerð fyrir stjórnendur, sem KPMG telur vera sveitarstjórn og sveitarstjóri, í því skyni að upplýsa um atriði sem máli geta skipt samkvæmt alþjóðlegum endurskoðunar stöðlum (ISA), þar á meðal samkvæmt ISA 260 Samskipti við stjórnendur og önnur atriði sem KPMG hefur komist að við endurskoðun og telur að geti verið áhugaverð, en ekki í neinu öðru skyni.
Niðurstaða skýrslunnar sýnir að engar athugasemdir eru gerðar við endurskoðun KPMG á rekstri og stjórnsýslu sveitarfélagsins. Í skýrslunni kemur skýrt fram að sveitarfélagið er vel í stakk búið til áframhaldandi uppbyggingar og að allar kennitölur rekstarins hafa batnað verulega á milli ára.
5. Samþykkt um stjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps – Viðauki
Lagður fram viðauki við samþykkt um stjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna breytinga á byggðasamlaginu Héraðsnefnd Árnesinga, sbr. 5. tl. B. liðar 41. gr. samþykktarinnar. Brunavarnir Árnessýslu og Tónlistarskóli Árnesinga voru tekin út fyrir byggðsamlagið og í sér byggðasamlög.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir að vísa viðaukanum til annarar umræðu.
6. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga- Áhrif kjarasamninga kennara á fjárhag sveitarfélagsins
Lagt fram bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um þar sem óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélögum um hver heildaráhrif kjarasamningsins, í krónum talið, eru umfram þær forsendur sem lagðar voru fram í fjárhagsáætlun. Jafnframt óskar nefndin eftir upplýsingum um hvort sveitarfélögin ætli að bregðast sérstaklega við þessum kostnaðarauka og ef svo er, með hvaða hætti?
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps felur sveitarstjóra að svara erindinu til eftirlitsnefndarinnar.
7. Heilsueflandi samfélag- samstarf
Lagt fram minnisblað sveitarstjóra er varðar samstarf um verkefnastjóra Heilsueflandi samfélags. Frá árinu 2019 hefur Skeiða- og Gnúpverjahreppur verið í samstarfi um heilsueflandi fulltrúa Uppsveitanna. Hlutdeild Skeiða- og Gnúpverjahrepps í verkefninu hefur verið 25%. Í gangi er mikil uppbygging í sveitarfélaginu, þar á meðal uppbygging og rekstur íþróttamannvirkja, s.s. nýs íþróttahúss, Skeiðalaugar og líkamsræktaraðstöðu í Brautarholti, uppbygging frístundastarfs í samstarfi við ungmennafélög og önnur félög sem fara með skipulegt íþróttastarf. Áframhaldandi skipulag og stuðningur við starf eldri borgara, aukin stefnumótum á sviði heilsueflingar þar sem samfélagið er stutt til að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa.
Til að þetta geti orðið að veruleika þarf að bæta verulega í þar sem núverandi 25% hlutfall heilsueflandi fulltrúa í sveitarfélaginu er ekki að ná að þjóna þeim þörfum og áskorunum sem framundan eru og er lagt til að segja upp núverandi samstarfi. Í framhaldinu verði ráðist í að skilgreina, þróa og samræma starf heilsu- og tómstundafulltrúa sem mun verða stuðningur við rekstur íþróttamannvirkja sveitarfélagsins, stuðningur við íþrótta- og ungmennafélög sem fara með skipulagt íþróttastarf í sveitarfélaginu, fara með umsjón og skipulag með frístundastarfs og halda utan um forvarnir og vellíðan í samfélaginu, öllum íbúum til heilla.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að segja upp núverandi samstarfi um Heilsueflandi fulltrúa í Uppsveitunum og felur sveitarstjóra að hefja undirbúning að því að skilgreina, þróa og samræma starf heilsu- og tómstundafulltrúa.
8. Umsókn um lóð - Hamragerði 4
Lögð fram umsókn um lóðina Hamragerði 4.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykktir með fimm atkvæðum að úthluta lóðinni Hamragerði 4 til Jóns Eiríkssonar.
9. Skil á lóð - Vallarbraut 6
Lagt fram erindi frá Sölva Ragnarssyni sem fékk úthlutað lóðinni Vallarbraut 6 þann 2. apríl 2025. Óskar hann eftir að skila lóðinni aftur til sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að lóðinni Vallarbraut 6 verði skilað og felur sveitarstjóra að auglýsa lóðina aftur til úthlutunar.
10. Ósk um að létta Gerði Stefánsdóttur störfum í sveitastjórn
Lagt fram erindi frá Gerði Stefánsdóttir þar sem óskað er eftir því að sveitarstjórn létti af Gerði störfum í sveitarstjórn vegna veikinda til 1. september 2025.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að létta af Gerði Stefánsdóttir störfum í samræmi við 2. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 til 1. september 2025. Axel Árnason Njarðvík tekur við sæti Gerðar Stefánsdóttur sem aðalmaður U-lista í sveitastjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
11. 2025031550 umsókn um gistileyfi að Áshildarvegi 7
Lögð fram umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II minna gistiheimili.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemd við umsókn um rekstur gististaðar í flokki II.
12. Brunavarnir Árnessýslu - vinna vegna kostnaðarskiptingar
Lagt fram til kynningar fyrir sveitarstjórn skilabréf starfshóps um greiningu á kostnaðarskiptingu við rekstur Brunavarna Árnessýslu ásamt greiningu á kostnaðarskiptingu og kostnaðarspá.
13. Tilkynning um stjórnsýslukæru nr. 61/2025
Lögð fram til kynningar fyrir sveitarstjórn stjórnsýslukæra frá Úrskurðarnefnd Umhverfis- og auðlindamála vegna framkvæmdaleyfis fyrir efnistöku úr efnistökusvæðum E26 og E25 í aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Einnig lagt fram svar sveitarfélagsins gagnvart kærunni.
14. Til umsagnar 270. mál - jöfnunarsjóður sveitarfélaga - frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Lögð fram umsagnarbeiðni frá Umhverfis- og Samgöngunefnd er varðar breytingar á jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Sveitarstjórn felur oddvita að vinna umsögn í samræmi við fyrri umsagnir um breytingar á jöfnunarsjóði og í samræmi við umræður fundarins og skila inn fyrir 13. maí næstkomandi.
15. Undanþága frá skilyrði um lágmarksíbúafjölda vegna barnaverndarþjónustu.
Lagt fram til kynningar fyrir sveitarstjórn bréf frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu er varðar framlengingu á undanþágu frá skilyrði um lágmarksíbúafjölda vegna barnaverndarþjónustu.
16. Fundargerð 301. fundar skipulagsnefndar.
Vaðfitjanáma L238022 RY; Efnistökusvæði Landsvirkjunar; Umsagnarbeiðni - 2504069
Lögð er fram umsagnarbeiðni við skipulagslýsingu sem tekur til efnistökusvæðis í Vaðfitjanámu.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemdir við framlagða skipulagslýsingu sem tekur til skilgreiningu efnistökusvæðis í Rangárþingi Ytra.
Háholt L166557; Háholt 1, 2 og 3; Öxl L209231; Stofnun lóða og breytt afmörkun - 2504056
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 25.03.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun 3 nýrra lóða utan um þegar byggð hús og breytta afmörkun þegar stofnaðrar landeignar. Annars vegar er óskað er eftir að stofna lóðirnar Háholt 1, 2 og 3 úr landi Háholts L166557 og hins vegar óskað eftir samþykki fyrir breyttri afmörkun Axlar L209231 en stærð hennar breytist ekki frá núverandi skráningu skv. meðfylgjandi merkjalýsingu.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemd við breytta afmörkun og stofnun lóðanna skv. framlagðri merkjalýsingu. Sveitarstjórn samþykkir erindið með fimm atkvæðum.
Réttarholt L166586 Árnesi; Stækkun skólalóðar og byggingarreits og afmörkun fyrir rofahús; Deiliskipulagsbreyting - 2502070
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur lóðar Skólabrautar 2, Þjórsárskóla, eftir auglýsingu. Í breytingunni felst stækkun lóðar og byggingarreits umhverfis skóla og íþróttahús. Jafnframt er skilgreind lóð fyrir rofahús rafveitu sunnan skólalóðar.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir framlagða deiliskipulagsbreytingu eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn mælist til þess að breytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Árnes, Hamragerði 10, 12 og 14; Einbýli í raðhús; Deiliskipulagsbreyting - 2502071
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til lóða Hamragerðis 10, 12 og 14 í Árnesi eftir grenndarkynningu. Í breytingunni felst að notkun lóðanna er breytt úr einbýlishúsalóðum í raðhúsalóðir, nýtingarhlutfall par- og raðhúsalóða við Hamragerði verður 0,4, bílastæðum fjölgar, göngustígur milli Hamragerðis 10 og 12 fellur út og lóð Hamragerðis 10 stækkar örlítið. Athugasemdir bárust við tillöguna við grenndarkynningu málsins.
Í framlögðum athugasemdum felast mótmæli vegna áætlaðrar aukinnar umferðar um götuna komi til fjölgunar íbúða. Sveitarstjórn bendir á að innan stefnumörkunar aðalskipulags Skeiða- og Gnúpverjahrepps er tiltekið að í Árnesi verði lögð áhersla á að þétta núverandi byggð með sambærilegu byggðarmynstri. Þ.e. lágreistri byggð á 1-2 hæðum og að nýtingarhlutfall lóða verði á bilinu 0,2-0,5. Meðal þeirra leiða sem fram eru lagðar innan aðalskipulags er að komið verði til mót við mismunandi þarfir íbúa hvað varðar íbúðar- og húsagerðir. Lögð verði áhersla á uppbyggingu á svæðum tengdum núverandi íbúðarbyggð og á óbyggðum lóðum og að stuðlað verði að þéttingu íbúðarbyggðar. Sérstaklega er tiltekið um svæði ÍB7 sem breytingin tekur til að um blandaða byggð einbýlis-, rað- og parhúsa á 1-2 hæðum sé að ræða. Mænishæð geti verið allt að 6,5 m. Hluti svæðisins sé byggður og heimilt sé að vera með allt að 80 íbúðir innan svæðisins. Í dag er gert ráð fyrir 49 íbúðum á svæðinu og eftir breytinguna myndi íbúðafjöldi aukast í 55 íbúðir. Töluverð eftirspurn hefur verið eftir hagkvæmara húsnæði sem hægt er að byggja í parhúsum eða raðhúsum á meðan takmörkuð eftirspurn hefur verið eftir einbýlishúsalóðum. Að mati sveitarstjórnar skortir nokkuð á fjölbreyttari húsagerðir innan deiliskipulagssvæðisins á grundvelli fyrrgreindrar stefnumörkunar aðalskipulags. Fjölbreytt íbúðagerð innan þéttbýlisins og góð nýting lands og innviða í takt við stefnumörkun aðalskipulags er afar mikilvæg og hvetur til eðlilegri uppbyggingu þéttbýlis að mati nefndarinnar. Innan íbúðarsvæða í þéttbýli mega íbúar búast við eðlilegri umferð og mannlífi. Að mati sveitarstjórnar er viðkomandi breyting á deiliskipulagi er varðar íbúðargerð og fjölgun íbúða innan skilgreinds íbúðarsvæði ekki þess eðlis að óeðlileg aukning á umferð verði um götuna svo að veruleg óæskileg grenndaráhrif hljótist af gagnvart nágrönnum, umfram það sem eðlilegt getur talist innan íbúðabyggða í takt við stefnumörkun aðalskipulags. Til rökstuðnings bendir sveitarstjórn auk þess á að við stærri einbýlishús megi gera ráð fyrir fleiri ökutækjum en ella við minni íbúðir í raðhúsum. Að mati sveitarstjórnar eru önnur grenndaráhrif, umfram áætlaða aukna umferð, er varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn ekki til staðar vegna breytingarinnar.
Sveitarstjórn tekur ákvörðun eftir grenndarkynningu að breyta deiliskipulaginu á þann hátt að Hamragerði 12 og Hamragerði 14 verði raðhúsalóðir og Hamragerði 10 verði áfram einbýlishúsalóð. Fjölgun íbúða í Hamragerði verði því fjórar íbúðir í stað sex íbúða frá fyrri tillögu.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir tillöguna í samræmi við breytingar og mælist til þess að deiliskipulagbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda með fyrrgreindum breytingum. Gögnin verði send Skipulagsstofnun til varðveislu í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og þeim sem athugasemdir gerðu við breytinguna tilkynnt um niðurstöðu sveitarstjórnar.
Stækkun efnistökusvæðis innan Hvammsvirkjunar, Landsvirkjun og Vegagerð; Umsagnarbeiðni - 2504070
Lögð er fram umsagnarbeiðni vegna tilkynningar um matsskyldu sem tekur til stækkunar efnistökusvæðis innan Hvammsvirkjunar.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemdir við framlagða matskyldufyrirspurn sem tekur til stækkunar efnistökusvæðis Hvammsvirkjunar. Að mati sveitarstjórnar er með fullnægjandi hætti gert grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum, mótvægisaðgerðum og helstu áhrifaþáttum s.s. er varðar lífríki- og gróðurfar, landslag og ásýnd og samfélag. Líkt og fram kemur í matsskýrslu er aukning á efnistöku háð aðal- og deiliskipulagsbreytingu auk útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmdarinnar sjálfrar.
Axel Á. Njarðvík situr hjá við afgreiðslu málsins.
Hvammsvirkjun; Efnistökusvæði E26, aukin heimild; Aðalskipulagsbreyting - 2501068
Lögð er fram tillaga sem tekur til breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps er varðar auknar heimildir fyrir efnistöku úr námu E26 innan aðal- og deiliskipulagsáætlana. Samkvæmt núverandi stefnumörkun er gert ráð fyrir allt að 500.000 m3 efnistöku sem verður 950.000 m3 eftir breytingu. Efnið verður fengið innan framkvæmdasvæðis Hvammsvirkjunar sem styttir efnisflutninga verulega og minni akstur eykur umferðaröryggi. Efnið verður jafnframt tekið af svæði sem búið er að heimila að raska með því að sökkva því undir inntakslón Hvammsvirkjunar. Efnistökusvæðin verða því lítt sýnileg að framkvæmdum loknum svo engin breyting verður á ásýndaráhrifum frá því sem búið er að heimila. Framkvæmdaraðili telur ólíklegt að finna aðra valkosti í nágrenninu sem bjóða upp á sama efnismagn með minni umhverfisáhrif. Aðgengi að efnistökusvæðunum er gott og eru skipulagðir vegir eða vinnuvegir að þeim. Efnistökusvæðin munu leggjast af eftir að Hvammslón verður tekið í notkun. Samhliða eru mörk á milli sveitarfélaga samræmd.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum tillögu aðalskipulagsbreytingar til kynningar í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn bendir á í ljósi athugasemda sem fram komu við skipulagslýsingu aðalskipulagsbreytingar að í samþykkt á kynningu breytingartillögu aðalskipulagsbreytingar felst ekki útgáfa framkvæmdaheimilda. Fyrirhugað aukið umfang efnistöku á svæðinu er tilkynningarskyld til ákvörðunar um matsskyldu í takt við það sem fram kemur í umsögn Skipulagsstofnunar vegna skipulagslýsingar og hefur matsskyldu fyrirspurn verið lögð fram samhliða tillögu aðalskipulagsbreytingar.
Axel Á. Njarðvík greiðir atkvæði gegn tillögunni og leggur fram fyrri bókun um málið:
Í ljósi dóms Héraðsdóms Reykjavíkur dags 15. janúar 2024 mál nr. E-2457/2024 þá var ákvörðun Orkustofnunnar frá 12. september 2024 um að veita Landsvirkjun leyfi til að reisa og reka raforkuverið Hvammsvirkjun ógild, þá er fallið úr gildi framkvæmdaleyfi sem sveitarstjórn veitti Landsvirkjun þann 24. október 2024 fyrir Hvammsvirkjun. Framkvæmdaleyfið er því fallið úr gildi og ekki rétt að ganga lengra að sinni.
Skógarlundur L236998; Skógræktarsvæði; Verslunar- og þjónustustarfsemi; Aðalskipulagsbreyting - 2312032
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 eftir kynningu. Svæðið sem breytingin nær til er Skógarlundur L236998. Í breytingunni felst að hluti af skógræktar- og landgræðslusvæðinu SL6 og landbúnaðarsvæði breytist í verslunar- og þjónustusvæði. Þar verður heimilt að vera með gistingu fyrir 192 gesti í allt að 70 gestahúsum. Einnig verður heimild fyrir þjónustubyggingar og skógrækt.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Skógarlundar í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn mælist til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
Guðmundareyri - Fauskásalæmi; Efnistaka E31; Framkvæmdaleyfi - 2504086
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til efnistöku á efnistökusvæði E31 í Fauskásalæmi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Heimilað efnismagn er allt að 30.000 m3 og er fyrirhuguð efnistaka ætluð til framkvæmda við vindorkuver við Vaðöldu.
Sveitarstjórn Skeiða -og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leitað verði umsagnar Forsætisráðuneytisins vegna útgáfu framkvæmdaleyfisins.
Hæll 1 (L166569); byggingarleyfi; einbýlishús - 2504015
Móttekin var umsókn þann 04.04.2025 um byggingarleyfi fyrir 338 fm íbúðarhús. Núverandi hús sem er á sama stað verður fjarlægt á jörðinni Hæll 1 L166569 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
17. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 25-225
Fundargerð lögð fram til kynningar.
18. Fundargerð 10. fundar oddvitanefndar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
19. Fundargerð 333. fundar stjórnar SOS.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
20. Fundargerð 621. fundar stjórar SASS.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
21. Fundargerð 977. fundar stjórar Sambandsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
22. Fundargerðir 81, 82 og 83. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
23. Fundargerð 27. fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu bs.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
24. Ársreikningur Sorpstöðvar Suðurlands 2024
Ársreikningur lagður fram til kynningar.
25. Umsagnarbeiðni v. Starfsleyfis í flokki IV-B Stærra gistiheimili – Freyja farm að Höfðabraut 1.
Lögð fram umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðar í flokki IV- B stærra gistiheimili.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemd við umsókn um rekstur gististaðar í flokki IV-B
Fundi slitið kl. 12.35.
Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 21. maí, kl. 9.00, í Árnesi.
Fundargerð undirrituð rafrænt.