Skólanefnd

27. fundur 23. júní 2026 kl. 15:00 - 16:10 Árnes
Nefndarmenn
  • Vilborg M. Ástráðsdóttir
  • Haraldur Þór Jónsson
  • Guðmundur Árnason
  • Sigurður Kristmundsson
  • Sigríður Björk Marinósdóttir
Starfsmenn
  • Sylvía Karen Heimidóttir sveitarstjóri
  • Gestir og áheyrnarfulltrúar:
  • Guðmundur Finnbogason skólastjóri
  • Gestur Einarsson fulltrúi foreldra.
  • Kristín Gísladóttir fulltrúi kennara og Elvar Már Svansson forstöðumaður Ztart boðuðu forföll.
Fundargerð ritaði: Sylvía Karen Heimisdóttir sveitarstjóri

Formaður setti fundinn og spurðist fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.

Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:

Málefni Félagsmiðstöðvarinnar Ztart

1. Skýrsla forstöðumanns Ztart

Sylvía Karen Heimisdóttir fór yfir starf félagsmiðstöðvarinnar í forföllum Elvars Más frá síðasta skólanefndarfundi.

Skólanefnd þakkar fyrir fjölbreytt og áhugavert starf síðastliðinn vetur með unglingunum í félagsmiðstöðinni. Skólanefnd óskar Elvari velfarnaðar á nýjum vettvangi í Þjórsárskóla og hlakkar til að vinna áfram með Hólmfríði.

Leggja þarf ríka áherslu á virkt samtal á milli skóla og félagsmiðstöðvar. Skólanefnd hvetur einnig til þess að komið verði á góðu samtali og samvinnu við aðrar félagsmiðstöðvar í uppsveitum Árnessýslu.

 

Málefni Þjórsárskóla:

2. Innra mat Þjórsárskóla

​​​​​Guðmundur skólastjóri kynnti fyrir skólanefnd skýrslu um Innra mat í Þjórsárskóla 2025-26.

Í skýrslunni er gerð grein fyrir innra mati Þjórsárskóla og sett er fram langtímaáætlun um innra mat og áætlun skólaársins sem sýnir viðfangsefni matsins, hvenær þau eru metin ásamt nánari lýsingu á því hvernig matið fer fram. Í skýrslunni er gerð grein fyrir helstu niðurstöðum þar sem lögð er áhersla á að fjalla um þá þætti sem komu best út og þá þætti sem krefjast úrbóta.

Markmið með innra mati skólans er að bæta árangur og gæði skólastarfsins en unnið er út frá útgefnum gæðaviðmiðum um skólastarf, skólastefnu Skeiða- og Gnúpverjahrepps og áherslum skólans. Allt starfsfólk tekur þátt í innra mati skólans en stjórnendateymi skólans leiðir matið, heldur utan um skipulagningu og framkvæmd þess, starfsfólk rýnir í niðurstöður og setur fram umbótaáætlun í sameiningu.

Með skýrslu um innra mat fylgir úrbótaáætlun sem er ætlað að vera stýrandi og leiðandi fyrir þær úrbætur og viðbætur sem þarf að vinna að á næstu misserum í skólanum.

Skólanefnd þakkar skólastjóra fyrir skýrsluna og úrbótaáætlunina.

 

3. Skýrsla skólastjóra Þjórsárskóla

Skólastjóri fór yfir helstu verkefni og starfsemi skólans á síðustu vikum skólaársins. Ráðningar fyrir komandi skólaár hafa gengið vel og í flestar stöður hefur verið skipað. Innleiðing Aðalnámskrár hefur gengið samkvæmt áætlun og verður áfram unnið að því verkefni á næsta skólaári.

Nemendur á öllum stigum tóku þátt í fjölbreyttum vorverkefnum, útivist og ferðum sem gengu afar vel. Vordagur, skólaslit og aðrir viðburðir skólaársins heppnuðust vel og nemendur voru til fyrirmyndar í þátttöku sinni.

Áfram er unnið að Farsæld barna og stuðningsúrræða í samstarfi við viðeigandi aðila. Jafnframt var greint frá verkefnum sem stuðla að bættum samskiptum og félagsfærni nemenda.

Opinn fundur skólaráðs var haldinn í júní þar sem meðal annars var rætt um skólastarf næsta árs, tómstundamál og samstarf heimilis og skóla. Fundurinn þótti takast vel og sköpuðust þar gagnlegar umræður.

Skólanefnd þakkar nemendum og öllu starfsfólki skólans fyrir farsælt skólaár og óskar þeim velfarnaðar og gleði í sumarfríinu.

 

Önnur málefni:

4. Starfsáætlun skólanefndar

Formaður leggur fram starfsáætlun skólanefndar fyrir komandi skólaár. Um er að ræða, eins og áður, áætlun um yfirferð málefna sem varða nefndina. Að öðru leyti er vísað í viðeigandi lög, reglugerðir og erindisbréf nefndarinnar.

Fundir skólanefndar eru áætlaðir sem hér segir:

     19. ágúst(málefni Leikholts)

     24. september

     22. október

     26. nóvember

-

     28. janúar

     25. febrúar

     8. apríl

     20. maí

.

Næsti fundur skólanefndar ákveðinn 19. ágúst kl 15.00 í Árnesi.

Fundargerð undirrituð rafrænt.